Endurreisn bankakerfis hefur kostað ríkið 153 milljarða króna í vexti

Rík­is­sjóður hefur greitt sam­tals 72,8 millj­arða króna í vexti vegna end­ur­reisnar við­skipta­bank­anna. Til við­bótar hefur íslenska ríkið greitt um 80 millj­arða króna í vexti og verð­bætur á skuld sinni við Seðla­banka Íslands sem er til­komin vegna aðgerða sem nauð­syn­legt þótti að grípa til í kjöl­far banka­hruns­ins. Í svari ráð­herr­ans segir því að sam­an­lagðar „vaxta­greiðslur og verð­bætur rík­is­sjóðs vegna lána, sem tekin voru til end­ur­reisnar á fjár­mála­kerf­inu frá hruni í októ­ber 2008 til dags­ins í dag, nema því alls um 153 millj­örðum kr.“.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Elsu Láru Arn­ar­dóttur, þing­konu Fram­sókn­ar­flokks­ins um vaxta­gjöld rík­is­ins vegna lána til bjargar fjár­mála­kerf­inu sem var lagt fram á Alþingi í dag.


 

Landsbankinn langdýrastur


Rík­is­sjóður lagði við­skipta­bönk­unum þremur til bæði reiðufé í formi víkj­andi lána, alls 800 millj­ónir króna til hvers og eins þeirra, og lagði auk þess inn í þá skulda­bréf þegar þeir voru fjár­magn­aðir. Rík­is­sjóður hefur síðan greitt vexti af þeim skulda­bréfum. Upp­haf­lega stóð til að ríkið myndi eiga, og þar af leið­andi fjár­magna að fullu, alla nýju bank­anna þrjá. Á end­anum var meiri­hluti hluta­fjár í tveimur þeirra, Íslands­banka (ríkið á enn fimm pró­sent), og Arion banka (ríkið á enn 13 pró­sent), afhendur kröfu­höfum þeirra til að hægt yrði að ljúka fjár­mögnum.

[caption id="attachment_13480" align="align­right" width="200"] Elsa Lára Arn­ar­dóttir.[/caption]

Þess vegna eru útgefin skulda­bréf rík­is­ins til Arion banka og Íslands banka mun lægri en það sem lagt var til Lands­bank­ans, eða sam­tals upp á 68,4 millj­arða króna. Íslenska ríkið hefur því greitt sam­tals 26 millj­arða króna í vexti vegna skulda­bréfa sem það lagði inn í þessa tvo banka. Skulda­bréfið sem lagt var inn í Lands­banka var tölu­vert hærra, eða upp á 121,2 millj­arða króna, enda á ríkið þann banka nán­ast að fullu. Því hefur rík­is­sjóður þurft að greiða 44,2 millj­arða króna í vexti vegna fjár­mögn­unar Lands­bank­ans. Við bæt­ist svo 19,2 millj­arða króna skulda­bréf sem lagt var inn í Lands­bank­ann þegar hann tók yfir SpKef, en tölu­vert vant­aði upp á að sá spari­sjóður hafi átt eignir til að standa undir inn­láns­skuld­bind­ingum sínum. Það skulda­bréf hefur kostað rík­is­sjóð 2,6 millj­arða króna í vexti.

Í svari ráð­herr­ans við fyr­ir­spurn Elsu Láru segir því að „Rík­is­sjóður hefur greitt sam­tals 72,8 millj­arða kr. í vexti af nefndum skulda­bréfum frá stofndegi þeirra í októ­ber 2008 og til nóv­em­ber 2014 vegna við­skipta­bank­anna. Vaxta­kjör skulda­bréf­anna eru breyti­leg og taka mið af inn­láns­vöxtum Seðla­banka Íslands“.

80 milljarðar í vexti og verðbætur vegna Seðlabankans


Í svar­inu er líka farið yfir aðstoð rík­is­sjóðs við Seðla­banka Íslands í kjöl­far hruns­ins, en bank­inn var í miklum vand­ræðum eftir hin svoköll­uðu „ást­ar­bréfa­við­skipti“ sem hann stóð í í aðdrag­anda hruns­ins.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir: „Í kjöl­far falls íslenska fjár­mála­kerf­is­ins í októ­ber 2008 urðu veru­leg töp á veð­trygg­ingum sem Seðla­banki Íslands hafði tekið til trygg­ingar lausa­fjár fyr­ir­greiðslu fjár­mála­stofn­ana. Til að tryggja eig­in­fjár­stöðu Seðla­bank­ans keypti rík­is­sjóður hluta veð­krafna bank­ans á fjár­mála­stofn­anir. Nafn­virði krafn­anna voru 345 millj­arðar kr. og greiddi rík­is­sjóður í upp­hafi árs 2009 um 270 millj­arða kr. fyrir þær með verð­tryggðu skulda­bréfi til fimm ára. Af heild­ar­fjár­hæð­inni voru trygg veð metin vera um 51 millj­arður kr. og óvissar kröfur á um 44 millj­arða kr. Rík­is­sjóður afskrif­aði því strax kröf­urnar um 175 millj­arða kr. Til við­bótar námu afskriftir vegna veð­krafna aðal­miðl­ara rík­is­bréfa 17 millj­örðum kr. Seðla­bank­inn þurfti að afskrifa 75 millj­arða kr. vegna veð­krafna bank­ans á fjár­mála­stofn­anir.

[quote font="0" align="right"]Þar af leið­andi nema vaxta­greiðslur og verð­bætur rík­is­sjóðs vegna lána, sem tekin voru til end­ur­reisnar á fjár­mála­kerf­inu frá hruni í októ­ber 2008 til dags­ins í dag, því alls um 153 millj­örðum krónum.[/quote]

Talið var óhent­ugt að umsýsla krafna ríkis og Seðla­banka á hendur fjár­mála­fyr­ir­tækjum væri á tveimur stöðum og varð því að sam­komu­lagi í lok árs 2009 að Seðla­bank­inn yfir­tæki aftur kröfur rík­is­sjóðs sem þá voru metnar á 93 millj­arða kr. Samhliða þessu seldi rík­is­sjóður bank­anum aðrar veð­lána­kröfur sem hann hafði leyst til sín vegna banka­hruns­ins að upp­hæð 41 millj­arði kr. Andvirði þess­ara við­skipta var síðan nýtt til að lækka kröfu SÍ á rík­is­sjóð um 134 millj­arða kr.“.

Í nóv­em­ber 2014 hefur rík­is­sjóður greitt 30,8 millj­arða króna í vexti af skulda­bréfi sem rík­is­sjóður gaf út til fjár­mögn­unar á eig­in­fjár­stöðu Seðla­bank­ans frá árs­byrjun 2009. Verð­bætur á höf­uð­stól bréfs­ins til 1. jan­úar 2014, þegar skil­málum bréfs­ins var breytt í óverð­tryggt, nema sam­tals um 49,2 millj­örðum kr. Áfallnir vextir og verð­bætur vegna skulda­bréfs Seðla­banka Íslands nema því sam­tals 80 millj­örðum kr. í nóv­em­ber 2014.

Þar af leið­andi nema vaxta­greiðslur og verð­bætur rík­is­sjóðs vegna lána, sem tekin voru til end­ur­reisnar á fjár­mála­kerf­inu frá hruni í októ­ber 2008 til dags­ins í dag, því alls um 153 millj­örðum krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár