Hluturinn í Borgun var seldur með blessun bankaráðsins

Bankaráð Lands­bank­ans var með­vitað um söl­una á 31,2 pró­sent hlutnum í Borgun, fyrir 2,2, millj­arða króna, og að hann hefði ekki farið í gegnum form­legt sölu­ferli þar sem áhuga­sömum var boðið að bjóða í hlut­inn. Ráðið taldi engu að síður rétt að selja hluti á þeim for­sendum sem lagt var upp með, það er að selja ekki hlut­inn í gegnum opið og gagn­sætt sölu­ferli heldur bak við luktar dyr til þess fjár­festa­hóps sem hafði sýnt áhuga á því að kaupa hlut­inn. Lands­bank­inn hefur í yfir­lýs­ingu sagt, að þetta hefði verið gert að yfir­lögðu ráði, meðal ann­ars þar sem bank­inn hefur verið undir þrýst­ingi um að selja eign­ar­hlut­inn í fyr­ir­tæk­inu. Þess í stað voru við­skiptin kláruð eftir að Magnús Magn­ús­son, for­svars­maður Eign­ar­halds­fé­lags­ins Borgunar slf., sem keypti hlut­inn, hafði viðrað hug­mynd­ina um kaupin á hlutnum, í sam­starfi við stjórn­endur Borgunar, við Lands­bank­ann.

Lands­bank­inn er 98 pró­sent í eigu íslenska rík­is­ins.

Eins og Kjarninn greindi frá í frétta­skýr­ingu 27. nóv­em­ber fór stofn­fundur Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar slf. fram 23. októ­ber síð­ast­lið­inn, rúm­lega einum mán­uði áður en við­skiptin voru kláruð með samn­ingi, en til­kynnt var um þau með frétta­til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum 25. nóv­em­ber. Við­skiptin höfðu þó verið í und­ir­bún­ingi um nokk­urra mán­aða skeið sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, sem enn fremur herma að tölu­verð upp­stokkun sé framundan hjá greiðslu­korta­fyr­ir­tækj­unum hér á landi á næst­unni, bæði hvað varðar eign­ar­hald og rekstur.

Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans, vildi ekki tjá sig um mál sem snéru að við­skiptum með hlut­inn í Borgun þegar Kjarninn náði tali af honum í dag, og vís­aði til til­kynn­inga Lands­bank­ans um málið og á stjórn­endur Lands­bank­ans varð­andi frek­ari upp­lýs­ingar. Hann stað­festi þó að banka­ráðið hefði haft vit­neskju um við­skiptin og sam­þykkt þau áður en þau voru form­gerð með samn­ingi.

Stofnfé í A, B og C flokki


[caption id="attachment_1376" align="alignnone" width="720"] Lands­bank­inn er 98 pró­sent í eigu íslenska rík­is­ins, en starfs­menn bank­ans eiga um tvö pró­sent hlut.[/caption]

Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Þetta kemur fram í stofn­samn­ingi félags­ins sem Kjarninn hefur undir höndum. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borgunar slf. Eigendur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarninn hefur undir höndum. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stálskip ehf., þar sem Guðrún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­endur þess eru Einar Sveins­son og sonur hans Benedikt Ein­ars­son, í gegnum móð­ur­fé­lagið Charamino Holdings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sigvaldi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sigurþór Stef­áns­son er í for­svari, Eggson ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jakobína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sigríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spectabilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofnfundur í október


Samkvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðnum, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borgunar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Margrét Gunn­ars­dóttir.

Miklar takmarkanir


Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, lét hafa eftir sér í til­kynn­ingu vegna þess­ara við­skipta að sátt sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2008, hefði haft í för með sér miklar tak­mark­anir á aðkomu Lands­bank­ans að félag­inu. „Enn­fremur hefur það verið mark­mið sam­keppn­is­yf­ir­valda að aðeins einn banki sé hlut­hafi í hverju greiðslu­korta­fyr­ir­tæki á hverjum tíma. Þessi staða var óvið­un­andi fyrir Lands­bank­ann og því teljum við þetta vera far­sæla úrlausn fyrir bank­ann, félagið og nýja eig­endur,“ sagði Steinþór í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár