Knattspyrnugoðsögnin Pele liggur EKKI á gjörgæslu

Knatt­spyrnu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Edson Arantes do Nascimento, betur þekktur sem Pelé, var í dag færður á gjör­gæslu­deild sjúkra­húss í Sao Paulo, en hann var lagður inn á sjúkra­húsið fyrir þremur dögum vegna þvag­færa­sýk­ingar. Heilsu hans hefur hrakað mikið síðan, og því var hann færður til sér­stakrar aðhlynn­ingar á gjör­gæslu. Frétta­stofa AFP greinir frá mál­inu.

Pelé gekkst undir aðgerð fyrir tæpum tveimur vikum, þegar nýrna­steinar voru fjar­lægðir úr honum, en hann er 74 ára gam­all. Hann var útskrif­aður tveimur dögum síðar. Að sögn læknis, á The Albert Einstein heil­brigð­is­stofn­un­inni í Brasilíu, er ástand knatt­spyrnu­goð­sagn­ar­innar stöðugt. Honum eru nú gefin sýkla­lyf í æð. „Til að veita honum bestu mögu­legu með­höndlun, var tekin ákvörðun um að færa hann yfir á gjör­gæslu­deild“ er haft eftir lækn­inum. Engar upp­lýs­ingar fást upp­gefnar um hvenær Pele verður mögu­lega útskrif­aður af sjúkra­hús­inu.

Pele er af mörgum tal­inn einn besti knatt­spyrnu­maður heims fyrr og síðar, fyrir afrek sín með brasil­íska lands­lið­inu, sem og knatt­spyrnu­feril sinn þar sem hann skor­aði hátt í þrettán hund­ruð mörk í tæp­lega fjórtán hund­ruð leikjum. Hann skor­aði 77 mörk í 91 leik fyrir brasil­íska lands­liðið og varð heims­meist­ari með lið­inu í fyrsta skiptið árið 1958, þá sautján ára gam­all. Hann skor­aði tví­vegis í úrslita­leiknum gegn gest­gjöf­unum Svíum.

ATH! UPPFÆRT kl. 19:26


Eins og kemur fram hér að ofan byggði Kjarninn frétt sína á frétt AFP. Fjöl­miðlar segja nú að tals­maður Pelé að ástand knatt­spyrnu­hetj­unnar sé ekki eins slæmt og ensku­mæl­andi fjöl­miðar hafi gefið til kynna. Svo virð­ist sem að þýð­ing á heiti sjúkra­deild­ar­innar sem Pelé dvelst nú á, hafi eitt­hvað mis­farist í fjöl­miðlum. Það sé alls ekki gjör­gæslu­deild, heldur sé hann undir sér­stakri gæslu á sam­nefndri deild. Þá er haft eftir tals­manni Pelé að hann hafi fyrst og fremst verið fluttur á sjúkra­hús til að forð­ast ónæði, þar sem afar margir hafi viljað heim­sækja knatt­spyrnu­goð­sögn­ina.

Þá hefur frétta­stofa Reuters greint frá því að tals­maður sjúkra­húss­ins hafi borið til baka fréttir þess eðlis að Pelé sé á gjör­gæslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár