Kanadamaðurinn sem stýrir skrifstofu skoska þjóðarflokksins

Upp­gangur skoska þjóð­ar­flokks­ins frá ald­ar­mótum hefur verið eitt mesta ösku­busku­æv­in­týri stjórn­mál­anna. Flokk­ur­inn hefur náð hreinum meiri­hluta í Skotlandi, staðið fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Skotlands og er nú stærsti stjórn­mála­flokkur lands­ins þegar miðað er við skráða félaga. Flokk­ur­inn var afar nærri því að ná sjálf­stæð­is­kröf­unni í gegn í atkvæða­greiðsl­unni þó vin­sældir flokks­ins hafa raunar aldrei verið meiri en eftir að Skotar höfn­uðu sjálf­stæði í sept­em­ber. Síminn á skrif­stof­unum hringir stans­laust og á hinum end­anum er fólk sem vill ganga í flokk­inn.

Skotar fá einnig nokkur sæti á breska þing­inu í Westminster, nánar til­tekið 59 sæti. Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn er í dag með sex af þessum 59 sætum. Skoð­ana­kann­anir sýna að fjöldi þeirra muni aukast til muna þegar kosið verður til breska þings­ins á næsta ári. Þær bjart­sýn­ustu sýna skoska þjóð­ar­flokk­inn með allt af 50 af 59 sætum, þótt flestir stjórn­mála­skýrendur búist við því að nið­ur­staðan verði eitt­hvað hóf­legri.

Sá sem stýrir skrif­stofu skoska þjóð­ar­flokks­ins í Westminster, er starfs­manna­stjóri hans þar, er hins vegar ekki Skoti. Hann er Kanada­maður og heitir Luke Skipper. Síð­ast­lið­inn tæpa ára­tug­inn hefur hann verið lyk­il­þáttak­andi í ævin­týra­legum vexti stjórn­mála­afls sem miðar að því að auka sjálf­stæði, völd og áhrif þjóðar sem hann til­heyrir ekki.

Skipper er mik­ill Íslands­vinur og kemur reglu­lega hingað til lands. Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, sett­ist niður með honum og fór yfir þetta tíma­bil, hvað sé framundan í skoskum stjórn­málum, hvar sam­vinnu­fletir Skota og Íslend­inga liggja og hvernig Kanada­maður rambar inn í eina eld­fim­ustu sjálf­stæð­is­bar­áttu Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár