Leggja til að átta virkjanir verði færðar í nýtingaflokk

Meiri­hluti atvinnu­vega­nefndar ætlar að leggja til að átta virkj­anir verða færðar úr bið­flokki í nýt­inga­flokk ramma­á­ætl­unar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Sjö af þeim átta eru Hvamms­virkjun, Urriða­foss­virkjun, Hólmsá, Haga­vatns­virkjun, Skrokkalda og Hagöngur 1-2. Þetta var ákveðið á fundi nefnd­ar­innar sem nú stendur nú yfir.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­að­ar­ráð­herra, sagði á Haust­fundi Lands­virkj­unnar á þriðju­dag að það væri full þörf á því að end­ur­skoða ramma­á­ætlun og færa fleiri kosti úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk. Í ræðu hennar kom fram að svo lengi sem óljóst væri hversu mikil orka væri til staðar hér­lendis verði Ísland ekki fýsi­legur kostur fyrir fjár­fest­inga­verk­efni. Ramma­á­ætlun hafi átt að veita þessi svör, en það hafi ekki orðið raunin.

Í ræðu sinni sagði Ragn­heiður Elín einnig: „Ég segi það hreint út. Ég tel vera fulla þörf á því að við förum út í nýja orku­vinnslu­kosti, til við­bótar við núver­andi raf­orku­fram­leiðslu, hvot sem er í vatns­afli, jarð­varma og vindi. Ég tel að rök­semdir séu til staðar til að færa fleiri virkj­un­ar­kosti úr bið­flokki í orku­nýt­ing­ar­flokk, á grund­velli þeirra gagna sem liggja fyrir úr fyrsta, öðrum og þriðja áfanga Ramma­á­ætl­unar. Og ég tel í þriðja lagi brýnt að haf­ist verði handa við und­ir­bún­ing þeirra virkj­un­ar­kosta sem eru í orku­nýt­ing­ar­flokki, í sam­ræmi við lög reglur“.

Ramma­á­ætlun er áætlun sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra leggur fram sem til­lögu til Alþingis eigi síðar en á fjög­urra ára fresti í sam­vinnu við þann ráð­herra er fer með orku­mál. Í ramma­á­ætlun eru hug­myndir um orku­nýt­ingu flokk­aðar í orku­nýt­ing­ar­flokk, vernd­ar­flokk eða bið­flokk. Fyrsta ramma­á­ætl­unin var sam­þykkt 14. jan­úar 2013. Hún nær til 67 virkj­un­ar­kosta en þar af voru 16 í orku­nýt­ing­ar­flokki, 31 í bið­flokki en 20 í vernd­ar­flokki. Verði til­laga meiri­hluta atvinnu­vega­nefndar að veru­leika munu þeir kostir sem verða í nýt­ing­ar­flokki verða 24 í stað 16.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár