Þrotabú Landsbankans ætlar að borga út 400 milljarða fyrir árslok

Þrotabú Lands­bank­ans hefur ákveðið að stöðva tíma­bundið fram­sal lýstra for­gangskrafna í búið. Stöðv­unin gildir frá og með deg­inum í dag, 8. des­em­ber. Í til­kynn­ingu á vef þrota­bús­ins segir að þessi stöðvun sé „nauð­syn­leg til þess að slita­stjórn gef­ist færi á að upp­færa kröfu­skrá í tengslum við und­ir­bún­ing að hluta­greiðslum sem ráð­gert er að fari fram fyr­ir­lok árs­ins“. Sú hluta­greiðsla er upp á 400 millj­arða króna.

Á fimmtu­dag var til­kynnt um að upp­gjör­samn­ingi milli þrota­bús Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna skuldar býja bank­ans við þann gamla. Sú skuld var hluti af sam­komu­lagi sem und­ir­ritað var í des­em­ber 2009. Samkvæmt því sam­komu­lagi átti nýi bank­inn að greiða þrota­búi þess gamla nokkur hund­ruð millj­arða króna, í erlendum gjald­eyri, vegna mis­munar á virði eigna sem færðar höfðu verið yfir til hans við stofnun. Loka­greiðsla vegna þess­arrar skuldar átti að vera í októ­ber 2018.

Fengu undanþágu fyrir forgangskröfur


Í byrjun síð­ustu viku voru eft­ir­stöðvar þeirrar skuldar 226 millj­arðar króna. Á fimmtu­dag var síðan til­kynnt um að upp­gjörs­samn­ingur hefði náðst sem fól í sér að ný skulda­bréf voru­gefin út. Þau eru upp á 196 millj­arða króna og eru til greiðslu á árunum 2016 til 2026. Það sem upp á vantar, um 30 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri, var greitt inn á skuld nýja Lands­bank­ans við þrotabú þess gamla.

Í til­kynn­ingu vegna þess kom fram að gild­is­taka upp­gjör­samn­ing­anna byggði á því að þrotabú Lands­bank­ans myndi fá sam­þykktar und­an­þágur frá gjald­eyr­is­höftum til að greiða „inn­heimt reiðufé í erlendum gjald­miðlum að jafn­virði um 400 millj­arðar króna upp í for­gangs­kröfur[...]auk vil­yrðis fyrir frek­ari und­an­þágum frá gjald­eyr­is­höftum í sama skyni“.

[quote font="0" align="right"] Upp­haf­leg krafa bús­ins um að greiðslur af skulda­bréfi Lands­bank­ans yrðu tekin alfarið út fyrir höft var því ekki sam­þykkt.[/quote]

Því er ljóst að þrotabú Lands­bank­ans fékk ein­ungis und­an­þágur frá höftum til að greiða út for­gangs­kröfur. Upp­haf­leg krafa bús­ins um að greiðslur af skulda­bréfi Lands­bank­ans yrðu tekin alfarið út fyrir höft var því ekki sam­þykkt.

For­gangs­kröfur í bú Lands­bank­ans námu 1.328 millj­örðum króna. Þorri þeirra var vegna Icesave-reikn­ing­anna svoköll­uðu og stærsti for­gangs­kröfu­haf­inn er breski inn­stæðu­trygg­inga­sjóð­ur­inn sem greiddi trygg­ingu til þeirra Breta sem geymdu fé á reikn­ing­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár