Stór hluti starfsfólks Stjórnarráðsins þekkir siðareglur ekki vel

Stór hluti starfs­fólks Stjórn­ar­ráðs Íslands þekkir ekki þær siða­reglur sem settar voru fyrir það árið 2012. Lítil áhersla hefur verið lögð á fræðslu og eft­ir­fylgni til að tryggja að regl­urnar komi að til­ætl­uðum notum og því ríkir óvissa um hvort þær hafi stuðalað að því að efla fag­leg vinnu­brögð. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar til Alþingis sem heitir „Siða­reglur fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands“ og var birt í morgun.

Samhæfingarnefnd ekki starfandi


Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, stað­festi árið 2012 siða­reglur fyrir starfs­fólk Stjórn­ar­ráðs Íslands. Þeim var ætlað að efla fag­leg vinnu­börgð og auka traust á stjórn­sýsl­unni með því að beina til opin­berra starfs­manna það sem kallað var mik­il­vægum sið­ferð­is­legum gildum og hvetja þá til að hafa þau að leið­ar­ljósi í dag­legum störfum sínum. Í regl­unum er meg­in­á­hersla á ábyrgð og skyldu starfs­manna til að starfa í þágu almenn­ings og koma þannig fram að beri megi traust til þeirra og emb­ætt­anna sem þeir eru full­trúar fyrir.

Rík­is­end­ur­skoðun fram­kvæmdi úttekt á inn­leið­ingu regln­anna og í skýrsl­unni sem birt var í morgun er farið yfir nið­ur­stöður hennar. Þar kemur fram að lang­flestir starfs­menn Stjórn­ar­ráðs­ins telji regl­urnar mik­il­vægan þátt í störfum sínum og hlut­falls­lega fáir telji að það þurfi að breyta þeim.

[quote font="0" align="right"]Þá kom í ljós að óvissa ríkir um hvort regl­urnar hafi stuðlað að því að efla fag­leg vinnu­brögð innan Stjórn­ar­ráðs­ins[/quote]

Í skýrsl­unni segir einnig að „stór hluti starfs­fólks telur sig ekki þekkja regl­urnar vel og einnig kom fram að lítil áhersla hefur verið lögð á að fylgja þeim eftir með skipu­legri fræðslu og eft­ir­fylgni og tryggja þar með að þær komi að til­ætl­uðum notum[...]Þá kom í ljós að óvissa ríkir um hvort regl­urnar hafi stuðlað að því að efla fag­leg vinnu­brögð innan Stjórn­ar­ráðs­ins“.

Samhliða þeirri ákvörðun að setja starfs­mönnum Stjórn­ar­ráðs­ins siða­reglur var ákveðið að for­sæt­is­ráð­herra ætti að skipa, til þriggja ára í senn, sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferð­is­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una. Slík nefn er hins vegar ekki starf­andi í dag.

Hvetja ráðuneytin til breytinga


Rík­is­end­ur­skoðun hvetur for­sæt­is­ráðu­neyti og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti til að tryggja starfs­fólki ráðu­neyta reglu­bundna fræðslu um siða­regl­urnar og for­sæt­isáðu­neytið beiti sér fyrir því að „ráðu­neytin fylgi sam­ræmdri stefnu við að ná þeim mark­miðum sem regl­urnar kveða á um. Enn fremur er ráðu­neytið hvatt til að skipa að nýju sam­hæf­ing­ar­nefnd um sið­ferði­leg við­mið fyrir stjórn­sýsl­una í sam­ræmi við ákvæði laga þar um. Sé ekki talin þörf fyrir þá nefnd beri að breyta lögum. Loks hvetur Rík­is­end­ur­skoðun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti til að tryggja að starfs­fólk Rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins og verk­takar sem starfa á vegum ráðu­neyt­anna fái reglu­lega fræðslu um inn­tak siða­regln­anna“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár