Breskt félag hefur boðið 36,5 milljarða króna í allt hlutafé Promens

Fram­taks­sjóði Íslands og félagi í eigu Lands­bank­ans hefur borist bind­andi til­boð frá breska félag­inu RPC Group plc í allt hlutafé í plast­fram­leið­and­anum Promens. Til­boðs­verðið felur í sér að heild­ar­virði félags­ins sé 61,6 millj­arðar króna, 399 millj­ónir evra, og að virði hluta­fjár sé 36,5 millj­arðar króna, 236, millj­ónir evra, sem greið­ist í reiðufé við afhend­ingu, ef hlut­hafar sam­þykkja allir til­boð RPC. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Promens.

Promens hefur verið í eigu Fram­taks­sjóðs­ins, sem á 49,5 pró­sent hlut, og Lands­bank­ans, sem á 49,91 pró­sent hlut, síðan árið 2011. Fram­taks­sjóð­ur­inn er að mestu í eigu Lands­bank­ans og líf­eyr­is­sjóða lands­ins.

RPC er líkt og Promens alþjóð­legur fram­leið­andi plast­um­búða fyrir mat­væla­iðnað, neyt­enda- og iðn­að­ar­markað.

Höftin hindra alþjóðlegan vöxt


Hermann M. Þórisson, stjórn­ar­for­maður Promens hf., segir að Promens hafi metnað til að halda áfram upp­bygg­ingu félags­ins og færa starf­semi þess inn á nýja alþjóða­mark­aði í sam­starfi við núver­andi og nýja við­skipta­vini. „Í því haftaum­hverfi sem nú ríkir á Íslandi er vanda­samt að fjár­magna metn­að­ar­full mark­mið um alþjóð­legan vöxt. Ég styð hugs­an­legan sam­runa við RPC og tel að í honum felist gott tæki­færi fyrir félagið og starfs­menn þess og hyggst þess vegna mæla með til­boð­inu við hlut­haf­ana."

Herdís Dröfn Fjeld­sted, vara­for­maður stjórnar Promens og fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs­ins, seg­ist líta til­boðið jákvæðum augum og að hún hygg­ist mæla með því við stjórn sjóðs­ins. „Ég tel að rekstur RPC og Promens falli vel saman og að með sam­runa fyr­ir­tækj­anna yrði til sterkt félag sem gæti byggt á þeim trausta grunni og nýtt sér þau vaxt­ar­tæki­færi sem Promens hefur skapað sér á und­an­förnum árum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár