Endurkoma Sarkozy

„Auðvitað er ég ánægður“ sagði Nicolas Sarkozy eftir að hafa end­ur­heimt for­manns­stól UMP, stærsta hægri flokks Frakk­lands, um helg­ina. Samt virt­ist hann ekk­ert sér­stak­lega ánægður með þessa kosn­ingu; hafði von­ast eftir yfir­burða sigri. Með því hefði hann vafa­laust orðið for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins fyrir næstu for­seta­kosn­ingar 2017. Eins og staðan er núna er það alls­endis óvíst.

Sarkozy fékk 64,6 pró­sent atkvæða í próf­kjör­inu þar sem ein­ungis helm­ingur flokks­fé­laga nennti að kjósa. Hann helt enga þakk­ar­ræðu, tjáði sig eitt­hvað á facebook, virt­ist vera svona skítsáttur – ekk­ert meira en það. Nú tekur við slagur innan flokks­ins um hver verði for­seta­fram­bjóð­andi, það er ekk­ert sjálf­gefið að það sé for­mað­ur­inn. Alain Juppé, borg­ar­stjóri Bordeaux og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sarkozy, er til að mynda mun vin­sælli og lík­legri kandídat eins og sakir standa.

Nicolas Sarkozy var for­seti Frakk­lands frá 2007 til 2012. Hann dró sig úr stjórn­málum eftir að hafa tapað gegn François Hollande og sagði við það til­efni: „Ég er hættur; nú eruð þið laus við mig til fram­búðar.“

Öfgafyllri skoðanir


End­ur­koma Sarkozy hefur samt legið í loft­inu í tvö ár. Eig­in­kona hans, fyr­ir­sætan og tón­list­ar­konan Carla Bruni, hefur stöðugt ýjað að því að þjóðin þurfi mann eins og Sarkozy til þess stýra land­inu á erf­iðum tímum. Frelsa landið undan sós­í­alistum og óvin­sælasta for­seta sög­unnar, François Hollande. End­ur­koman átti sjálf­sagt að vera eins og þegar Napóleon sneri aftur frá útlegð sinni á Elbu og þjóðin fagn­aði. Það hefur ekki orðið raunin með Sarkozy. Hann hefur ekki end­ur­heimt fyrri vin­sældir sínar, hann hefur hins vegar gerst öfga­fullri til þess að reyna stela atkvæðum frá hægri-öfga­flokknum Front National, lofað að aft­ur­kalla lögin um rétt­indi sam­kyn­hneigðra sem sam­þykkt voru á síð­asta ári og minnka völd og umfang Evr­ópu­sam­bands­ins, en áður var hann einn helsti tals­maður auk­innar Evr­ópu­sam­vinnu. Hann er því sak­aður um popúl­isma og örvænt­ing­ar­fullar til­raunir til að veiða atkvæði. Þetta hefur farið illa í marga, sér í lagi hans eigin flokks­systk­ini.

[caption id="attachment_13368" align="aligncenter" width="1024"] François Hollande, for­seti Frakk­lands.[/caption]

Forsetakosningar 2017


Það er langur vegur framundan en Sarkozy er samt einu skrefi nær að kom­ast í for­setaslag­inn 2017. Á sama tíma var Marine Le Pen end­ur­kjör­inn for­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar, Front National, og hlaut 100 pró­sent atkvæða. Sá flokkur er gjarnan skil­greindur sem hægri-öfga­flokkur, sem vill hrekja í burtu inn­flytj­endur og múslima og draga úr Evr­ópu­sam­vinnu.

Þjóð­fylk­ingin vann mikla kosn­inga­sigra á þessu ári í Evrópu- og sveit­ar­stjórn­ar­kos­ing­unum í Frakk­landi. Flokk­ur­inn er enn að bæta við sig fylgi. Það gæti orðið nið­ur­staðan að þau tvö, Sarkozy og Marine Le Pen, muni takast á í ann­ari umferð frönsku fos­eta­kosn­ing­anna eftir rúm tvö ár.

Mörgum hrýs hugur við þeirri fram­tíð­ar­spá. Ef þau myndu berj­ast um for­seta­stól­inn væru stjórn­málin að þró­ast í furðu­lega og jafn­vel ógn­væna­lega átt. Stjórn­málin í Frakk­landi og víða ann­ars staðar hafa gerst öfga­fullri á síð­ast­liðnum árum þar sem fylgi hægri-öfga­flokka hefur styrkst mikið og hratt. UMP flokk­ur­inn er hóf­samur og borg­ara­legur hægri flokkur en með Sarkozy í brúnni virð­ist hann ætla að taka nýja stefnu.

Endurkomur stjórnmálamanna


„Ég átti í raun engra kosta völ en að koma aftur.“ Svo mælti Sarkozy þegar hann til­kynnti end­ur­komu sína. Eins og það væri brýnt þjóð­þrifa­mál að fá hann aftur í stjórn­málin. Það hefur aldei vantað sjálfs­traustið í þennan mann. Hann er flestum öðrum tungulipr­ari og afburða ræðu­maður. En end­ur­koman hefur verið erfið fyrir þennan umdeilda stjórn­mála­mann. Hann er enn með fjölda fjársvika­mála á bak­inu eftir ákærur og rann­sóknir sem gætu leitt til rétt­ar­halda. Hann hefur verið sak­aður um að hafa þegið fé frá vafasömum mönnum, eins og sjálfum Gaddafi og reyna að múta dóm­urum. Listinn er langur og því er alls­endis óvíst hvort Sarkozy verði kjör­gengur í for­seta­fram­boð ef hann hlýtur dóm.

And­stæð­ingar hafa gert lítið úr end­ur­komu Sarkozy og sagt hana engu máli skipta og að nið­ur­staða próf­kjörs­ins sé klúður og tap fyrir Sarkozy. Hann er enn tölu­vert óvin­sæll meðal kjós­enda og í eigin flokki. Hann hefur raunar alltaf verið umdeildur en að sama skapi lit­ríkur stjórn­mála­maður. Hann þótti oft snar í snún­ingum í utan­rík­is­málum og vildi ráð­ast í miklar end­ur­bætur á frönskum efna­hag en var á sama tíma kall­aður „pres­ident bling bling“ fyrir hégóma­girni sína.

Það er erfitt að snúa aftur í stjórn­mál eftir að hafa sagt skilið við þau. Það er gömul saga og ný. Þegar Napóleon sneri aftur frá Elbu eftir útlegð sína reynd­ist það feigð­ar­för. End­ur­koma Churchill var síður en svo glæsi­leg og svona mætti lengi telja. Leið­toga­krísa, fjár­mála­hneyksli og jafn­vel til­vist­ar­kreppa hefur ein­kennt UMP flokk­inn síð­ast­liðin ár sem hefur ekki tek­ist að nýta sér óvin­sældir núver­andi rík­is­stjórnar til þess að auka sitt eigið fylgi. Þess vegna er kannski gagns­laust að stilla upp gömlum, föllnum for­ingja.

Flokkur sem þarf að byggja sig upp að nýju, end­ur­heimta fylgi sitt og jafn­vel end­ur­skil­greina sig þyrfti kannski frekar nýjan leið­toga, með nýjar og ferskar hug­myndir. Það er hæpið að Sarkozy sé endi­lega sá maður, en hver veit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár