Mikilvægur hlekkur í loftslagssamkomulagi

Hugs­an­lega má hægja á hlýnun Jarðar með því að minnka magn sól­ar­ljóss sem berst niður á yfir­borð plánet­unnar. Það eru í það minnsta til­lögur til­tölu­lega smás hóps vís­inda­manna sem vilja leggj­ast í rót­tækar aðgerðir til að koma í veg fyrir auknar og æ hrað­ari lofts­lags­breyt­ingar.

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna (COP 20) stendur nú yfir í Lima í Perú. Ráð­stefnan er talin vera mik­il­vægur hlekkur til að ná mark­miði alþjóða­sam­fé­lags­ins um laga­lega bind­andi samn­ing milli ríkja um tak­mörkun á losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið. Gest­gafinn þetta árið vill að texti sam­komu­lags liggi fyrir í lok ráð­stefn­unnar.

Eini laga­lega bind­andi sam­ing­ur­inn sem gerður hefur verið um losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er Kyoto-bók­unin sem gerð var árið 1997 og tók gildi í des­em­ber 2005. Sá samn­ingur rann hins vegar út í lok árs 2012. Hlutar samn­ings­ins hafa verið fram­lengdir en ítrek­aðar við­ræður um nýjan samn­ing hafa allar silgt í strand.

[quote font="0" align="right"]Á fund­inum í Lima mun að öllum lík­indum skýr­ast hvernig sam­komu­lagið mun á end­anum líta út.[/quote]

Á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Lima er nýr samn­ingur und­ir­bú­inn og reynt að finna sam­eig­in­lega fleti milli ríkj­anna fyrir ráð­stefnu næsta árs í París þar sem mark­miðið er að skrifa undir og ganga frá sam­komu­lagi. Á fund­inum í Lima mun að öllum lík­indum skýr­ast hvernig sam­komu­lagið mun á end­anum líta út.

Allir þurfa að vera með


Banda­ríkin og Kína eru föst á þeirri stefnu sinni að ætla ekki að skrifa undir laga­lega bind­andi samn­ing. Banda­ríkin vilja ekki taka þátt í slíkum sátt­mála því banda­ríska þingið mun að öllum lík­indum ekki sam­þykka hann. Ríkin tvö, auk Evr­ópu­sam­bands­ins, losa mest magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið en hafa öll sett sér mark­mið til að minna losun sína. Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að Banda­ríkin og Kína hefðu gert með sér sam­komu­lag um minni útblástur.

Önnur ríki sem losa mikið magn hafa ekki sett sér mark­mið. Rússland, Ástralía, Indland eru þar lyk­il­ger­endur enda þurfa öll ríki að koma að sam­komu­lag­inu eigi lofslags­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna að nást með þessum leiðum.

Viðræður um sam­komu­lag hafa áður hrunið, þrátt fyrir að góður vilji hafi verið meðal allra þjóða og skiln­ingur á mark­mið­inu. Skemmst er að minn­ast ráð­stefn­unnar í Kaup­manna­höfn 2009, sem Svandís Svav­ars­dóttir þáver­andi umhverf­is­ráð­herra sótti fyrir hönd Íslands.

[quote font="0" align="right"]Nú hafa sér­fræð­ingar mestar áhyggjur af því að „hinar rík­ari þjóðir“ muni standa í vegi fyrir að sam­komu­lag náist.[/quote]

Makmið ráð­stefn­unnar 2009 var að útbúa samn­ings­drög (eins og stefnan er í ár í Lima) en þegar á leið urðu ráð­stefnu­gestir óánægðir með hvernig haldið var á málum. Ekkert varð af sam­komu­lag­inu 2010. Þá voru það þró­un­ar­ríki sem stóðu í einna helst í veg fyrir sam­komu­lagi eftir að hafa séð samn­ings­drögin sem þau töldu hygla rík­ari þjóðum. Nú hafa sér­fræð­ingar mestar áhyggjur af því að „hinar rík­ari þjóðir“ muni standa í vegi fyrir að sam­komu­lag náist.

Hér að neðan má heyra hlað­varps­þátt The Guardian um ráð­stefn­una í Lima. Þar er meðal ann­ars rætt við Susan Gold­en­berg, lofts­lags­frétta­mann Guardian í Lima. Hún útskýrir meðal ann­ars hvaða nið­ur­staða hægt er að vænta af ráð­stefn­unni í Perú.

[embed]http://audio.theguardian.tv/audio/kip/global-development/series/global-development-podcast/1417689033804/3452/gdn.glo.141204.mh.lima-COP14-climate.mp3[/embed]

Aðrar lausnir mögulegar?


Vís­inda­menn hafa talið til margar tækni­legri lausnir til að hægja á hlýnun jarðar. Þær eru þó misvæn­legar til árang­urs. Í grein sem birt­ist í vís­inda­tíma­rit­inu Philosophical Transactions of the Royal Society A fyrir skömmu voru ýmsar leiðir til­greindar sem gætu nýst sem fyrsta skrefið í þá átt að tak­marka magn sól­ar­geisla sem ber­ast til yfir­borðs Jarðar.

Mashable greinir frá þessum leiðum vef sínum í dag. Meðal þeirra leiða sem til­greindar eru er að gera skýja­hul­una hvít­ari með því að speyja sjó upp í loftið (e. mar­ine cloud brighten­ing). Eðl­is­fræð­ing­ur­inn John Latham lagði þetta fyrst til árið 1990. Þannig myndu vind­knúin skip sigla um hafið og spreyja söltum sjónum upp í loftið svo hann bland­ist skýj­unum. Þannig verður skýja­hulan hvít­ari og end­ur­kastar meira af geislum sólar aftur út í him­inn­geim­inn.

[caption id="attachment_13737" align="alignnone" width="1024"] Kenningu sinni til stuðn­ings hefur Latham bent á að útblástur stórra skipa sjá­ist á gervi­tungla­myndum.[/caption]

Latham hefur ritað margar fræði­greinar um þessa hug­mynd sína og segir vís­bend­ingar um að leiðin gæti virkað. Hann bendir til dæmis á að útblástur frá stórum skipum megi sjá á gervi­hnatta­myndum.

Þá hafa verið nefndar hug­myndir sem fela í sér að spreyja súlfat-dögg í heið­hvolfið til að hindra sól­ar­geisla. Áhrif þessa lausnar yrði í lík­ingu við það sem ger­ist þegar gosmökkur eld­fjalla stígur upp í heið­hvolfið og berst með hálofta­vindum.

Vís­inda­menn telja jafn­framt hægt að breyta svoköll­uðum kló­sigum (teg­und háskýja) svo þau myndu fram­leiða fleiri ískrist­alla. Þetta yrði gert til að geisl­arnir sem lág­skýin end­ur­varpa aftur út í geim kæmust alla leið út úr loft­hjúpi Jarðar, og yrði ekki end­ur­varpað til Jarðar á ný af kló­sig­unum.

[quote font="0" align="right"]„Sumir eru hræddir við þetta og halda að við séum að þykj­ast vera Guð.“[/quote]

Þessar hug­myndir hafa hins vegar verið gagn­rýndar harð­lega. Aðrir vís­inda­menn telja engar líkur á því að þessar lausnir muni virka. Matt Watson, rann­sak­andi við Bristol-háskóla, lét hafa eftir sér í við­tali við BBC að honum fynd­ust svona lausnir ógn­vekj­andi. „En við verðum að bera saman mögu­legar lausnir við það sem við erum að gera núna, þegar allt gengur sinn vana gang í átt til fjög­urra gráðu heit­ari heims.“

John Latham segir svona lausnir aðeins vera til skamms tíma og til þess að hægja á þró­un­inni svo mann­kynið geti fengið meiri tíma til að und­ir­búa var­an­lega lausn. „Sumir eru hræddir við þetta og halda að við séum að þykj­ast vera Guð,“ segir Latham. „En ÞAð sem við erum að reyna að gera er að end­ur­heimta þær aðstæður sem væru hér ef við hefðum ekki brennt jarð­efna­elds­neyti í auknum mæli í 100 ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár