Ólöf Nordal vildi hafa Reykjavíkurflugvöll áfram þar sem hann er

„Ég er þeirrar skoð­unar að Reykja­vík­ur­flug­völlur eigi að vera þar sem hann er. Ég tel hins vegar brýnt að menn reyni, eins og reynt hefur verið, að ná ein­hvers konar sam­komu­lagi við þá sem ráða í borg­inni og beri virð­ingu fyrir þeim sjón­ar­miðum sem þar hafa komið fram.“ Þetta sagði Ólöf Nordal, þáver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í ræðu á Alþingi þann 30. mars 2011. Ólöf var í morgun skipuð nýr inn­an­rík­is­ráð­herra í stað Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, sem sagði af sér emb­ætt­inu í síð­asta mán­uði.

Fimmtán þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins lögðu fram frum­varp í byrjun síð­asta mán­aðar sem felur í sér að skipu­lags­vald á Reykja­vík­ur­flug­velli yrði fært frá borg­ar­yf­ir­völdum til rík­is­valds­ins. Vilji þeirra með fram­lagn­ingu frum­varps­ins er að festa stað­fest­ingu flug­vall­ar­ins í sessi í Vatns­mýr­inni.

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sagð­ist ekki styðja frum­varpið. Í sam­tali við RÚV þann 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn sagði hún ítrekað hafa sagt að sér finn­ist „skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga næstum því vera heil­agt. Og mér finnst ekki að ríkið eigi að skipta sér af því. Mér finnst að við verðum að treysta sveit­ar­fé­lög­unum, vinna með sveit­ar­fé­lög­unum, taka mið af því að þau hafa þetta vald og það er þeim mjög mik­il­vægt, og það er lýð­ræð­inu líka mjög mik­il­vægt.“

[caption id="attachment_13646" align="alignnone" width="640"] Framtíð Reykja­vík­ur­flug­vallar er mikið póli­tískt þrætu­epli.[/caption]

„Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara nokkurn skapaðan hlut“


Þann 30. mars 2011 var fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar til umræðu á Alþingi. Ólöf Nordal, þáver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem var skip­aður inn­an­rík­is­ráð­herra í morgun, tók þátt í þeim umræðum. Þar sagði hún meðal ann­ars: „Ég er þeirrar skoð­unar að Reykja­vík­ur­flug­völlur eigi að vera þar sem hann er. Ég tel hins vegar brýnt að menn reyni, eins og reynt hefur verið, að ná ein­hvers konar sam­komu­lagi við þá sem ráða í borg­inni og beri virð­ingu fyrir þeim sjón­ar­miðum sem þar hafa komið fram.

Mér finnst sú umræða sem hér er að vissu leyti dálítið ótíma­bær. Við vitum að efna­hags­á­standið er með þeim hætti að þessi umræða er ekki bein­línis á dag­skrá. Reykja­vík­ur­flug­völlur er ekki að fara nokkurn skap­aðan hlut. Hvort sem menn byggja sam­göngu­mið­stöð eða ekki er það svo að þetta er ekki brýn­asta verk­efnið sem menn ættu að standa frammi fyrir núna. Ef hægt væri að ná sam­komu­lagi við Reykja­vík­ur­borg um að bæta aðstöð­una á Reykja­vík­ur­flug­velli — ég hygg að við sem höfum notað flug­völl­inn, og það býst ég við að allir hér inni geri, gerum okkur grein fyrir að aðstaðan þar er ekki við­un­andi og hana þarf að bæta — ef hægt væri að ná nið­ur­stöðu á þeim nótum sem hæstv. inn­an­rík­is­ráð­herra nefndi áðan í góðu sam­komu­lagi við borg­ar­yf­ir­völd hygg ég að það sé mjög mik­il­vægt skref í þá átt að ná sátt um inn­an­lands­flugið og Reykja­vík­ur­flug­völl þar sem hann er og menn geri sér þá í leið­inni grein fyrir mik­il­vægi hans fyrir landið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár