Ríkisendurskoðun fáliðuð og getur ekki sinnt lögboðnu hlutverki

Rík­is­end­ur­skoðun er fáliðuð og hefur ekki tök á því að skoða alla liði rík­is­reikn­ings árlega. Samkvæmt lögum er meg­in­verk­efni Rík­is­end­ur­skoð­unar að end­ur­skoða rík­is­reikn­ing. Rík­is­end­ur­skoðun getur því ekki sinnt lög­boðnu hlut­verki sínu miðað við þann stakk sem henni er sniðin í dag.

Þetta kemur fram í skýrsl­unni „End­ur­skoðun rík­is­reikn­ings 2013“ sem birt var á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag.

Óviðunandi ástand


Í skýrsl­unni segir að „á und­an­förnum árum hefur áætlun Rík­is­end­ur­skoð­unar miðað að því að end­ur­skoða útgjalda­mestu fjár­laga­lið­ina til að meta rétt­mæti upp­lýs­inga um útgjöld í rík­is­reikn­ingi. Á yfir­stand­andi ári var áherslum breytt á þann veg að fjár­laga­liðir sem ekki höfðu verið end­ur­skoð­aðir í þrjú ár fengu meira vægi í end­ur­skoð­un­ar­á­ætlun árs­ins. Rík­is­end­ur­skoðun er fáliðuð og hefur ekki tök á að end­ur­skoða alla liði árlega. Þetta er að mati stofn­un­ar­innar óvið­un­andi ástand og nauð­syn­legt að henni verði gert kleift að sinna sínu lög­boðna hlut­verki að end­ur­skoða alla fjár­laga­liði rík­is­ins með­reglu­bundn­ari hætti en nú er mögu­legt“.

[quote font="0" align="right"] Þetta er að mati stofn­un­ar­innar óvið­un­andi ástand og nauð­syn­legt að henni verði gert kleift að sinna sínu lög­boðna hlut­verki að end­ur­skoða alla fjár­laga­liði rík­is­ins með­reglu­bundn­ari hætti en nú er mögu­legt“[/quote]

Í skýrsl­unni tók Rík­is­end­ur­skoðun saman helstu athuga­semdir og ábend­ingar sem hún fann við end­ur­skoðun þeirra liða rík­is­reikn­ings sem hún náði að skoða vegna árs­ins 2013. Á meðal þeirra var að upp­gjöri rík­is­reikn­ings þurfi að breyta til sam­ræmis við við­ur­kenndar reikn­ings­skila­reglur, að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti beiti sér fyrir úttekt á tölvu­kerfum, að fjár­sýsla rík­is­ins greini og leið­rétti við­skipta­kröfur og að aðgerða sé þörf til að bregð­ast við trygg­inga­fræði­legri stöðu A-deildar Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, sem er nei­kvæð um mörg hund­ruð millj­arða króna.

Þá vill Rík­is­end­ur­skoðun að stofn­anir hins opin­bera ljúki við gerð eigna­skráa, að fram­setn­ing mark­aðra tekja í fjár­lögum og rík­is­reikn­ingi verði end­ur­skoðuð, að Alþingi kanni mögu­leika á því að setja lög um skatt­styrki, að áætluð gjöld verði sér­greind í tekju­bók­haldi rík­is­ins og að umfjöllun um áhættu rík­is­stjóðs verði birt í skýr­ingum með rík­is­reikn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár