Samráðsnefnd um losun fjármagnshafta boðuð til fundar í hádeginu

Sam­ráðs­nefnd um afnám fjár­magns­hafta hefur verið boðuð til fundar í hádeg­inu í dag. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur til að kynna henni stöðu stjórn­valda í veg­ferð þeirra í átt að losun fjár­magns­hafta. Í sam­ráðs­nefnd­inni sitja Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Bjarkey Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar Fram­tíðar, Jóhann Haukur Gunn­ars­son, full­trúi Pírata og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.

Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu er for­maður nefnd­ar­innar.

Ráðgjafanefndin skipuð í sumar


Í lok síð­ustu viku var slita­búi Lands­bank­ans veitt heim­ild fyrir und­an­þágu frá fjár­magns­höftum svo hann gæti greitt for­gangs­kröfu­höfum sínum 400 millj­arða króna til við­bótar við það sem þegar er búið að greiða þeim. Á móti sam­þykkti slita­búið að lengja í greiðslum á skulda­bréfum sem nýi Lands­bank­inn skuldar honum, upp á 248 millj­arða króna, fram til árs­ins 2026. Áður átti að greiða skulda­bréfin upp í októ­ber 2018.

Í byrjun júlí 2014 samdi fjár­mála- og efna­hahags­ráðu­neytið við lög­manns­stof­una Cleary Gottlieb Steen & Hamilton LLP, ráð­gjafa­fyr­ir­tækið White Oak Advisory LLP og Anne Krueger, pró­fessor í hag­fræði við John Hopkins Uni­versity og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóra Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, um að vinna með íslenskum stjórn­völdum að losun fjár­magns­hafta. Hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton starfar lög­mað­ur­inn Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síð­ustu Icesave- samn­inga­nefnd­ina. Hann hefur stýrt vinnu lög­manns­stof­unnar í þessu verk­efni.

[caption id="attachment_13897" align="alignnone" width="1024"] Hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton starfar lög­mað­ur­inn Lee Buchheit, sem leiddi á sínum tíma síð­ustu Icesave- samn­inga­nefnd­ina. Hann hefur stýrt vinnu lög­manns­stof­unnar í þessu verk­efni.[/caption]

Samhliða réð Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, fjóra sér­fræð­inga til að vinna að losun hafta í nokk­urs konar fram­kvæmda­stjórn með fyrr­greindum ráð­gjöfum og í umboði stýrinefndar. Þeir eru Benedikt Gíslason, ráð­gjafi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í hafta­málum, Eiríkur Svav­ars­son, hrl., Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­banka Íslands og Glenn V. Kim sem jafn­framt leiðir verk­efnið.

Slitastjórnir á fund á morgun


Bloomberg greindi frá því í lok síð­ustu viku að til stæði að kynna áætl­anir stjórn­valda við losum hafta fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd í morgun. Það reynd­ist ekki rétt. Kjarninn hefur greint frá því að í til­lögum fram­kvæmda­stjórnar um losun fjár­magns­hafta felist meðal ann­ars til­lögur um að lagt verði á sér­stakt útgöngu­gjald á útgreiðslur til erlendra aðila sem eigi kröfur á fallna banka, vilji þeir kom­ast út úr íslensku höft­unum. Morg­un­blaðið hefur sagt að til­lög­urnar geri ráð fyrir að skatt­ur­inn verði 35 pró­sent og að engin grein­ar­munur verði gerður á því hvort greiðsl­urnar verði fram­kvæmdar í íslenskum krónum eða gjald­eyri. Allt sé undir.

Verði það nið­ur­staðan er ljóst að slita­búin verði að greiða nokkur hund­ruð millj­arða króna í sér­stakan skatt í rík­is­sjóð.

Í þeim til­lögum sem liggja fyrir er stefnt að því að vinna á aflandskrónu­vand­anum sem til staðar er utan þrota­búa föllnu bank­anna og gagn­vart því að veita inn­lendum aðilum tæki­færi til að fjár­festa utan hafta í erlendum verð­bréfum.

Slita­stjórnir Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa síðan verið boð­aðar á fund ráð­gjaf­ar­nefndar um losun fjár­magns­hafta á morgun klukkan 14. Fund­ur­inn mun fara fram á Grand hótel í Reykja­vík og á honum eiga slita­stjórn­irnar að kynna afstöðu sinna til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höftum, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim. Allir full­trúar slita­stjórn­anna eiga að funda með ráð­gjafa­hópnum í einu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár