Lánshæfi Japans versnar - Er landið á barmi djúprar kreppu?

Láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækið Moody's lækk­aði láns­hæf­is­ein­kunn rík­is­sjóðs Japans í morgun úr Aa3 í A1, eða um einn flokk. Þetta er fyrsta lækkun á láns­hæf­is­ein­kunn hjá stóru láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tækj­unum þremur, Fitch, Standard & Poor's og Moody's, frá því árið 2012. Þá versnuðu horfur hjá mörgum rík­is­sjóðum allt þar til seðla­bankar heims­ins gripu til sam­eig­in­legra aðgerða með fjárinn­spýt­ingum til að tryggja aðgengi fyr­ir­tækja að lánsfé.

Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, hefur sagt nýj­ustu hag­tölur í Japan hafa verið „sjokker­andi“ en hag­vöxtur á þriðja árs­fjórð­ungi þessa árs var nei­kvæður um 1,6 pró­sent sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Þá hafa örv­un­ar­að­gerðir jap­anska seðla­bank­ans ekki skilað árangri.

Meg­in­á­stæða lækk­unar á láns­hæfi Japans er sú að ekki hefur en verið gripið til trú­verð­ugra aðgerða til þess að bæta stöðu efna­hags­mála og tryggja betur fjár­hag rík­is­sjóðs, sam­kvæmt frá­sögn Wall Street Journal. Frétt­irnar hafa valdið titr­ingi á mörk­uðum og hafa áhyggjur af því að Japan og jafn­vel fleiri ríki séu að leið inn í djúpa kreppu.

Japan er eitt skuldug­asta ríki heims­ins með opin­berar skuldir rík­is­sjóðs upp á um 230 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu lands­ins sam­kvæmt upp­lýs­ingum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Japanska hag­kerfið er það þriðja stærsta í heim­inum, á eftir Banda­ríkj­unum og Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár