Pólitísk refskák endar með heimaskítsmáti

Ef marka má yfir­lýs­ingar sænskra stjórn­mála­manna und­an­farið munu kosn­ing­arnar sem boðað hefur verið til í mars á næsta ári, aðeins hálfu ári eftir síð­ustu þing­kosn­ingar, snú­ast um ábyrgð. Ábyrgð á rík­is­fjár­málum, ábyrgð á inn­flytj­enda­stefnu, ábyrgð á atvinnu­málum, ábyrgð á skóla- og heil­brigð­is­kerfi og auð­vitað ábyrgð á stjórnun lands­ins. Sem er merki­legt því ef eitt­hvað hefur skort síð­ustu vikur er það einmitt að stjórn­mála­menn beri þessa umtöl­uðu ábyrgð.

Tækifæri Svíþjóðardemókratanna


Í síð­ustu viku greiddu Sví­þjóð­ar­demókratar (SD) atkvæði með fjár­laga­frum­varpi mið-hægri banda­lags­ins og felldu þannig til­lögur rík­is­stjórnar Stefan Löfvens. Þegar ljóst varð að ekki væri grund­völlur fyrir frek­ari samn­inga­um­leit­unum boð­aði Löfven til þing­kosn­inga, þótt hann geti að vísu ekki gert það form­lega fyrr en 29. des­em­ber þegar rík­is­stjórn hans hefur náð til­skyldum þremur mán­uðum á valda­stóli. Ákvörðun SD er sögu­leg og markar nýja tíma í sænskum stjórn­málum.

Hún kemur hins vegar ekki á óvart. Frá því að SD náði inn á þing í kosn­ing­unum 2010 hafa þeir leynt og ljóst stefnt að því að ná lyk­il­stöðu í sænskum stjórn­málum og það mark­mið náð­ist í kosn­ing­unum í sept­em­ber. Ástæðan er blokkapóli­tíkin, en sam­kvæmt gam­alli hefð er fáheyrt að flokk­arnir vinni saman yfir hina póli­tísku miðju. Stærstan hluta tutt­ug­ustu aldar stjórn­uðu Jafn­að­ar­menn með stuðn­ingi Vinstri flokks­ins og það var ekki fyrr en Fredrik Rein­feldt sam­ein­aði mið og hægri flokk­ana í Banda­lagið eða Alli­an­sen árið 2004 sem valda­jafn­vægið raskað­ist veru­lega. Rík­is­stjórn Stefan Löfven sam­anstendur af Jafn­að­ar­mönnum og Umhverf­is­flokknum með stuðn­ingi Vinstri flokks­ins, en í Banda­lag­inu eru fjórir flokkar, Modera­terna sem er stærstur, Krist­demókratar, Þjóð­ar­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn. Banda­lagið var í rík­is­stjórn 2006-2014 en seinni fjögur árin hafði það ekki meiri­hluta þing­sæta á bak við sig. Svíar eru alvanir minni­hluta­stjórnum en hingað til hafa þeir treyst því að flokk­arnir fylgi ákveðnum leik­reglum. Það breytt­ist í síð­ustu viku. Þar sem hvorug blokkin hefur meiri­hluta þing­sæta er SD í lyk­il­hlut­verki á sænska þing­inu, sem hann hefur nú nýtt sér með fyrr­greindum afleið­ingum.

[caption id="attachment_13819" align="aligncenter" width="3600"] Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar ræðir við frétta­menn.[/caption]

Kjósa með sínum málum, en ekki á móti málum hinna


Það er ástæða til að ræða aðeins um hefðir og siði í sænska þing­inu. Líklega eiga margir erfitt með að skilja hvers vegna það veki athygli að stjórn­ar­and­stöðu­flokkur kjósi með öðrum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum til að klekkja á stjórn­inni. Er það ekki einmitt það sem stjórn­ar­and­staðan gerir? Nei, ekki í Svíþjóð. Við fjár­laga­frum­varps­gerð leggja flokkar fram til­lögur í eigin nafni eða í sam­vinnu með öðrum flokkum. Venjan er sú að flokkar reyni að fá stuðn­ing ann­arra fyrir sínum eigin til­lögum, en náist hann ekki reyna þeir ekki að koma í veg fyrir að til­lögur ann­arra nái fram að ganga. Ef þess­ari venju hefði verið fylgt hefði SD kosið með sínum eigin fjár­laga­frum­varps­til­lögum og svo setið hjá þegar kosið var á milli til­lagna stjórn­ar­innar og Banda­lags­ins. Tillaga rík­is­stjórn­ar­innar hefði þá náð fram að ganga, með minni­hluta atkvæða á þing­inu á bak við sig. Skrýtið? Já kannski. En lyk­ill­inn að því að minni­hluta­stjórnir geti starfað.

[quote font="0" align="right"]„Þetta þref um það hver hafi brugð­ist og hverjum hafi borið að láta að kröfum hinna hefur engu skilað nema stjórn­ar­kreppu.“[/quote]

Á þriðju­dag til­kynnti SD að hann hyggð­ist bregða út af venj­unni og kjósa með Banda­lag­inu, gagn­gert til þess að fella fjár­lög stjórn­ar­innar og þar með í raun rík­is­stjórn­ina. Löfven boð­aði Banda­lagið á fund sama kvöld og freist­aði þess að ná sam­komu­lagi um að fjár­lögin færu aftur í nefnd. Við vildum semja, sagði Löfven, en Banda­lagið tók ekki ábyrgð á stöð­unni. Löfven hefur aldrei viljað semja í raun og veru, sagði Banda­lagið, og hann því ekki tekið ábyrgð á stöð­unni. Þetta þref um það hver hafi brugð­ist og hverjum hafi borið að láta að kröfum hinna hefur engu skilað nema stjórn­ar­kreppu. Og allt spilar þetta upp í hend­urnar á SD.

Græða alltaf á stjórnarkreppu


Sví­þjóð­ar­demókratar hafa verið harðir á því að þeir muni alltaf græða á þeirri stöðu sem er komin upp. Þeirra helsta tak­mark er að breyta inn­flytj­enda­stefnu Svía, sem er með þeim frjáls­leg­ustu í heimi, og þeir hóta því að fella öll fjár­lög sem falli ekki að þeirra stefnu. Þeir lýstu því einnig yfir að Umhverf­is­flokk­ur­inn væri höf­uð­and­stæð­ingur þeirra og að þeir myndu alltaf vinna gegn rík­is­stjórn sem leiddi þann flokk til áhrifa. Líklegt er að inn­flytj­enda­mál verði áber­andi í kosn­inga­bar­átt­unni. Fjöl­miðlar geta auð­vitað ekki gengið fram­hjá þriðja stærsta flokki lands­ins með um 13% fylgi í síð­ustu kosn­ingum, flokk­inn sem er ástæða þess að kjósa þarf aftur. Nýlegar kann­anir benda svo til þess að SD muni ganga vel í mars. 83% kjós­enda hans segj­ast lík­lega munu kjósa hann aftur og aðeins 5% íhuga alvar­lega að skipta um flokk. Af þeim sem kusu Banda­lagið í síð­ustu kosn­ingum og geta hugsað sér að skipta um flokk, segj­ast um 30% íhuga að styðja SD. Talan er öllu lægri vinstra megin, en þó um 20%. Því gæti vel farið svo að SD bæti við sig fylgi í vor.

Eins og staðan er núna má allt eins gera ráð fyrir að Krist­demókratar nái ekki inn á þing í kosn­ing­unum. Þeir fengu aðeins 4,57% síð­ast en mörkin til að ná inn á þing eru 4%. Þeir mæl­ast ítrekað undir þessum mörkum og könn­unin sem vísað var til hér á undan sýnir að um helm­ingur kjós­enda flokks­ins íhugar að kjósa annan flokk. Enda hefur lítið sést til Krist­demókrata síð­ustu vikur og margir sem velta fyrir sér hvaða erindi hann eigi eig­in­lega í sænsk stjórn­mál. Leiðtogi Mið­flokks­ins, Annie Lööf, hefur verið her­ská í mál­flutn­ingi sínum frá því að Löfven tók við og það virð­ist falla vel í kramið hjá kjós­endum. Við þetta bæt­ist að flokk­ur­inn á um einn og hálfan millj­arð sænskra króna í sjóðum eftir að hann seldi dag­blöð í sinni eigu árið 2005. Hann er því vel í stakk búinn til að borga kosn­inga­bar­áttu vors­ins en sjóðir hinna flokk­anna eru ekki jafn digrir. Þó hafa atvinnu­rek­endur lýst því yfir að þeir muni leggja ýmis­legt á sig til að tryggja gott gengi hægri flokk­anna. Þeir segja sporin hræða og að fjár­laga­frum­varp Löfvens hefði komið niður á atvinnu­líf­inu.

Stóru flokkarnir í erfiðleikum


Stóru flokk­arnir tveir, Jafn­að­ar­menn og Modera­terna, eiga í tölu­verðum erf­ið­leikum. Tveir helstu leið­togar Modera­terna og um leið sænskra stjórn­mála hættu eftir kosn­inga­ó­sig­ur­inn í haust. Spor Fredrik Rein­feldt og Anders Borg eru vand­fyllt en þó telja flestir lík­leg­ast að Anna Kinberg Batra verði eft­ir­maður Rein­feldts á for­manns­stóli. Anna er gift David Batra sem er þekktur uppi­stand­ari og leik­ari í Svíþjóð. Hann er fæddur í Svíþjóð en faðir hans er af ind­verskum upp­runa.

Hér að neðan má sjá David Batra rök­ræða við for­mann SD Jimmie Åkesson.

Ólíklegt er að Anna Batra breyti inn­flytj­enda­stefnu Modera­terna en innan flokks­ins hafa margir sagt að hann þurfi að bregð­ast við upp­gangi SD. Það getur aðeins þýtt harð­ari stefnu gegn inn­flytj­endum og að Svíþjóð taki við færri flótta­mönnum. Til stóð að hafa for­manns­kosn­ingar í mars en þeim hefur nú verið flýtt fram í byrjun jan­úar. Á næstu vikum kemur í ljós hvort hún fái mót­fram­boð en hún á mikið verk óunnið að sanna sig sem for­sæt­is­ráð­herra­efni Banda­lags­ins.

[quote font="0" align="right"]„Sú ákvörðun Löfven að boða til kosn­inga hefur komið mörgum á óvart. Hann tók hana að loknum fundi með Banda­lag­inu á þriðju­dags­kvöld og nú þegar deila menn um hvað var sagt fyrir aftan þessar frægu luktu dyr.“[/quote]

Löfven glímir við ann­ars konar vanda­mál. Fylgi Jafn­að­ar­manna hefur minnkað jafnt og þétt og jafn­vel þótt þeir hafi lýst yfir sigri í síð­ustu kosn­ingum er 31% fylgi mjög lágt í sögu­legu sam­hengi og var langt frá 35% mark­inu sem flokk­ur­inn setti sér. Löfven hefur einnig verið legið á hálsi fyrir að lesa póli­tík­ina ekki mjög vel. Bak­grunnur hans er úr verka­lýðs­hreyf­ingu þar sem fylk­ingar takast á en ná alltaf sam­komu­lagi að lokum. Í póli­tík geta menn grætt á að gera ekki sam­komu­lag. Stjórn­mála­skýrendur velta nú fyrir sér hvort hann hafi áttað sig á þessu í ref­skák und­an­far­inna vikna. Löfven gengur til kosn­inga með það á bak­inu að hafa mis­tek­ist að koma fjár­lögum í gegn og stýrt einni skamm­líf­ustu rík­is­stjórn sænskra stjórn­mála. Frá því í kosn­inga­bar­átt­unni hefur hann ítrekað lýst því yfir að hann sé reiðu­bú­inn að vinna með öllum flokkum nema SD en erfitt er að átta sig á hversu mikil alvara er að baki þessum orðum. Ef marka má Banda­lagið var raun­veru­legur vilji aldrei fyrir hendi.

Tvær kenn­ingar eru uppi um árangur stóru flokk­anna í vor. Annars vegar að þeim muni ganga vel, því kjós­endur vilji frekar öryggið sem fylgi þeim. Hins vegar að þeim verði refsað fyrir að leysa ekki vanda­málin sem upp komu í haust.

Hvers vegna nýjar kosningar en ekki afsögn?


Sú ákvörðun Löfven að boða til kosn­inga hefur komið mörgum á óvart. Hann tók hana að loknum fundi með Banda­lag­inu á þriðju­dags­kvöld og nú þegar deila menn um hvað var sagt fyrir aftan þessar frægu luktu dyr. Formaður Þjóð­ar­flokks­ins, Jan Björk­lund, segir að þar hafi tals­maður Umhverf­is­flokks­ins vakið máls á því að Banda­lagið mynd­aði stjórn ef þeirra fjár­lög yrðu sam­þykkt. Þessu harð­neitar tals­mað­ur­inn sem segir að Björk­lund ætti að þrífa eyrun áður en hann mæti á svona fundi. Björk­lund bætti svo um betur og sagði að létt­ara hefði verið fyrir Löfven að ná sam­komu­lagi við Banda­lagið ef hann sliti sam­starf­inu við Umhverf­is­flokk­inn og Vinstri flokk­inn. Hvað svo sem var sagt er ljóst að rík­is­stjórn Banda­lags­ins hefði alltaf þurft að treysta á stuðn­ing Sví­þjóð­ar­demókrata til að ná málum í gegn. Og sú staða er ekki ákjós­an­leg.

[caption id="attachment_13820" align="aligncenter" width="4928"] Sænskir stjórn­mála­leið­togar (frá vinstri) Goran Hagglund for­maður Krist­demókrata,
Anna Kinberg Batra for­maður Modera­terna, Jan Björk­lund for­maður Þjóð­ar­flokks­ins, og Annie Loof leið­togi Mið­flokks­ins, á blaða­manna­fundi.[/caption]

Líkur á óbreyttri stöðu í vor


Ef vika er langur tími í póli­tík eru 4 mán­uðir heil eilífð, sér­stak­lega í þeirri óvissu sem nú ríkir. Þótt skoð­ana­kann­anir gefi til kynna að Sví­þjóð­ar­demókratar haldi stöðu sinni eftir kosn­ing­arnar sem þriðji stærsti flokk­ur­inn getur auð­vitað margt gerst. Lík­leg­ast er hins vegar að hvorug blokkin nái meiri­hluta atkvæða og þar með verði nákvæm­lega sama staða eftir kosn­ing­arnar í mars. Þessu átta menn sig á og hafa full­trúar blokk­anna tveggja tekið vel í samn­inga­við­ræður um það hvernig eigi að bregð­ast við slíkri stöðu. Nauð­syn­legt sé að gera minni­hluta­stjórnum kleift að starfa í fram­tíð­inni.

Rétt er að taka fram að til 29. des­em­ber er ennþá mögu­leiki fyrir flokk­ana að ná sam­komu­lagi og hætta við kosn­ing­arnar. Yfir­lýs­ingar síð­ustu daga benda þó til að menn séu komnir í kosn­inga­ham. Það á ekki síst við um sam­fé­lags­miðla sem strax hafa fyllst af flokks­gæð­ingum með lof­ræður og skít­kast á víxl. Það eru spenn­andi tímar í sænskum stjórn­málum. Ekki er að fullu ljóst hvar sú veg­ferð endar en ljóst er að Sví­þjóð­ar­demókratar munu þar leika lyk­il­hlut­verk. Og það er hættu­leg til­hugsun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár