Kaupþing hafnar ásökunum Tchenguiz sem vill 430 milljarða

Slita­stjórn Kaup­þings og Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í henni, hafna ásök­unum sem Vincent Tchenguiz hefur borið á þá og segja þær með öllu hald­lausar. Vincent Tchenguiz til­kynnti í gær að hann hefði höfðað mál gegn slita­búi Kaup­þings, Jóhann­esi Rúnari, breska end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton og tveimur strafs­mönnum þess vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir þegar efna­hags­brota­deild bresku lög­regl­unnar, Serious Fraud Office (SFO), rann­sak­aði lán­veit­ingar til hans og bróður hans, Robert Tchenguiz,sem var stærsti skuld­ari Kaup­þings við fall bank­ans. Vincent Tchenguiz fer fram á 2,2 millj­arða punda, um 430 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna þess tjóns. Málið verður höfðað fyrir breskum dóm­stólum.

Í til­kynn­ingu á heima­síðu slita­bús Kaup­þings kemur fram að þrátt fyrir að upp­lýs­ingar um máls­höfð­un­ina hafi verið sendar fjöl­miðlum hafi hvorki Kaupþing né Jóhannes Rúnar fengið upp­lýs­ingar eða gögn um kröf­urnar og því sé þeim ómögu­legt að taka afstöðu til máls­ins í smá­at­riðum. „Það er ekki stefna Kaup­þings að fjalla um ein­stök við­skipta­tengd mál­efni en þó má segja að þær ásak­anir sem hafa komið fram á hendur Kaup­þingi og Jóhann­esi Rúnari Jóhanns­syni hrl. eru með öllu hald­lausar“.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son, sem situr í slita­stjórn Kaup­þings.[/caption]

Sagði Kaupþing hafa hótað sér


Vincent Tchenguiz var hand­tek­inn í aðgerð SFO í mars 2011 vegna við­skipta félaga sem hann stýrir við Kaupþing. Robert bróðir hann var líka hand­tek­inn í tengslum við sömu rann­sókn. Í við­tali við grein­ar­höf­und, sem birt­ist í Frétta­blað­inu 21. júli 2012, sagði Tchenguiz að Kaupþing hefði hótað sér í aðdrag­anda hand­tök­unnar með því að segja að það væri „aðrar leiðir“ til að ná honum. Hann útskýrði ekki nánar hvaða leiðir það ættu að vera né vildi hann til­greina hver hefði lagt fram þessar hót­anir. Þar sagð­ist hann einnig telja að gögnin sem rann­sókn SFO hefði byggst á hafi, að minnsta kosti að hluta til, komið frá ráð­gjafa Kaup­þings, Grant Thornton.

Rannsókn SFO á Tchenguiz var hætt í júní 2011. Tchenguiz-bræð­urnir höfð­uðu í kjöl­farið mál á hendur SFO og kröfð­ust um 200 millj­óna króna, tæp­lega 1,4 millj­arða króna, í skaða­bætur vegna rann­sókn­ar­innar. Þeir komust síðar að sam­komu­lagi um bætur. Ekki hefur verið upp­lýst frekar um inni­hald þess sam­komu­lags.

Það er fjarri því eina sam­komu­lagið sem Vincent Tchenguiz hefur gert á und­an­förnum árum. Í sept­em­ber 2011 var greint frá því að hann hefði náð sam­komu­lagi við slitabú Kaup­þings um að falla frá öllum kröfum sínum á hendur þrota­bú­inu. Við það féllu fjöl­mörg einka­mál sem hann rak gegn búinu í Bret­landi og Íslandi niður, í þeim hafði sjóður í eigu Tchenguiz-fjöl­skyld­unnar metið kröfur sínar á hendur Kaup­þingi á um 1,5 millj­arða punda, um 290 millj­arða króna. Kaupþing hafn­aði öllum kröfum þeirra í búið. Í við­tal­inu frá því í júlí 2012 sagði Tchenguiz að hann mætti ekki tala neitt um inni­hald sam­komu­lags­ins, hann mætti ekki tala um hversu mikið hann teldi að Kaupþing hefði kostað sig né hvað sam­komu­lagið fól í sér fyrir Kaupþing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár