Héldu dreng inn í fölskum vegg í fjögur ár

Þrettán ára gam­all drengur, sem hafði verið saknað í fjögur ár, fannst inn í fölskum vegg á heim­ili föður síns og stjúp­móður í Atlanta í gær. Frétta­stofa CNBC greindi frá mál­inu.

Lög­reglu­menn björg­uðu honum úr skelfi­legum aðstæðum, eftir að hafa fylgt vís­bend­ingum um að dreng­ur­inn væri á heim­il­inu. Eftir nokkra leit fannst hann inn í fölskum vegg, illa á sig kom­inn.

Á blaða­manna­fundi sem lög­reglan í Clayton sýslu í útjaðri Atlanta hélt í gær, kom fram að fimm ein­stak­lingar, tveir full­orðnir og þrír ung­lingar, væru í haldi vegna máls­ins og hefðu verið ákærðir, meðal ann­ars fyrir grimmd­ar­verk gagn­vart börnum. Þar á meðal er faðir drengs­ins og stjúp­móðir.

Faðir drengs­ins neit­aði að leyfa drengnum að fara aftur til móður sinnar árið 2010, og hefur frá þeim tíma verið saknað og ekk­ert til hans spurst. Lög­reglan efldi rann­sókn á hvarfi drengs­ins fyrir nokkrum mán­uðum síðan eftir að vís­bend­ingar bár­ust móður hans um að hann væri á lífi.

Á með­fylgj­andi mynd­bandi, frá blaða­manna­fundi lög­reglu í Clayton sýslu, sést dreng­ur­inn hitta móður sína og nána ætt­ingja eftir fjög­urra ára aðskilnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár