Leiðréttingin verður frádráttarbær en hindrar ekki frekari greiðslur

Leið­rétt­ing rík­is­stjórn­ar­innar, sem í felst 80 millj­arða króna greiðsla úr rík­is­sjóði til þess hóps sem var með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, mun drag­ast frá þeirri end­ur­greiðslu­kröfu sem mun skap­ast kom­ist Hæsti­réttur Íslands að það hafi ekki verið heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði. Við þá nið­ur­stöðu gætu allir lán­veit­endur þurft að borga til baka allan verð­bætur vegna bíla­lána, yfir­drátta og ann­arra verð­tryggðra neyt­enda­lána sem tekin hafa verið frá því að til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins var inn­leidd árið 1994. Fast­eigna­lán voru svo felld undir til­skip­un­ina árið 2000 og end­ur­greiðslur vegna þeirra frá þeim tíma myndu bæt­ast við.

EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að ekki sé heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala. Dóm­stóll­inn var beð­inn um að gefa ráð­gef­andi álit í máli Sævars Jóns Gunn­ars­sonar gegn Lands­bank­anum, sem höfðað hafði verið vegna verð­tryggðs neyt­enda­láns sem Sævar tók haustið 2008. Í nið­ur­stöð­unni segir einnig að það sé lands­dóm­stóls að meta hvaða áhrif það hafi að gefa rangar upp­ýs­ingar um heild­ar­lán­töku­kostnað og hvaða úrræðum sé hægt að beita til að bæta fyrir þær upp­lýs­ingar. Sá lands­dóm­stóll verður á end­anum Hæsti­réttur Íslands.

[caption id="attachment_12781" align="alignnone" width="613"] EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að ekki sé heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala.[/caption]

Þiggjendur Leiðréttingar fyrirgera ekki rétti sínum


Bráðlega verður byrjað að greiða út allt að 80 millj­arða króna til afmark­aðs hóps sem fellur innan skil­grein­ingar rík­is­stjórn­ar­innar á því að hafa orðið fyrir for­sendu­bresti vegna hækk­andi verð­bólgu frá byrjun árs 2008 og fram til loka árs 2009.

Samkvæmt þess­ari leið munu þau íslensku heim­ili sem fá skulda­nið­ur­fell­ingu fá allt að fjórar millj­ónir króna hvert inn á höf­uð­stól lána sinna og fá þá upp­hæð greidda á næstu árum.

Ef nið­ur­staða Hæsta­réttar Íslands í verð­trygg­ing­ar­mál­inu verður sú að lán­veit­endur eigi að end­ur­greiða verð­bætur, verð­tryggðra lána til lán­tak­enda þýðir það að hund­ruðir, ef ekki þús­undir, millj­arða króna munu fara frá ríki, fjár­mála­fyr­ir­tækjum og líf­eyr­is­sjóðum til ein­stak­linga.

[quote font="0" align="right"]Þau heim­ili sem þiggja Leið­rétt­ing­una munu ekki fyr­ir­gera rétti sínum til að fá enn meira við þá nið­ur­stöðu.[/quote]

Þau heim­ili sem þiggja Leið­rétt­ing­una munu ekki fyr­ir­gera rétti sínum til að fá enn meira við þá nið­ur­stöðu. Því mætti líta svo á að hinar póli­tískt ákveðnu skulda­leið­rétt­ingar handa afmörk­uðum hópi, sem gengur líka undir nafn­inu Leið­rétt­ingin, verði frá­drátt­ar­bær frá nið­ur­fell­ingu verð­trygg­ing­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár