Lögreglustjórar segja að Sigríður hafi ekki þurft að efast um umboð Gísla

Lög­reglu­stjóra­fé­lag Íslands segir að lög­reglu­stjórar líti ekki svo á að efast þurfi um umboð starfs­manna inn­an­rík­is­ráðu­neytis til sam­skipta við þá. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu sem Halla Bergþóra Björns­dóttir, sýslu­maður á Akranesi og for­maður félags­ins, sendi rétt í þessu á fjöl­miðla. Tilefnið er frétta­flutn­ingur um grein­ar­gerð um hæl­is­leit­and­ann Tony Omos sem Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, þá lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum en nú lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, sendi Gísla Frey Val­dórs­syni, þáver­andi aðstoð­ar­manni Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra.

Sigríður Björk sendi grein­ar­gerð um Tony Omos til Gísla Freys þann 20. nóv­em­ber 2013 eftir að hann hafði beðið um hana. Und­an­farna draga hefur það víða verið dregið í efa hvort póli­tískt skip­aður aðstoð­ar­maður ráð­herra hafi umboð til að leita eftir slíkum gögnum, og hvort lög­reglu­stjórar megi afhenda mögu­lega umboðs­lausum aðstoð­ar­mönnum þau.

Í tilkynningu lögreglustjórafélagsins segir:


„Í fréttum und­an­farna daga um grein­ar­gerð, sem þáver­andi lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum sendi fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni inn­an­rík­is­ráð­herra um mál­efni hæl­is­leit­anda, hefur á því borið að sam­skipti lög­reglu­stjór­ans og aðstoð­ar­manns­ins vegna grein­ar­gerð­ar­innar hafa verið gerð tor­tryggi­leg. Er það gert með því að láta að því liggja að lög­reglu­stjór­inn beri með ein­hverjum hætti ábyrgð á aðkomu aðstoð­ar­manns­ins og því að hann vistaði ekki minn­is­blaðið í skjala­safni ráðu­neyt­is­ins. Af þessu til­efni vill stjórn Lög­reglu­stjóra­fé­lags Íslands koma eft­ir­far­andi á fram­færi.

Sam­skipti lög­reglu­stjóra og ráðu­neytis hafa verið og eru mikil; bæði form­leg, s.s. með bréfum, og óform­leg, s.s. með sím­tölum, og snerta þau sam­skipti alla þætti í starf­semi lög­reglu­emb­ætta, sem undir ráð­herra falla.

Sam­skipti lög­reglu­stjóra eru við alla starfs­menn ráðu­neytis án til­lits til stöðu þeirra innan ráðu­neyt­is­ins. Það ræðst af efni hvers erindis hver starfs­manna ráðu­neytis er í sam­skiptum við lög­reglu­stjóra. Í þessum sam­skiptum hefur það aldrei gerst að þurft hafi að efast um heim­ild starfs­manns ráðu­neytis til að eiga í sam­skiptum við lög­reglu­stjóra eða heldur að þau hafi með réttum hætti farið í skjala­safn ráðu­neyt­is­ins. Á þetta bæði við um emb­ætt­is­menn ráðu­neytis og aðstoð­ar­menn ráð­herra. Lög­reglu­stjórar líta ein­fald­lega svo á að ekki þurfi að efast um umboð starfs­manna ráðu­neytis til sam­skipta við lög­reglu­stjóra.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár