Slitabú Landsbankans fær undanþágu frá fjármagnshöftum

Seðla­banki Íslands hefur veitt slita­búi gamla Lands­bank­ans (LBI hf.) und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli.

Snýst um lengingu á 228 milljarða króna skuld


Sam­komu­lagið snérist um leng­ingu á 228 millj­arða króna skuld nýja Lands­bank­ans við búið. Í frétt á heima­síðu Seðla­bank­ans segir að hann hafi „að und­an­gengnu lög­bundnu sam­ráði við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, veitt LBI hf. und­an­þágu frá lögum um gjald­eyr­is­mál sem gerir bank­anum fært að inna af hendi greiðslur til for­gangs­kröfu­hafa fyrir um 400 millj­arða króna. Þá hefur Seðla­banki Íslands veitt LBI hf. vil­yrði um und­an­þágur vegna frek­ari hluta­greiðslna til for­gangs­kröfu­hafa af fram­tíð­ar­inn­heimtum hjá LBI hf., að því gefnu að slíkar und­an­þágur verði þá ekki taldar raska stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum, í sam­ræmi við þau sjón­ar­mið sem lögð eru til grund­vallar afgreiðslu við veit­ingu slíkra und­an­þága.[...] Nið­ur­staða Seðla­banka Íslands varð­andi und­an­þág­una og tengt vil­yrði bygg­ist á tvenns konar grein­ingu. Annars vegar á áhrifum þess að samn­ingur Lands­bank­ans hf. og LBI hf. um breyt­ingu skil­mála þess­ara skulda­bréfa næði fram að ganga. Hins vegar á áhrifum und­an­þág­unnar sem slíkrar og tengdrar útgreiðslu úr búi LBI á greiðslu­jöfnuð og fjár­mála­stöð­ug­leika en einnig var litið til þess for­dæmis sem hún kynni að skapa.

[quote font="0" align="right"]Að mati Seðla­bank­ans mun skil­mála­breyt­ingin hafa jákvæð áhrif á efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika þjóð­ar­bús­ins og auð­velda losun fjár­magns­hafta.[/quote]

Að mati Seðla­bank­ans mun skil­mála­breyt­ingin hafa jákvæð áhrif á efna­hags­legan og fjár­mála­legan stöð­ug­leika þjóð­ar­bús­ins og auð­velda losun fjár­magns­hafta. Hætta á óstöð­ug­leika í greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins næstu árin minnkar því, enda verður greiðslu­byrði af gjald­eyr­is­skuldum inn­lendra aðila tölu­vert minni en áður var áætlað eða sem nemur 124 ma.kr. fram til árs­ins 2018. Betri fjár­mögnun Lands­bank­ans hf. ætti að liðka fyrir fjár­mögnun Lands­bank­ans á erlendum láns­fjár­mörk­uðum á við­ráð­an­legum kjörum og auð­velda honum að mæta þörfum atvinnu­lífs­ins fyrir láns­fjár­magn í erlendri mynt."

Uppgjör vegna tilfærslu eigna


Í des­em­ber 2009 var samið um upp­gjör milli þrota­bús gamla Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna þeirra eigna sem færðar voru þar á milli eftir banka­hrunið. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að íslenska ríkið eign­að­ist nýja bank­ann utan lít­ils hlutar sem myndi renna til starfs­manna hans. Á móti gaf þrota­búið út upp­gjörs­skulda­bréf sem nýi bank­inn átti að greiða vegna þeirra eigna sem hann tók yfir.

[caption id="attachment_3604" align="alignnone" width="730"] Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri eru lyk­il­menn­irnir í ákvörð­un­ar­tölu um öll skref sem tekin eru í átt að afnámi hafta.[/caption]

Skulda­bréfin voru upp á mörg hund­ruð millj­arða króna í erlendum gjald­miðlum og loka­greiðsla átti að vera innt af hendi í októ­ber 2018, tíu árum eftir fall Lands­bank­ans. Því var ljóst að nýi Lands­bank­inn þurfti að verða sér úti um mikið magn af gjald­eyri til að standa við greiðsl­urnar.Fljótt varð ljóst að svona miklar útgreiðslur á gjald­eyri, á jafn skömmum tíma, myndu ógna greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins veru­lega. Því var þrýst veru­lega á að fyr­ir­komu­lag­inu yrði breytt.

Má ekki ógna greiðslujöfnuði


Þann 8. maí síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og þrota­bús gamla Lands­bank­ans um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna, en eft­ir­stöðvar þeirra á þeim tíma voru 226 millj­arðar króna. Sam­komu­lagið snérist um að lengt yrði í greiðslum af skulda­bréf­unum til árs­ins 2026 gegn því að vaxta­kjör myndu hækka eftir árið 2018. Það var hins vegar bundið því að Seðla­banki Íslands myndi veita und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál, enda höft á fjár­magns­flutn­inga í gildi í land­inu.

Seðla­bank­inn svar­aði beiðni þrota­bús­ins um und­an­þágur þann 14. júli síð­ast­lið­inn. Í svar­bréf­inu kemur fram að jákvæðir fletir séu á sam­komu­lag­inu. Greiðslu­byrði inn­lendra aðila á gjald­eyr­is­skuldum við bú fall­inna banka lækki til skamms tíma og Lands­bank­inn fái betri erlenda fjár­mögnun sem muni auð­velda honum aðgang að erlendum lána­mörk­uðum. Í svar­bréf­inu kom fram að end­an­legt svar ætti að geta legið fyrir „eigi síðar en í árs­lok“. Síðan þá hefur slitabú Lands­bank­ans sett nokkra ein­hliða fresti fsem það hefur farið fram á að Seðla­bank­inn mætti. Seðla­bank­inn hefur ekki orðið við þeim beiðnum og tekið sér þann tíma sem hann taldi sig þurfa til að ljúka mál­inu. Því lauk í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár