Framsókn í Reykjavík á móti stefnu Framsóknar í ríkisstjórn

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, segir það óttækt að Reyka­vík­ur­borg byggi til­lögu að kaupum á 500 félags­legum leigu­í­búðum á hug­myndum verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála, sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, skip­aði. Hún greiddi því ein borg­ar­full­trúa atkvæði gegn til­lög­unni þegar hún var lögð fram í borg­ar­ráði í gær. Borg­ar­full­trúi Fram­sóknar er því ósam­mála til­lögu sem byggja á hug­myndum sem flokks­systir hennar og rík­is­stjórn flokks hennar bera á ábyrgð á að móta.

Sérstök aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar


Í borg­ar­ráði í gær lagði Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri fram til­lögu um að áætlun um upp­bygg­ingu 500 félags­legra leigu­í­búða, á næstu fimm árum í Reykja­vík, yrði sam­þykkt. Áætlunin byggir á nið­ur­stöðu verk­efna­stjórnar um fram­tíð­ar­skipan félags­legra hús­næð­is­mála, sem skil­aði af sér skýrslu í maí 2014. Verk­efna­stjórnin var skipuð af Eygló Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Eygló er ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins og áætlun verk­efna­stjórn­ar­innar er liður í sér­stakri aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórnar Íslands, sem lýtur for­sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem er ætlað að „taka á skulda­vanda heim­ila á Íslandi og til að tryggja stöð­ug­leik og gagn­sæi á hús­næð­is­lána­mark­aði til fram­tíðar“.

[caption id="attachment_8962" align="alignnone" width="1024"] Eygló Harð­ar­dóttir,
félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.[/caption]

Í skýrslu verk­efna­stjórn­ar­innar, sem Eygló skip­aði, var meðal ann­ars lagt til að „í stað nið­ur­greiddra vaxta komi til 25% stofn­fram­lag til félags­legs hús­næðis. Að auki komi a.m.k. 10% stofn­fram­lag frá sveit­ar­fé­lögum. Með þessum hætti er talið að leigu­verð í félags­legu hús­næði geti lækkað um 10–20%.“

Í áætl­un­inni sem Dagur lagði fram í borg­ar­ráði í gær er gert ráð fyrir að Reykja­vík­ur­borg leggi til 10 pró­sent eigið fé í kaup á íbúð­unum 500 og að ríkið leggi til 20 pró­sent. Sex borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Vinstri grænna, Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins sam­þykktu áætl­un­ina.

Framsókn á móti Framsókn


Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina, sem situr í borg­ar­ráði greiddi ein atkvæði á móti þess­ari til­lögu og lagði fram bókun þar sem segir: „Fögnum við því að Reykja­vík­ur­borg sé búin að gera til­lögu um upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis og styðjum við hana sem slíka, en vegna aðferð­ar­fræð­innar sem fram kemur í grein­ar­gerð getum við ekki sam­þykkt til­lög­una eins og hún er sett fram, með eft­ir­far­andi rök­stuðn­ingi: Ótækt er að Reykja­vík­ur­borg byggi til­lögu sína um kaup á 500 félags­legum leigu­í­búðum næstu 5 árin á þeirri for­sendu að Reykja­vík­ur­borg leggi til 10% eigið fé í kaupin og ríkið leggi til 20% eigið fé í kaupin, í sam­ræmi við hug­myndir um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála. Verður að gera þær kröfu til stjórn­valds að það fari eftir gild­andi lögum og reglum í verk­efnum og áætl­ana­gerð sinni, eins og lög, fag­legt verk­lag og 2. gr. siða­reglna kjör­inna full­trúa Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir, en þar segir „Í störfum sínum er kjör­inn full­trúi bund­inn af lögum, reglum og sam­þykktum Reykja­vík­ur­borgar“ og „Kjörnir full­trúar hafa ávallt í heiðri grund­vall­ar­reglur góðrar stjórn­sýslu í störfum sínum“. Getur Reykja­vík­ur­borg ekki ákveðið hvernig fjár­lög verða næstu 5 árin og byggt stefnu sína á því og er því stefnan því miðuð við fram­an­greint ómögu­leg í fram­kvæmd. Við gerum þær kröfu að við áætl­ana­gerð og til­lögur sé farið að gild­andi lögum og reglum við yfir­lýs­ingar og stefnu­mörkun Reykja­vík­ur­borgar. Um 850 manns eru á biðlista eftir félags­legum leigu­í­búðum þar af um 550 manns í brýnni þörf. Tillagan um fjölgun almennra félags­legra leigu­í­búða um 500 á næstu 5 árum, sem byggir ekki á gild­andi lögum eða heim­ild í fjár­lögum og er því ómögu­leg í fram­kvæmd per se, dugar ekki til að mæta þeirri þörf sem er til staðar í dag. Ljóst er að þarfa­grein­ing vel­ferð­ar­sviðs, sem til­lagan bygg­ist á, á ekki við rök að styðj­ast.“

Þar með er full­trúi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í borg­ar­ráði ósam­mála því að upp­bygg­ing á félags­legum leigu­í­búðum í Reykja­vík sé í sam­ræmi við hug­myndir um fram­tíð­ar­skipan hús­næð­is­mála, sem ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins ber ábyrgð á og rík­is­stjórnin stendur á bak­við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár