Íslenskur hugbúnaður dregur úr blindu hjá sykursjúkum

Íslenski hug­bún­að­ur­inn Ret­inaRisk, sem hjálpar sér­fræð­ingum að draga úr blindu tengdri syk­ur­sýki, hefur verið settur á markað í Banda­ríkj­unum. Það er íslenska sprota­fyr­ir­tækið Risk Medical Solutions sem þró­aði hug­bún­að­inn í nánu sam­starfi við íslenska og banda­ríska sér­fræð­inga á sviði augn­lækn­inga og syk­ur­sýki. Ret­inaRisk er ætlað að hjálpa þeim 32 millj­ónum Banda­ríkja­manna sem þjást af syk­ur­sýki við að stýra sjúk­dómi sínum betur og draga úr blindu tengdri honum.

[caption id="attachment_12856" align="alignnone" width="944"] Risk Medical Solutions hefur átt í samn­ings­við­ræðum við stórt banda­rískt trygg­inga­fyr­ir­tæki, sem tryggir 69 millj­ónir Banda­ríkja­manna, um sölu og dreif­ingu á hug­bún­að­inum.[/caption]

Í samningaviðræðum við bandarískt tryggingafyrirtæki


Risk Medical Solutions hefur átt í samn­ings­við­ræðum við stórt banda­rískt trygg­inga­fyr­ir­tæki, sem tryggir 69 millj­ónir Banda­ríkja­manna, um sölu og dreif­ingu á hug­bún­að­inum. Á næstu árum stendur einnig til að mark­aðs­setja og dreifa honum í Evrópu og Asíu, en ekk­ert sam­bæri­legt kerfi er til á mark­aðnum í dag.

[caption id="attachment_12854" align="align­right" width="150"] Ólafur Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Risk Medical Solutions[/caption]

Ólafur Pálsson, fram­kvæmda­stjóri Risk Medical Solutions, segir að hug­bún­að­ur­inn sé að koma á markað á hár­réttum tíma, enda stílar hann inn á þær breyt­ingar sem „The Affor­da­ble Care Act“, oft­ast kallað ObamaCare, er að inn­leiða í banda­rískt heil­brigð­is­kerfi. „Á næstu sex árum mun ein­stak­lingum sem þurfa á þjón­ustu sjón­fræð­inga að halda fjölga um 40 millj­ónir. Kerfið býður læknum upp á skil­virk­ari leiðir til með­ferðar sem og fræðslu­efni fyrir sjúk­linga. Þá má því segja að Ret­inaRisk muni hjálpa ein­stak­lingum við að stýra sínum sjúk­dómi betur og draga úr blindu tengdri syk­ur­sýki á meðal Banda­ríkja­manna.“

RetinaRisk í prófunum í tólf mánuði


Síð­ast­lið­inn fjögur ár hefur reikni­for­múlan sem stýrir áhættu­mati hug­bún­að­ar­ins farið í gegnum fjórar klínískar proafnir í Bret­landi, Danmörku, Hollandi og á Spáni og Ret­inaRisk hefur verið í próf­unum und­an­farna tólf mán­uði.

Hug­bún­að­ur­inn á að gefa læknum aukna getu til að fræða sjúk­linga um sína sjúk­dóma og að taka ákvarð­anir tengd­ara með­ferð þeirra. Ret­inaRisk veitir læknum einnig mögu­leika á því að senda skýrslur sín á milli um áhættu­mat sjúk­linga sem getur flýtt fram­halds­með­ferð hjá þeim til­tekna sjúk­lingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár