Sykur og samfélag

Í frum­varpi til laga um virð­is­auka­skatt og vöru­gjöld sem nú liggur fyrir Alþingi er lagt til að felldur verði niður skattur á við­bættan sykur og sætu­efni, svo­nefndur syk­ur­skattur.

Álagning syk­ur­skatts­ins þann 1. mars 2013 var skref í átt­ina að því að við­ur­kenna þann heilsu­fars­skaða sem hlýst af slæmu mat­ara­æði, en matar­æði er stærsti ein­staki áhættu­þáttur heilsu­fars­skaða Íslend­inga sam­kvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni (WHO).

Á sama tíma og íslensk stjórn­völd áforma að létta álögum af sykri hefur WHO gefið út nýjar leið­bein­ingar (mars 2014) um að enn verði hert á tak­mörk­unum á magni af sykri í mat­vælum úr 10% í 5% af orku­þörf – að stefna beri að helm­ingun á syk­ur­neyslu. Þetta magn sam­svarar 25 g af sykri á dag, eða 6 teskeiðum – en í 0,5 l gos­dós er um tvö­falt það magn.

Sakir sam­fé­lags­legs kostn­aðar og heilsu­fars­á­hrifa offitu og sjúk­dóma sem tengj­ast matar­æði er ofneysla syk­urs ekki alfarið einka­mál hvers og eins meðan sam­fé­lagið ber kostn­að­inn. Líkt og vegna ofneyslu áfengis og tóbaksneyslu er gjald­taka rétt­læt­an­leg og nauð­syn­leg.

Slæmt mataræði kostar samfélagið 5-20 milljarða á ári


Út frá fyr­ir­liggj­andi tölum má ætla að heild­ar­kostn­aður hins opin­bera hér á landi vegna slæms matar­æðis og offitu nemi milli kr. 5 og 20 ma. á ári:

  • Í skýrslu Háskól­ans á Bifröst sem gerð var fyrir heil­brigð­is­ráðu­neytið í nóv­em­ber 2008 kemur m.a. fram að þjóð­hags­legur sparn­aður af því að lækka með­al­þyngd lands­manna um 1 BMI-stig (létt­ast um ca. 3 kg) nemi um kr. 1 ma. á ári, eða kr. 1,5 ma. á verð­lagi dags­ins í dag.

  • Í meist­ara­prófs­rit­gerð Krist­ínar Þor­björns­dóttur í heilsu­hag­fræði var áætlað að beinn kostn­aður hins opin­bera vegna offitu hafi verið kr. 3 ma. hér á landi árið 2007, eða sem sam­svarar á fimmta millj­arði á verð­lagi dags­ins í dag – og þó lík­lega meiru, því offitu­vand­inn hefur auk­ist veru­lega frá 2007.

  • Sé tekið mið af vand­aðri sænskri rann­sókn sem út kom 2011, gæti kostnð­ur­inn verið enn meiri. Þar nam heild­ar­kostn­aður sænska trygg­inga­kerf­is­ins og heil­brigð­is­kerf­is­ins vegna offitu SEK 15 ma. árið 2003, eða 0,6% af vergri lands­fram­leiðslu, og gert er ráð fyrir 40 – 80% aukn­ingu fram til árs­ins 2020, sem heim­fært á Ísland væri ISK 15 ma. á ári nú – og samt erum við tölu­vert feit­ari en Svíar.

  • Loks má nefna tölur WHO, sem mælir glötuð góð æviár vegna ótíma­bærs dauða eða örorku. WHO telst svo til að um 7400 góð æviár glat­ist Íslend­ingum vegna mat­ar­a­ræðis, eða sem sam­svarar um kr. 38 ma. á ári sé miðað við lands­fram­leiðslu á mann – þótt vissu­lega verði aldrei hægt að kom­ast í veg fyrir allan heilsu­fars­skaða.


Lang­vinnir, lífs­stílstengdir sjúk­dómar valda 86% allra dauðs­falla í okkar heims­hluta. Vandinn er af þeirri stærð­argráðu að hann stendur í vegi fyrir hag­vexti og er að sliga heil­brigð­is­kerfið.

Með neyslu­stýr­ingu má draga úr neyslu óhollra fæðu­teg­unda en auka í stað­inn neyslu ávaxta og græn­metis. Óhófleg neysla syk­urs stuðlar að þeim offitu­far­aldri sem flest lönd búa við í dag. Offita og afleidd syk­ur­sýki er ein helsta und­ir­rót margra lang­vinnra sjúk­dóma. Það er því miki­vægt lýð­heilsu­m­ark­mið að draga úr syk­ur­neyslu þjóð­ar­innar. Góð leið til þess er syk­ur­skattur.

Íslendingar borða of mikinn sykur


Ársneysla Íslend­inga á sykri hefur verið nálægt 50 kílóum á mann á ári í langan tíma. Við­var­andi ofneysla syk­urs veldur sívax­andi þyngd þjóð­ar­innar. Ofneysla syk­urs ryður einnig í burtu holl­ari mat með „tómum kalor­íum“ úr sykrinum, sem eykur enn á vand­ann.

Í könn­un­inni Hvað borða Íslend­ingar 2010 – 2011 frá emb­ætti Land­læknis, kemur fram að 24,4% 18-30 ára karla og 13,4% kvenna drekka sykraða gos­drykki dag­lega, og þessar ungu konur fá 18,9% af orkunni úr við­bættum sykri og karl­arnir fá 16,1%. Eingöngu þeir sem drekka sykraða gos- og svala­drykki sjaldnar en tvisvar í viku fá að með­al­tali ekki of mik­inn sykur borið saman við 10%-hámarkið, og við eigum langt í land með að ná 5% sem WHO mælir nú með.

Í ofaná­lag notar WHO í dag víð­ari skil­grein­ingu á við­bættum sykri en tíðkast hefur á Íslandi, telur m.a. með sykur í hun­angi, sýrópum, ávaxta­söfum og ávaxta­þykknum. Við erum því ekki einu sinni að mæla allan þann sykur sem við erum að inn­byrða og fáum því lægri neyslu­tölur.

[quote font="0" align="right"]Íslend­ingar eru nú feitasta þjóð Evrópu með 74% karla og 61% kvenna í ofþyngd skv. grein­ingu á skýrslu WHO Global Burden of Disease 2013. [/quote]

Íslend­ingar eru nú feitasta þjóð Evrópu með 74% karla og 61% kvenna í ofþyngd skv. grein­ingu á skýrslu WHO Global Burden of Disease 2013. Þetta ástand er mjög hættu­legt. Samkvæmt grein í The Lancet þar sem teknar eru saman rann­sóknir á 900.000 manns í Norður-Ameríku og Evrópu og þeim fylgt eftir í að með­al­tali 8 ár, er kyrfi­lega sýnt fram á að lík­ams­þyngd­ar­stuð­ull yfir 25 (ofþynd­ar­mörk) teng­ist veru­lega auknum líkum á sjúk­dómum og dauða.

Sykur er glænýtt næringarefni í þróunarsögunni


Gegnum 200 þús­und ára þró­un­ar­sögu nútíma­manns­ins hefur sykur vart komið við sögu fyrr en á síð­asta árþús­und­inu í Evrópu og litlu fyrr í Aust­ur­löndum. Fyrst á 18. öld varð sykur algengur í Evrópu; fyrst sem lúx­usvara en svo á 19. öld sem nauð­synja­vara.

[quote font="0" align="right"]Líf­fræði­lega erum við ekki hönnuð til að þola sykur vel: Frúktós­inn í venju­legum sykri (súkrósa) melt­ist í lifr­inni líkt og alkó­hól, sem tekur tíma og heldur áfram að skila orku löngu eftir að við erum hætt að vera sólgin í sykur. [/quote]

Líf­fræði­lega erum við ekki hönnuð til að þola sykur vel: Frúktós­inn í venju­legum sykri (súkrósa) melt­ist í lifr­inni líkt og alkó­hól, sem tekur tíma og heldur áfram að skila orku löngu eftir að við erum hætt að vera sólgin í sykur. Þessi umframorka breyt­ast síðan í fitu – gjarnan kvið­fitu eða fitu­söfnun í lifur. Skiptir þá engu hvort um er að ræða hvítan sykur, hrá­sykur eða annan sykur. Syk­ur­inni­haldi í ávöxtum fylgja hins vegar trefjar og fjöl­mörg nær­ing­ar­efni sem gera mik­inn mun á að borða hann þannig eða drekka hann í formi gos­drykks, svo dæmi sé tekið.

Það er ekki nátt­úru­lega fitan í matnum sem orsakar offit­una. Hún þarf að vera til staðar til að veita nauð­syn­leg nær­ing­ar­efni og gefur hæga orku sem ekki örvar insúl­ín­sveiflur eins og hröðu kol­vetnin. Það er gegnd­ar­laust sykur- og sterkjuát sem fyrst og fremst hefur komið okkur í koll.

Skaðsemi sykurs og gervisætu


Sykur er tví­sykra sem sam­sett er úr ein­sykr­unum, glúkósa og frúktósa. Gildir þá einu hvaða nafni syk­ur­inn nefn­ist – hrá­sykur, hun­ang, sýróp, safi, þykkni eða annað.

Allar frumur lík­am­ans kunna að nota glúkóksa (þrúgu­sykur) og við fáum glúkós­ann fyrst og fremst úr öllum korn­vörum og plöntum. Ekkert vanda­mál hér.

Hinn helm­ing­ur­inn af sykrinum, frúktós­inn (ávaxta­syk­ur­inn) er hins vegar hinn mesti skað­valdur þegar hann er inn­byrtur í miklum mæli, svo sem í sykruðum drykkjum, sæl­gæti eða mat með við­bættum sykri.

Frúktóksi veldur insúl­ínó­næmi sem eykur hættu á syk­ur­sýki og stuðlar að fitu­söfnun, marg­vís­legri brenglun í seddu­stjórnun, og sykur veldur jafn­vel fíkn hjá sumum ein­stak­lingum. Í sam­an­burði við glúkósa ýti frúktósi (ávaxta­sykur) undir hækkun blóð­fitu og eykur nýmyndun fitu, sem leiðir til hærri lík­ams­þyngdar og auk­innar kvið­fitu.

Jafnvel gervi­sykur getur haft sam­bæri­leg skað­leg áhrif á ofan­greind ferli. Ný rann­sókn sem birt var í Nature um skað­semi sætu­efna sýnir að gervi­sykur (sakkarín, súkralósi og asp­artam) hefur áhrif til brenglaðs syk­ur­þols, þ.e. for­stigs syk­ur­sýki. Nið­ur­stöð­urnar eru slá­andi og byggðar til­raunum bæði á dýrum og mönnum.

[caption id="attachment_13046" align="alignnone" width="608"] Líf­fræði­lega erum við ekki hönnuð til að þola sykur vel: Frúktós­inn í venju­legum sykri (súkrósa) melt­ist í lifr­inni líkt og alkó­hól, sem tekur tíma og heldur áfram að skila orku löngu eftir að við erum hætt að vera sólgin í sykur.[/caption]

Banda­ríski inn­kirtla­sér­fræðin­ur­inn og lækn­ir­inn Robert H. Lustig lýsir því hvernig það er sam­bæri­legt álag á lifr­ina að drekka sykrað gos og sama magn af bjór („soda is beer without the buzz.“).

Fyrir þá sem vilja sökkva sér ofan í fræðin má benda á langanenda á fræði­legan (og langan) fyr­ir­lestur Robert H. Lustig, Sugar: The Bitter Truth.

Öllu aðgengi­legra efni fyrir almenn­ing má sjá í nokk­urra mín­útna fræðslu­myndum sem nefn­ast The Skinny on Obesity frá Uni­versity of California San Francisco og fjalla um matar­æði og sykur, sem og einkar slá­andi frétta­skýr­ingu frá kanadíska rík­is­sjón­varp­inu CBC, The Secrets of Sugar.

Íslenski sykurskatturinn


Það þarf ekki að sann­færa mark­aðs­hyggj­andi fólk um þá stað­reynd að verð hefur áhrif á eft­ir­spurn.

Sjálfur frum­kvöð­ull frjáls­hyggj­unnar Adam Smith nefnir sykur sem sjálf­sagðan skatt­stofn þegar hann kemst svo að orði í Auðlegð þjóð­anna: „Sugar, rum, and tobacco, are commodities which are nowhere necessaries of life, [but] which are ... objects of almost uni­ver­sal consumption, and which are ther­efore extrem­ely proper subjects of taxation.“

Þótt það hafi ekki farið ýkja hátt í umræð­unni er syk­ur­skatt­ur­inn á Íslandi sem nú stendur til að fella niður í raun val­kvæður, þannig að fram­leið­endum og inn­flytj­endum er áfram heim­ilt að greiða vöru­gjöld skv. almennum vöru­flokkum og sleppa því ein­fald­lega að reikna syk­ur­inni­haldið. Þetta kerfi umb­unar þeim sem leit­ast við að nota lít­inn sykur í vörur sínar, því þannig verður álagn­ingin lægri ef farin er syk­ur­skatts­leiðin.

Inn­lendum fram­leið­endum einnig kleift að sleppa við þá flækju sem útreikn­ingum og skýrslu­skilum fylgja, og kaupa ein­fald­lega aðföng til fram­leiðsl­unnar, þ.e. sykur eða sætu­efni með vöru­gjöldum, sem ekki fæst nið­ur­fellt eða end­ur­greitt.

Nú kann ein­hverjum að virð­ast snúið að ætla að fella niður almenn vöru­gjöld að ætla þá að und­an­skilja sykur. Það væri hins vegar ekk­ert eins­dæmi. Það stendur nefni­lega til að við­halda vöru­gjöldum af öku­tækjum, elds­neyti, áfengi og tóbaki svo fátt eitt sé nefnt.

Vöru­gjöld af sykri eiga full­kom­lega rétt á sér sem for­vörn og tekju­stofn á móti útgjöldum sem hljót­ast af ofneyslu syk­urs.

Neyslustýring með sköttum virkar


Ein athygl­is­verð­asta vís­inda­grein síð­ari ára um skatt­lagn­ingu á inni­halds­efni mat­væla birt­ist hjá National Bureau of Economic Research í jan­úar 2014.

Í rann­sókn­inni var sannað að áhrif skatt­lagn­ingar á nær­ing­ar­efni mat­væla (ekki aðeins á vör­urnar sjálfar eða vöru­flokk­ana), með því að fram­kvæma nákvæma grein­ingu á inni­halds­efnum ein­stakra teg­unda mat­vara í alls 123 milljón inn­kaupum hjá banda­rískum neyt­endum. Nið­ur­staðan er að skattur á inni­halds­efni (þ.e. syk­ur­skattur) sé mun áhrifa­meiri en skattur á vöru­flokka (þ.e. vöru­gjöld eða virð­is­auka­skattur), án auk­ins heild­ar­kostn­aðar fyrir neyt­endur.

Hér heima hefur komið fram það rök­studda og skýra við­horf Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, að neyslu­stýr­ing með skatt­lagn­ingu sé áhrifa­rík leið til að tak­marka neyslu óhollra vara, bæta heilsu og draga úr útgjöldum, m.a. sköttum eða vöru­gjöldum á sykraða gos­drykki. Slík verð­hækkun getur haft áhrif þar sem þörfin er brýn­ust, þ.e. hjá börnum og ung­mennum og öðrum þeim sem drekka mest af gos­drykkjum.

Óþarft ætti að vera að minna á að neyslu­stýr­ing á skað­væn­legum neyslu­vörum hefur verið lengi við lýði hvað varðar áfengi og tóbak, og virkar enn betur ef hún helst í hendur við öfl­ugt fræðslu- og for­varn­ar­starf.

Staða mála á Norðurlöndum


Í Danmörku hefur skattur á gos, ís, sæl­gæti og ýmist sæta­brauð verið við lýði síðan 1922, og í núver­andi formi síðan 1998. Rangt er, sem haldið hefur verið fram af sykur­iðn­að­inum hér á landi, að fallið hafi verið frá syk­ur­skatti í Danmörku. Hið rétta er, að við fjár­laga­gerð vegna 2013 var samið um að falla frá eða fresta fyr­ir­hug­aðri útvíkkun á syk­ur­skatt­inum ásamt fyr­ir­hug­uðum reglum um skatt á harða fitu sem taka áttu gildi 1. jan­úar 2013. Dönsku lögin taka eftir sem áður til syk­ur­inni­halds í fjöl­mörgum vörum, allt frá sæl­gæti og kexi yfir í kókó­mjólk og -duft:

[quote font="0" align="right"]Í Noregi hefur verið í gildi skattur á gos og sæl­gæti síðan 1981, og sér­stakur skattur á súkkulaði og syk­ur­vörur síðan 1922.[/quote]

Í Noregi hefur verið í gildi skattur á gos og sæl­gæti síðan 1981, og sér­stakur skattur á súkkulaði og syk­ur­vörur síðan 1922. Með sam­einaðri reglu­gerð árið 2001 var m.a. skattur á gos­drykki sem inni­halda við­bættan sykur færður á einn stað, og nemur fjár­hæð hans nú um ISK 70 pr lítra. Frá 1. jan­úar 2013 hækk­aði skattur á sykraða drykki, svo hálfs lítra flaska hækk­aði um sem nemur ISK 20. Í dag er gjald­takan í Noregi bæði beint á syk­ur­inn sjálfan og á pr. kíló sykraðrar vöru:

Í Finn­landi er þegar við lýði skattur á sykraða drykki, ís og sæl­gæti, en unnið er við að skoða hvers konar gjöld séu best til þess fallin að stýra neyslu á sykruðum vörum almennt.

Í Svíþjóð var síð­ast lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga í októ­ber 2012 um álagn­ingu syk­ur­skatts, en málið er ekki komið lengra á sænska þing­inu.

Sakir sam­fé­lags­legs kostn­aðar og heilsu­far­á­hrifa offitu og sjúk­dóma sem tengj­ast matar­æði er ofneysla syk­urs ekki alfarið einka­mál hvers og eins meðan sam­fé­lagið ber kostn­að­inn. Líkt og vegna ofneyslu áfengis og tóbaksneyslu er gjald­taka rétt­læt­an­leg og nauð­syn­leg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár