Sjóður eins ríkasta manns heims búinn að selja allar kröfur á Glitni

Sjóður banda­rískja fjár­fest­is­ins John Paulson, Paulson Credit Oportunities Master, seldi allar kröfur sínar á slitabú Glitnis í ágúst síð­ast­liðnum. Hann var í hópi stærstu kröfu­hafa Glitnis og átti kröfur upp á 53 millj­arða króna í vor. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Kjarninn hefur áður greint frá því að sjóð­ur­inn hafi fyrst eign­ast kröfur á Glitni í mars 2013. Í maí sama ár var umfang krafn­anna orðið tæpir 15 millj­arðar króna og í apríl 2014 var það orðið um 53 millj­arðar króna.

Í nýrri kröfu­hafa­skrá Glitnis frá 20. nóv­em­ber, sem Morg­un­blaðið hefur undir höndum, er sjóð­inn hins vegar hvergi að finna. Sjóður Johns Paulsons hefur því selt sig út aðeins 18 mán­uðum eftir að hann keypti sig inn.

Hagnaðist mikið á stöðutöku fyrir hrun


Sá sem stofn­aði sjóð­inn og stjórnar honum er John Paulson. Um hann hafa verið skrif­aðar bækur, á meðal þeirra „The big­gest trade ever“, sem fjall­aði um stöðu­töku hans gegn hús­næð­is­bólunni í Banda­ríkj­unum sem gerði hann óheyri­lega ríkan. Einn fimm aðal­sjóða hans, Paulson Credit Opportunities Master, hóf að kaupa kröfur á Glitni af miklum móð vorið 2013.

Sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Paulson var sjö­undi stærsti vog­un­ar­sjóður Banda­ríkj­anna í árs­lok 2012. Það e með um sex millj­arði dala, um 750 millj­arða króna, í stýr­ingu. Paulson er talin vera á meðal 100 rík­ustu manna heims í lok síð­asta árs.

Burlington áfram langstærstur


Stærsti ein­staki kröfu­hafi Glitnis er áfram Burlington Loan Mana­gement, sem er í eigu banda­ríska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Davidson Kempner. Sjóð­ur­inn, sem er stór kröfu­hafi margra ann­arra íslenskra slita­búa, og eig­andi ýmissa íslenskra fyr­ir­tækja, er stærsti ein­staki kröfu­hafi íslensks atvinnu­lífs. Samkvæmt Morg­un­blað­inu á Burlington sam­þykktar kröfur upp á 245 millj­arða króna að nan­fn­virði í bú Glitnis. Það eru tæp­lega ell­efu pró­sent allra sam­þykktra krafna. Sjóð­ur­inn hefur bætt lít­il­lega við sig síðan í maí í fyrra, þegar hann átti kröfur upp á rúman 241 millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár