Tillögur um losun fjármagnshafta kynntar á mánudag

Tillögur um losun fjár­magns­hafta verða kynntar fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd á mánu­dag­inn, 8 . des­em­ber. Til­lög­urnar, sem hafa verið í mótun í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, liggja nú full­mót­aðar fyrir. Þetta kemur fram í nýrri frétt Bloomberg –frétta­veit­unar.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vildi ekki tjá sig um málið þegar Bloomberg leit­aði eftir við­brögðum við frétt­inni. Kjarn­inn greindi frá því um miðjan nóv­em­ber að til stæði að kynna áætl­un­ina síðla í nóv­em­ber eða snemma í des­em­ber.

Fyrr í dag var til­kynnt um að Seðla­banki Íslands hefði veitt slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI hf.) und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli. Slita­búið fær því að greiða um 400 millj­arða króna af for­gangs­kröfum til kröfu­hafa gegn því að lengja í skulda­bréfum sem nýi Lands­bank­inn skuldar því. Umfang þeirra er um 228 millj­arðar króna. Loka­greiðsla verður nú árið 2026 í stað árs­ins 2018.

Mögulegur útgönguskattur


Áætlunin sem Bloomberg segir að verði kynnt á mánu­dag mun að stóru leyti snú­ast um hvernig farið verður með slitabú Glitnis og Kaup­þings, auk nokk­urra smærri fall­ina fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Í fjöl­miðlum hefur verið fjallað um að lík­lega verði um að ræða svo­kall­aðan flatan útgöngu­skatt á eignir . Ef kröfu­hafar vilji út þurfi þeir að greiða flatan skatt af öllu fjár­magni sem þeir fái að fara með út úr íslensku efna­hags­kerfi. Samhliða verði kynntar hug­myndir um hvernig leyst verði úr eign­ar­haldi Íslands­banka og Arion banka, sem í dag eru báðir í eigu erlendra kröfu­hafa. Morg­un­blaðið greindi meðal ann­ars frá því að skatt­ur­inn gæti verið allt að 35 pró­sent.

Gangi kröfu­haf­arnir ekki að þessu muni stjórn­völd vera til­búin að halda þeim áfram í höftum á meðan að öllum öðrum: t.d. íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, heim­ilum, fyr­ir­tækjum, verði hleypt út.

Á mánu­dag mun koma í ljós hvort þessi leið verði farin.

Hundruð milljarða í ríkissjóð


Ljóst er að eftir miklu er að slægj­ast. Eignir þrota­bús Glitnis eru 944 millj­arðar króna. Eignir þrota­bús Kaup­þings eru 789 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans á um 218 millj­arða króna í eignum umfram for­gangs­kröfur. ALMC, áður þrotabú Straums Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka, á eignir upp á 97 millj­arða króna. Eignir SPB hf., sem áður hét Spari­sjóða­bank­inn/Icebank, eru 106 millj­arðar króna. Svo fátt eitt sé nefnt.

Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.

Þá er hin snjó­hengjan, skamm­tímakrónu­eignir erlendra aðila. Þær eru nú um 307 millj­arðar króna. Þessi hópur hefur þegar haft útgöngu­leið í gegnum gjald­eyr­is­út­boð Seðla­bank­ans og hina svoköll­uðu fjár­fest­inga­leið hans. Þá selja þeir krónur sínar fyrir gjald­eyri þeirra sem vilja koma inn í íslenskt efna­hagslif með afslætti.

Ef útgöngu­skatt­ur­inn yrði til dæmis tíu pró­sent er ljóst að mörg hund­ruð millj­arðar króna myndu skila sér í rík­is­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár