Deutsche Bank orðinn þriðji stærsti kröfuhafi þrotabús Glitnis

Þýski bankaris­inn Deutsche Bank er skráður eig­andi að kröfum í þrotabú Glitnis upp á 157,1 millj­arð króna að nafn­virði. Það gerir hann að þriðja stærsta kröfu­hafa bank­ans á eftir Burlington Loan Mana­gement, írsku skúffu­fyr­ir­tæki í eigu vog­un­ar­sjóðs­ins Davidson Kempner.

Deutshe Bank hefur bætt við sig miklu magni krafna á síð­ustu tveimur árum. Alls hefur hann keypt kröfur upp á 90,9 millj­arða króna að nafn­virði frá byrjun árs 2013. Þar af hefur hann keypt kröfur upp á 77 millj­arða króna á síð­ustu fimmtán mán­uðum.

Þetta kemur fram í nýrri kröfu­hafa­skrá Glitnis sem birt var á kröfu­hafa­fundi 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Kjarninn hefur kröfu­hafa­skránna undir höndum.


Burlington enn langstærsti kröfuhafinn


Sem fyrr er Burlington Loan Mana­gement stærsti kröfu­hafi Glitnis. Sjóð­ur­inn er stærsti ein­staki kröfu­hafi fall­inna íslenskra banka og á auk þess hlut í fullt af öðrum íslenskum fyr­ir­tækjum. Sá sem stýrir málum Burlington og Davidson Kempner, sem er 18. stærsti vog­un­ar­sjóður heims, hér­lendis heitir Jeremy Clement Lowe. Innan „kröfu­hafa­iðn­að­ar­ins“ eru allir sam­mála um að Lowe sé lang­virkastur allra kröfu­hafa hér­lendis. Hann dreifi hins vegar verk­efnum á milli inn­lendra aðila, not­ast við þjón­ustu að minnsta kosti þriggja fjár­mála­fyr­ir­tækja og nokk­urra mis­mun­andi lög­mann­stofna.

Þessi taktík gerir það að verkum að eng­inn hefur heild­ar­mynd af því sem Lowe og Burlington eru að gera á Íslandi nema hann sjálfur og þeir sem með honum starfa.

Þó er hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um umfang stærstu eigna Burlington á Íslandi. Til við­bótar við að vera stærsti ein­staki kröfu­hafi Glitnis er sjóð­ur­inn á meðal stærstu kröfu­hafa Kaup­þings, á umtals­verðar kröfur í bú Lands­bank­ans, er á meðal eig­anda ALMC sem seldi 67 pró­sent hlut sinn í Straumi fjár­fest­inga­banka í júlí síð­ast­liðnum, á beint 13,4 pró­sent hlut í Klakka (sem á 23 pró­sent í VÍS og allt hlutafé í Lýsingu) og keypti 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar skömmu fyrir síð­ustu ára­mót. Auk þess hefur sjóð­ur­inn verið að kaupa hluti í Bakkavör í Bret­landi af miklum móð, en þær eignir eru skráðar sem breskar þótt aðrir stórir eig­endur séu að mestu íslenskir og rætur fyr­ir­tæk­is­ins liggi hér­lendis.

[quote font="0" align="right"]Kröfur á Glitni hafa verið að selj­ast á um 30 pró­sent af nafn­virði og því má ætla að mark­aðsvirði krafna Burlington sé um 73,5 millj­arðar króna.[/quote]

Staða Burlington í Glitni er mjög svipuð og hún var vorið 2013. Sjóð­ur­inn á kröfur upp á 245 millj­arða króna í Glitni. Kröfur á Glitni hafa verið að selj­ast á um 30 pró­sent af nafn­virði og því má ætla að mark­aðsvirði krafna Burlington sé um 73,5 millj­arðar króna.

Kjarninn greindi frá því í ágúst að eignir Burlington á Íslandi hefðu auk­ist um 70 pró­sent á árinu 2013, sam­kvæmt árs­reikn­ingi sjóðs­ins sem Kjarninn hefur undir höndum. Kaupverð þeirra eigna sem Burlington hafði keypt hér­lendis um síð­ustu ára­mót var um 87 millj­arðar króna. Ljóst er að mark­aðsvirði þeirra er miklu hærra en sú upp­hæð.

Burlington í miklum samskiptum við Deutsche Bank


Burlington, sem er skráður til heim­ilis á Írlandi, var stofn­aður 24. apríl 2009. Hann er í raun skráð í eigu þriggja góð­gerð­ar­sam­taka. Í árs­reikn­ingi Burlington kemur his vegar líka fram að stjórn­andi sjóðs­ins ( e. corporate administrator and company secretary) sé dótt­ur­fé­lag þýska bankaris­ans Deutsche Bank, Deutsche International Corporate Services Limited á Írlandi.

Samkurl Burlington við Deutsche Bank, sem nú er orð­inn þriðji stærsti eig­andi krafna í bú Glitnis, hefur því verið nokkuð mikið. Dótt­ur­fyr­ir­tæki þýska bankaris­ans, Deutsche Bank AG í Amster­dam, heldur til að mynda á 99 pró­sent af hlut­deild­ars­kirteinum í ALMC. Heim­ildir Kjarnans herma að Burlington eða sjóðir Davidson Kempner séu end­an­legir eig­endur hluta þeirra skirteina. Þá keypti Burlington 26 millj­arða króna skuldir Lýsingar af Deutsche Bank skömmu fyrir síð­ustu ára­mót.

Við­mæl­endur Kjarnans telja að Deutsche Bank sé að halda á þeim kröfum sem bank­inn er skráður fyrir á Glitni fyrir ein­hverja aðra. Bankinn sé milli­liður, ekki end­an­legur eig­andi þeirra.

Áhrif Deutsche Bank á Íslandi mikil


Áhrif á Deutsche Bank á Íslandi eru mikil, og raunar meiri en flestir átta sig á. Deutsche Bank var einn stærsti, ef ekki stærsti, lán­veit­andi íslensks efna­hags­lífs fyrir hrun. Það vakti athygli þegar hol­lenski seðla­bank­inn til­kynnti í águst að hann hefði selt Deutsche Bank það sem eftir stóð af Icesave-kröfum bank­ans, alls um 700 millj­ónir evra.

Kjarninn greindi frá því 29. ágúst síð­ast­lið­inn að bank­inn hefði keypt kröf­urnar fyrir aðra, og væri búinn að selja þær áfram.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru kaup­end­urnir fleiri en tveir og á meðal þeirra voru þekktir vog­un­ar­sjóðir sem eiga aðra hags­muni á Íslandi. Til­gang­ur­inn er að styrkja stöðu þeirra sem eiga mest undir þegar kemur að upp­gjöri þrota­búa föllnu bank­anna. Þar á eng­inn meira undir en Burlington Loan Mana­gement.

Sala hol­lenska seðla­bank­ans á Icesave-kröfum kom í kjöl­farið af því að bresk sveit­ar­fé­lög, sem áttu einnig slíkar kröfur, seldu þær í febr­úar síð­ast­liðnum. Þegar til­kynnt var um þá sölu kom ekki fram hverjir kaup­endur krafn­anna væru.

Í lok síð­ustu viku var til­kynnt að slitabú gamla Lands­bank­ans fengi und­an­þágu til að greiða for­gangs­kröfum sínum um 400 millj­arða króna.

Ofan­greindar kröfur sem seldar voru á þessu ári eru að lang mestu leyti for­gangs­kröfur.

Wall Street situr um Ísland


Aðrir í hópi stærstu kröfu­hafa Glitnis eru stórir alþjóð­legir vog­un­ar­sjóðir og sjóðir á vegum nokk­urra af stærstu fjár­fest­inga­bönkum ver­aldrar. Þar er um að ræða sjóð á vegum Citigroup, Barclays, Credit Suisse og The Royal Bank of Scotland og Merrill Lynch.

Næst stærsti kröfu­hafi Glitnis er vog­un­ar­sjóð­ur­inn Silver Point. Hann var á sínum tíma stofn­aður af tveimur fyrrum starfs­mönnum fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs og er í dag í 79. sæti yfir stærstu vog­un­ar­sjóði heims. Sjóð­ur­inn hefur bætt við sig kröfum upp á 25,2 millj­arða króna að nafn­virði und­an­farið eitt og hálft ár og á kröfur upp á 157,1 millj­arð króna.

[caption id="attachment_13596" align="alignnone" width="630"] Sjóður í eigu John Paulson, eins rík­asta manns, heims, seldi í ágúst allar kröfur sínar á Glitni.[/caption]

Nokkrir sjóðir hafa minnkað tölu­vert við stöðu sína í Glitni frá því í mars í fyrra. Perry Luxco hefur til að mynda selt um helm­ing krafna sinna, ACMO S.a.r.l. líka og Owl Creek-sjóð­ur­inn hefur minnkað stöðu sína um 2/3. Þá hefur sjóður John Paulson, eins rík­asta manns heims, selt allar kröfur sínar á slitabú Glitnis. Hann var í hópi stærstu kröfu­hafa Glitnis og átti kröfur upp á 53 millj­arða króna vorið 2014.

Sá aðili sem hefur bætt mest af kröfum við sig á und­an­förnum miss­erum er írski sjóð­ur­inn PAC Credit Fund. Sjóð­ur­inn keypti sig upp­haf­lega inn í kröfu­hafa­hóp Glitnis í febr­úar þegar hann eign­að­ist kröfur upp á 20 millj­arða króna að nafn­virði. Hann bætti svo við sig 63 millj­örðum í kröfum þann 28. ágúst síð­ast­lið­inn. Annar hlut­hafi PAC er starfs­stöð banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans J.P. Morgan í Írlandi.

Dregur til tíðinda í störukeppni


Búist er við því að það dragi til tíð­inda varð­andi upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna þriggja í þess­ari viku.

[caption id="attachment_13887" align="alignnone" width="649"] Búist er við því að íslensk stjórn­völd sýni á spilin varð­andi áætlun sína um losun fjár­magns­hafta í þess­ari viku.[/caption]

Slita­stjórnir Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa verið boð­aðar á fund ráð­gjaf­ar­nefndar um losun fjár­magns­hafta á morgun klukkan 14. Fund­ur­inn mun fara fram á Grand hótel í Reykja­vík og á honum eiga slita­stjórn­irnar að kynna afstöðu sinna til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höftum, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim. Allir full­trúar slita­stjórn­anna eiga að funda með ráð­gjafa­hópnum í einu.

Bloomberg hafði sagt frá því að til stæði að kynna áætlun ráð­gjafa­nefnd­ar­innar um losun fjár­magns­hafta fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd á fundi hennar sem hófst klukkan 8:30 í morgun. af því varð ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár