Pútín valdamestur allra á uppfærðum lista Forbes

Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seti er valda­mesti maður heims sam­kvæmt upp­færðum lista fag­tíma­rits­ins Forbes. Hann skákar Barack Obama for­seta Banda­ríkj­anna, líkt og hann gerði á síð­asta ári þegar hann tók efsta sætið af Obama.

Að mati Forbes hefur Pútín gríð­ar­lega mikil völd og áhrif í heim­inum í dag, ekki síst í gegnum opin­bera orku­stefnu rík­is­stjórnar hans sem hefur áhrif um alla Evrópu, til Asíu og þannig á heims­búa­skap­inn allan. Þá hefur hann einnig sýnt ótta­leysi í sam­skiptum við Banda­ríkin.

Hinn 62 ára gamli Pútín, sem er með dokt­ors­próf frá rík­is­há­skól­anum í St. Pét­urs­borg í Rúss­landi, hefur einnig sýnt að honum er alvara með að breyta Rúss­landi í Sov­ét­ríkin. Útþenslu­stefna hans og ógn­ar­til­burðir gagn­vart Úkraínu hafa skapað ótta um alla Evrópu.

Hvað sem fólki finnst þá hefur þessi staða aukið völd Pútíns, að mati Forbes, og það sama má segja um gríð­ar­lega stóra jarð­gas við­skipta­samn­inga sem Rússar hafa gert við Kína og Íran á árinu. Meðal ann­ars samn­ing við Kína upp á 70 millj­arða Banda­ríkja­dala, 8.610 millj­arða króna.

Upp­færðan lista Forbes yfir valda­mesta fólks heims má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár