Kína stóreykur lánveitingar til Ástrala

Bank of China, stærsti banki Kína sem er jafn­framt í opin­berri eigu, hefur ákveðið að tvö­falda lán­veit­ingar til Ástrala, einkum þeirra sem standa í hús­næð­is­kaupum. Ástæðan er vax­andi eft­ir­spurn í Ástralíu og síðan mik­ill áhugi hjá kín­verskum stjórn­völdum þegar kemur að Ástralíu. Kín­verskir fjár­festar og opin­ber kín­versk fyr­ir­tæki hafa á und­an­förnum árum verið að auka fjár­fest­ingar sína í Ástralíu veru­lega, ekki síst í land­ar­eignum og land­bún­aði.

Shanjun Hu, einn stjórn­enda Bank of China, segir í við­tali við Bloomberg að ástr­alski mark­að­ur­inn þurfi á fjárinn­spýt­ingu að utan að halda og það sé hennar von að í fram­tíð­inni muni fólk leita til Bank of China með sín banka­við­skipti.

Commonwealth Bank of Australia er með stærstu hlut­deild hús­næð­is­lána á ástr­alska mark­aðnum, en hann er sam­bæri­legur við Íbúa­lána­sjóð hér á landi að mörgu leyti, það er að bank­inn hefur félags­legt hlut­verki og er að mestu í opin­berri eigu. Hlut­deild hans, og þriggja ann­arra ástr­a­laska banka, nemur um 80 pró­sent af heild­inni.

Kín­verjar hafa tekið framúr Banda­rískum fjár­festum sem stærstu erlendu fjár­fest­arnir í Ástralíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár