Norðurlönd: Minnst fjárfest í nýsköpun á Íslandi en fer vaxandi

Þegar kemur að fjár­mögnun nýrra eða nýstár­legra tækni­fyr­ir­tækja af ýmsum toga stendur Ísland aft­ast í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin. Mun minna fé var lagt til rekst­urs sprota­fyr­ir­tækja á Íslandi en gert var í Svíþjóð, Danmörku og Finn­landi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2014. Við­mæl­endur Kjarnans telja að til þess að bæta umhverfið þurfi íslensk sprota­fyr­ir­æki að vera sýni­legri og að fjölga þurfi virkum, reynslu­meiri fjár­festum. Margt horfi þó til betri vegar og nokkur íslensk fyr­ir­tæki sem flokka má sem „nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki“, „sprota­fyr­ir­tæki“ eða „startup“ hafa sótt sér hund­ruð millj­ónir króna á þessu ári. Ýmis merki eru um að fjár­fest­ing í fyr­ir­tækjum á þessu stigi fari ört vax­andi á Íslandi.

Gróflega má áætla að fjár­fest­ingar í íslenskum sporta­fyr­ir­tækjum hafi numið um tveimur millj­örðum króna það sem af er árinu 2014. Meðal stærri fjár­fest­inga má nefna um 670 millj­óna króna fjár­mögnun Mint Solutions, 250 millj­óna króna fjár­mögnun Kerecis og 500 millj­óna fjár­mögnun GreenCloud.

Frétta­mið­ill­inn Nordic Web fjallar ítar­lega um umhverfi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja á Norð­ur­lönd­unum og birti nýverið grein þar sem teknar eru saman fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um fjár­fest­ingar í nor­rænum sprota­fyr­ir­tækjum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Í grein­inni kemur fram að nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finn­landi og Íslandi sóttu sam­tals um 62 millj­arða króna, eða ríf­lega 400 millj­ónir evra, á þessu tíma­bili. Þar af nam fjár­fest­ing í íslenskum félögum ein­ungis um 150 millj­ónum króna, eða 0,25% af heild­ar­fjár­fest­ingu.

Sú tala er ekki rétt, eins og fyrr­greindar fjár­fest­ingar í Mint Solutions og Kerecis sýna. Séu töl­urnar aftur á móti „leið­réttar“ og gert ráð fyrir að alls hafi fjár­fest­ingar numið tveimur millj­örðum í ýmis­konar tækniný­sköpun hér­lendis, þá nemur sú upp­hæð um 3% af heild­ar­fjár­fest­ingum í nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækjum á Norð­ur­lönd­unum.*

Fleiri englafjárfesta vantar

Stefán Þór Helgason, sér­fræð­ingur hjá Klak Innovit, bendir jafn­framt á að um 55 millj­ónum hafi verið fjár­fest á þessu ári í gegnum við­skipta­hraðl­ana tvo, Startup Reykja­vík og Startup Energy Reykja­vík. Spurður hverjar hann telji mögu­legar ástæður þess að minna sé fjár­fest hér á landi en í Svíþjóð, Danmörku og Finn­landi, segir Stefán Þór að þar geti nokkrar ástæður legið að baki. Ein ástæðan sé sú að enn sé reynsla af fjár­fest­ingum sem þessum til­tölu­lega lítil hér á landi og að fleiri „engla-fjár­festa“ þurfi í sam­fé­lagið. Þá er átt við ein­stak­linga sem fjár­magna fyr­ir­tæki á fyrstu stigum þess, eru oft inn­vinkl­aðir í rekst­ur­inn og fram­tíð­ar­sýn­ina auk þess að búa yfir reynslu af því að stofna fyr­ir­tæki.

„Fólk sem á pen­inga á Íslandi hefur margt efn­ast á öðru en sprota­starfi. Það hefur eign­ast pen­inga í gegnum fisk, kaup­mennsku eða aðrar hefð­bundn­ari atvinnu­greinar. Mögu­legir engla­fjár­festar þekkja þannig ekki sprota­starf­sem­ina og áherslan á tækni getur oft virst vera kín­verska,“ segir Stefán Þór. „Auk þess hefur fjár­fest­ing­ar­um­hverfið verið gott á und­an­förnum árum, ávöxtun í Kaup­höll­inni verið mikil og þjón­usta verð­bréfa­sjóða og ann­arra góð. Mörgum þykir þetta þægi­legt, að geta látið ein­hvern annan sjá um þetta, þau fá sína ávöxtun og eru sátt,“ segir hann. „Það er auk þess ekk­ert þægi­legt ferli sem fólk getur farið í gegnum,“ en þar vísar Stefán Þór til umræð­unnar um First North mark­að­inn og hvort ung fyr­ir­tæki í vexti eigi heima á honum.

Stefán Þór segir ýmis­legt horfa til betri vegar á Íslandi hvað þetta varðar, sam­hliða því sem reynslan fari vax­andi og fleiri frum­kvöðlar verði virkir fjár­festar. „Það eru nokkur stór verk­efni þar sem vel hefur gengið, CCP, Marel og Össur til dæmis. Hrunið gerði það svo að verkum að margir fóru af stað.“ Hann tekur sem dæmi fjölda hug­mynda sem bár­ust í hug­mynda­sam­keppn­ina Gul­leggið fyrsta árið, þar sem fólk getur sótt fjár­magn og aðstoð við að fram­kvæma hug­myndir sínar. Árið 2008 bár­ust um 100 hug­myndir en umsóknir voru um 400 í ár.

Skortur á sýnileika

Neil Murray, stofn­andi og rit­stjóri Nordic Web, telur íslensk sprota­fyr­ir­tæki ekki nægi­lega sýni­leg utan Íslands. Það skapi hættu­lega (e. vicious) hringrás þar sem fólk telji ekk­ert vera í gangi, og þar af leið­andi leiti eng­inn að fjár­fest­inga­tæki­færum. „Þetta þýðir einnig að það er eng­inn að segja fréttir, hvorki ég né aðrir,“ segir hann, inntur eftir sinni sýn á íslenskt sprotaum­hverfi í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin.

Fjár­festir­inn Bala Kam­allakharan, stofn­andi Startup Iceland, tekur undir orð rit­stjóra Nordic Web. Í færslu á vef­síð­unni StartupIceland.com segir Bala að Ísland sé „black box“ þegar komi að við­skipta­f­réttum á ensku, og á þar við að erfitt sé fyrir utan­að­kom­andi að átta sig á hvað sé um að vera.

Bala segir ljóst að Íslend­ingar séu á eftir hinum Norð­ur­lönd­unum þegar kemur að fjár­fest­ingum í fyr­ir­tækjum sem eru að taka sín fyrstu skref (e. early stage companies). „Við höfum aukið sýni­leik­ann í gegnum Startup Iceland, Startup Reykja­vík og með annarri fram­taks­semi. Það hafa unn­ist sigrar, en þetta er langur vegur. Árið 2012 ákvað ég að helga tíu ár af lífi mínu í að byggja upp sprota­sam­fé­lagið á Íslandi,“ segir hann og nefnir fyr­ir­tækin Clöru, Plain Vanilla, Data­Mar­ket, Meniga, Kerecis, Orf Genetics, Guide To Iceland og App Dynamic sem dæmi um íslensk nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem hafa náð góðum árangri.

https://twitter.com/BalaInIceland/status/537501481961029632

Ólafur Johnson, stofn­andi Rain­mak­ing Loft í London, skrif­stofu­hús­næðis fyrir nýstofnuð fyr­ir­tæki, tekur undir pistil Bala á Twitter og bendir á að mörg íslensk sprota­fyr­ir­tæki séu skráð á vef­síð­unni CrunchBase en þó séu litlar upp­lýs­ingar þar að finna um þau. CrunchBase er helsti gagna­banki um startup-fyr­ir­tæki. Bala svarar því til að íslensku fyr­ir­tækin átti sig ekki á mik­il­vægi þess að hafa um sig opin­berar upp­lýs­ingar. Það eigi einnig við hluta fyr­ir­tækja í Evrópu, segir Ólafur, og þetta þurfi að árétta fyrir fyr­ir­tækj­unum strax á fyrstu stigum.

https://twitter.com/ojohnson83/status/538090763046092800

https://twitter.com/ojohnson83/status/538090818595487744

https://twitter.com/ojohnson83/status/538230643952721921

Fjármagn ekki haldið í við hugmyndir

Mikil gróska hefur ein­kennt sprotaum­hverfið á und­an­förnum árum. Víða erlendis, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, hefur fjár­magn fylgt þess­ari þróun og mikið verið fjár­fest í startup-fyr­ir­tækjum. Færa má rök fyrir því að ekki hafi verið sama uppi á ten­ingnum á Íslandi, að minnsta kosti ekki í sama mæli. Fjölmörg startup-fyr­ir­tæki hafa verið stofnuð, en aðgangur að pen­ingum ekki verið jafn greiður og í mörgum öðrum löndum.

Í dag sjá margir merki um að aukið fjár­magn streymi inn í íslenska nýsköpun. Góður árangur íslenskra fyr­ir­tækja á borð við Meniga, Plain Vanilla og Data­Mar­ket hafa haft jákvæð áhrif. Stefán Þór von­ast til að árang­urs­rík verk­efni á borð við þessi skapi fleiri engla, fjár­sterka ein­stak­linga úr röðum frum­kvöðla, sem nýti reynsl­una og pen­ing­ana sína til þess að fjár­festa í næstu kyn­slóð frum­kvöðla.

„Danmörk, Svíþjóð og Finnland hafa náð nokkrum árangri, og þar­lend fyr­ir­tæki eiga þar af leið­andi greið­ari aðgang að fjár­magni. Við eigum enn eftir að sjá Noreg og Ísland ná sama árangri, en þegar það ger­ist þá munum við sjá raun­veru­legar breyt­ingar,“ segir Neil Murray.**

Sjóðir í startholunum

Til marks um aukna grósku á fjár­fest­ing­ar­hlið­inni, þá er í dag unnið að stofnun nokk­urra stærri sprota­sjóða. Til þessa hefur Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins og sjóður Frumtaks verið hvað mest áber­andi, auk þess sem Eyrir Invest hefur um ára­bil fjár­fest í startup-fyr­ir­tækjum.

Síð­ast­liðið sumar greindi Mbl.is frá því að unnið sé að stofnun fjög­urra fjár­fest­ing­ar­sjóða. Einn þeirra er sjóður Íslands­sjóða og Bala Kam­allakharan. Spurður um fram­vind­una segir Bala að ferlið gangi vel og sú stund nálgist að fjár­mögnun ljúki. Hann geti þó ekki greint nákvæmar frá stöð­unni í dag, að öðru leyti en að við­brögð hafi verið góð og að hann sé bjart­sýnn á að sjóð­ur­inn verði full­fjár­magn­aður fljót­lega.

*Það má vissu­lega benda á, og hafa í huga, að Íslend­ingar eru fámenn­ari þjóð en hinar norð­ur­landa­þjóð­irnar. Íbúar land­anna telja sam­tals um 26 millj­ónir, og eru Íslend­ingar því um 1,3% af Norð­ur­landa­búum. Í þeim sam­an­burði kemur Ísland ágæt­lega út, þ.e. ef litið er til fjár­fest­ingar í nýsköpun á hvern íbúa. Að mínu mati gefur slíkt þó ekki rétta mynd þegar kemur að fjár­fest­ingum, þótt það megi hafa bak­við eyrað.

**Neil Murray sagði einnig að hann teldi skil­grein­ing­una á „startup“ vera víð­ari á Íslandi en í öðrum löndum. Við Stefán Þór ræddum það nokkuð, þ.e. hvernig skil­greina ætti slíkt fyr­ir­tæki. Það er ekki endi­lega kýr­skýrt hvaða fyr­ir­tæki, og líka hvenær fyr­ir­tæki, telj­ast vera sprota­fyr­ir­tæki, nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki eða það sem er kallað startup-fyr­ir­tæki. Ein skil­grein­ing sem Stefán nefnir er þessi: „Sprota­fyr­ir­tæki er lítið eða með­al­stórt fyr­ir­tæki þar sem nýsköpun er lyk­il­at­riði í starf­sem­inni og stjórn­endur eru í stöðugri bar­áttu við að halda fyr­ir­tæk­inu á lífi.“ Við þetta má bæta, og til þess að gera sam­an­burð­inn réttan við þau fyr­ir­tæki sem Nordic Web skoðar, þá eru hér til umfjöll­unar fyr­ir­tæki sem vinna að ýmis­konar tækni­lausnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár