Norskur lögreglustjóri á móti vopnavæðingu vegna hryðjuverkaógnar

Norski lög­reglu­stjór­inn Arne Hammers­mark geldur var­hug við að norska lög­reglan vopna­væð­ist frekar vegna hót­anna ISIS sam­tak­anna, betur þekkt sem Íslamska ríkið. Ekki sé hægt að nota óljósar hót­anir hryðju­verka­sam­tak­anna sem afsökun fyrir því að vopna almenna lög­reglu­menn. Norski frétta­mið­ill­inn Dag­bla­det.no greinir frá mál­inu.

Norsk lög­reglu­yf­ir­völd ósk­uðu þess á dög­unum að almennir lög­reglu­menn yrðu vopn­aðir eftir almennt orð­aða hótun frá hryðju­verka­sam­tök­unum ISIS. Stjórn­völd í Noregi féllust á beiðni lög­reglu­yf­ir­valda og heim­il­uðu auk­inn vopna­burð lög­reglu­manna til fjög­urra vikna.

Óvanir vopnunum


Arne Hammers­mark, lög­reglu­stjóri í Gudbrands­da­len, gagn­rýnir þetta mjög, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt Dag­bla­det. Hann segir almenna lög­reglu­menn ekki þjálf­aða til að bera skot­vopn dags dag­lega, þeir séu vanir því að vera óvopn­aðir og bregð­ast við aðstæðum í sam­ræmi við það.

Ef vopn­aðir ein­stak­lingar hóti lög­reglu eða öðrum sé því yfir­leitt reynt að fara út fyrir mesta hættu­svæðið og vopnum ekki beint nema aðstæður kalli á það. Gefa þurfi út sér­stakt leyfi til vopna­burðar og lög­reglu­menn fái þannig tíma til að und­ir­búa sig and­lega undir mögu­leg átök. Hammers­mark ótt­ast að lög­reglu­menn sem beri vopn dag­lega bregð­ist við slíkum aðstæðum með öðrum hætti, sem geti mögu­lega skapað meiri hættu fyrir þá og aðra.

Varhugaverð þróun, sem ekki verði svo glatt snúið við


Hammers­mark segir að umræðan um almennan vopna­burð lög­reglu þurfi að snú­ast um hvers­dags­legri hluti, eins og þá sem glími við geð­ræn vanda­mál eða glæpa­menn, frekar en það sem hryðju­verka­sam­tök í útlöndum segi hverju sinni. Ekki sé hægt að nota hót­anir þeirra sem afsökun til að vopna almenna lög­reglu­menn. „Við getum ekki tekið ákvörðun um vopna­burð út frá yfir­lýs­ingum IS-liða í Írak eða Sýrlandi,“ er haft eftir Hammers­mark í áður­nefndri frétt Dag­bla­det.

Þá telur Hammers­mark að erfitt gæti reynst að snúa þró­un­inni við, það er að afvopna almenna lög­reglu­menn, verði vopna­burður þeirra auk­inn.

Íslenska lögreglan vill vopn vegna hryðjuverkaógnar


Jón Bjartmarz, yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í sam­tali við mbl.is á dög­unum, að lög­reglan á Íslandi geti ekki leyft sér að horfa fram hjá vax­andi hættu af hryðju­verkum í Evrópu, meðal ann­ars vegna Íslamska rík­is­ins. Af þeim völdum vinni lög­reglan nú að grein­ar­gerð til inn­an­rík­is­ráð­herra um aukna þörf hennar fyrir vopn og búnað.

Eins og fram hefur komið ákvað Land­helg­is­gæslan að skila 250 MP5 hríð­skota­byssum aftur til norska hers­ins, eftir að her­inn fór fram á greiðslu fyrir byss­urnar. Fram að því hafði Land­helg­is­gæslan full­yrt að um gjöf frá norskum her­mála­yf­ir­völdum væri að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár