Staða efnahagsmála í Rússlandi versnar og versnar

Staða efna­hags­mála í Rúss­landi er slæm í augna­blik­inu og til marks um það þá hækk­aði verð­lag um níu pró­sent í nóv­em­ber­mán­uði. Hækkunin koma að mestu leyti fram seinni part mán­að­ar­ins, sam­kvæmt tölum frá hag­stof­unni í Rúss­landi sem vitnað er til í fréttum Quartz.

Þannig hækkað verð á kjöti um 18,2 pró­sent milli ára og mjólk­ur­af­urðir um 14,3 pró­sent. Margar ferskvörur hafa hækkað umtals­vert og græn­meti sömu­leiðis. Meðal ann­ars hafa ferskir tómatar hækkað um 35 pró­sent og kart­öflur um 21 pró­sent. Hækkunin það sem af er ári nemur um 40 pró­sentum, sen Steve Ros­en­berg, frétta­rit­ari BBC, skrif­aði meðal um þessa þróun á Twitter á dög­unum.

Shopping in Ryazan. The good news: there's plenty of buckwheat. The bad news: food prices up 40% since start of year pic.twitter.com/gY0YQ9FnRu

— Steve Ros­en­berg (@BBCSteveR) December 5, 2014

Margt helst í hendur sem gerir Rússum erfitt fyrir um þessar mundir. Efna­hags­þving­anir Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna og Banda­ríkj­anna hafa haft veru­leg áhrif, og vís­bend­ingar eru uppi um að inn­flutn­ings­bann Rússa gagn­vart fjöl­mörgum ríkjum, hafi þrýst upp verði með til­heyr­andi verð­bólgu­á­hrifum og ekki styrkt hag­kerfið heldur veikt það. Samt hefur bannið mælst vel fyrir hjá almenn­ingi í könn­unum, sam­kvæmt frá­sögnum rúss­neskra fjöl­miðla.

Ofan í þetta hefur verð­fall á olíu bein áhrif á und­ir­stöðu­at­vinnu­veg Rússa, orku- og olíu­geir­ann. Frá í júlí hefur olía lækkað um meira 30 pró­sent í verði.

Í byrjun síð­ustu viku kom Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seti fram í sjón­varps­ávarpi og lýsti því yfir, að mikla líkur væru á því að Rússar myndu sigla inn í kreppu á næsta ári, eftir mik­inn upp­gangs­tíma und­an­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár