Samkeppniseftirlitið þrýsti á um sölu – uppstokkun framundan

„Við höfum lagt á það áherslu við bank­ana að gerðar yrðu breyt­ingar á eign­ar­haldi stóru greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, þ.e. að bank­arnir komi ekki saman að eign­ar­haldi í greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum. Í því ljósi telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið jákvætt að Lands­bank­inn hafi nú selt sig út úr Borgun. Breyt­ingin er til þess fallin að auka sam­keppni á greiðslu­korta­mark­aði. Sam­keppn­is­eft­ir­litið tekur hins vegar ekki afstöðu til þess hvaða bankar fari með eign­ar­hald í greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum eða hvort Lands­bank­inn hafi vegna eign­ar­halds rík­is­ins á honum átt að setja hlut­inn í opið sölu­ferli,“ segir Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, um sölu Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut í Borgun til Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar slf., en til­kynnt var um það 25. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Lands­bank­inn hefði selt umræddan hlut fyrir tæp­lega 2,2 millj­arða króna.

Bak við luktar dyr


Ekkert opið eða gagn­sætt sölu­ferli fór fram áður en við­skiptin voru form­gerð með samn­ingi og voru fjár­fest­arnir sem eru eig­endur Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar því einu aðil­arnir sem fengu mögu­leik­ann á því að kaupa. Banka­ráðið sam­þykkti við­skiptin áður en þau voru kláruð, en það stað­festi Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs­ins, við Kjarnann í gær.

Samkvæmt skýr­ingum Lands­bank­ans var ástæðan meðal ann­ars sú að bank­inn hefði viljað losa um eign­ar­hlut­inn hratt og að hann hefði verið undir þrýst­ingi, meðal ann­ars frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, um að selja hlut­inn.

Breytingar


Páll Gunnar segir að sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi knúið á um breyt­ingar á eign­ar­haldi hjá greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum á und­an­förnum mán­uðum, og sett sig upp á móti því að full­trúar frá bönk­unum öllum, sem eru eig­endur greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, geti átt með sér sam­starf eða sam­ráð á vett­vangi þess­ara fyr­ir­tækja, hvort sem það er í stjórn eða með annarri aðkomu.

Þrjú stærstu greiðslu­korta­fyr­ir­tækin á Íslandi eru Valitor, Borgun og Kredit­kort. Stærstu eig­endur Borgunar eru Íslands­banki með 62 pró­sent hlut og Eign­ar­halds­fé­lag Borgunar slf. með 31,2 pró­sent hlut. Aðrir eig­endur, með óveru­lega hluti hver, eru Arion banki, BPS ehf., Spari­sjóður Vest­manna­eyja, Spari­sjóður Norð­fjarðar og síðan á Borgun hf. lítið eitt af eigin hlutum.

Valitor hf. er 99 pró­sent í eigu Valitor Holding hf., sem eru í eigu banka að mestu leyti. Arion banki er stærsti eig­and­inn með 60,78 pró­sent hlut og Lands­bank­inn er með 38 pró­sent hlut. Spari­sjóðir og smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki eiga síðan afgang­inn, tæp­lega tvö pró­sent.

Kredit­kort er síðan í eigu Íslands­banka að nær öllu leyti.

Þessi sala á 31,2 pró­sent hlutnum í Borgun til Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar er því að öllum lík­indum aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum þegar að kemur að breyt­ingum á eign­ar­haldi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna, sé heild­ar­myndin á mark­aðnum skoðuð og hún sett í sam­hengi við kröfur Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að bank­arnir dragi sig úr eig­enda­hópi greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­anna.

Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

B flokkurinn langstærstur


Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­endur þess eru Einar Sveins­son og sonur hans Benedikt Ein­ars­son, í gegnum móð­ur­fé­lagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sigvaldi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stef­áns­son er í for­svari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofnfundur í október


Samkvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðnum, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Margrét Gunn­ars­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár