Ebólu-próf sem greinir sjúkdóminn á 15 mínútum í prófun

Vís­inda­menn í Senegal hafa þróað próf sem getur greint á fimmtán mín­útum hvort sjúk­lingur sé sýktur af ebólu-veirunni. Frétta­mið­ill­inn Quartz greinir frá mál­inu.

Prófið er með­færi­legt, knúið með sól­ar­raf­hlöðum, og mun ryðja úr vegi öðrum sein­virk­ari próf­unum með því að greina sjúk­dóm­inn á mun skemmri tíma. Prófið er sex sinnum fljót­ara að greina ebólu-smit en önnur próf, sem not­ast hefur verið við til þessa.

Þróun prófs­ins er í umsjón Pasteur stofn­un­ar­innar í Dakar, og er fjár­magnað að hluta af breskum stjórn­völdum.

Áreið­an­legt fimmtán mín­útna próf sem getur stað­fest ebólu­smit myndi vera mik­il­vægt vopn í bar­átt­unni við útbreiðslu sjúk­dóms­ins, þar sem sjúk­lingar geta verið greindir, ein­angr­aðir og með­höndl­aðir á sem skemmstum tíma. Fljót­virkt próf sem þetta, myndi auka lífslíkur smit­aðra og hindra frek­ari útbreiðslu sjúk­dóms­ins.

Vís­inda­menn hjá Pasteur stofn­un­inni munu á næstu vikum prófa grein­ing­ar­prófið hjá Ebólu-mið­stöð­inni í Gíneu. Til þessa hefur sjúk­dóm­ur­inn dregið 5.50o manns til dauða, þar af ríf­lega tólf hund­ruð bara í Gíneu.

Prófið hefur það fram yfir núver­andi próf sem not­ast er við, að hægt er að nota það í stofu­hita auk þess að vera með­færi­legt og smátt í smíðum. Þá gera sól­ar­raf­hlöð­urnar það að verkum að hægt er að nota prófið á afskekktum svæðum, þar sem raf­magn er af mjög skornum skammti eða bara alls ekki til staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár