Sigmundur Davíð boðar tíðindi í haftamálum og stóraukin útgjöld

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra boðar stór­aukin fram­lög til ýmissa mála­flokka í byrjun næstu viku. Þetta fjár­magn sé til­komið vegna svig­rúms sem skap­ist við upp­gjör slita­búa gömlu bank­anna sem þegar sé byrjað að mynd­ast með skatt­lagn­ingu sem nemi tugum millj­arða króna á ári. Sig­mundur segir einnig telja megi lík­legt að „það dragi enn frekar til tíð­inda í hafta­málum áður en langt um líður“. Þetta kom fram í ræðu Sig­mundar sem hann flutti á haust­fundi mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins sem hald­inn er á Höfn í Horn­ar­firði í dag.

Svigrúmið að myndast


Í ræð­unni vék Sig­mundur meðal ann­ars að upp­gjöri slita­búa bank­anna. Þar sagði hann að „svig­rúmið marg­um­rædda vegna upp­gjörs slita­búa bank­anna, sem eru í eigu kröfu­haf­anna marg­um­ræddu, er þegar byrjað að mynd­ast með skatt­lagn­ingu sem nemur tugum millj­arða á ári og telja má lík­legt að það dragi enn frekar til tíð­inda í hafta­málum áður en langt um líður.“

Hann ræddi einnig breyt­ingar á fjár­lögum og fyr­ir­hug­aða aukn­ingu á fram­lögum til ýmissa mála­flokka. Orðrétt sagði Sig­mundur:„Nú í byrjun nýrrar viku munum við sjá að traust­ari stoðum verður rennt undir fjöl­mörg mik­il­væg verk­efni og stofn­anir rík­is­ins. Þannig munu heil­brigðis- og mennta­stofn­anir fá aukin fram­lög en einnig aðrar grunn­stoðir eins og Land­helg­is­gæslan og mik­il­væg verk­efni á borð við lýð­heilsu­á­tak og byggða­mál.”

Segir framlög til Landsspítala verða þau hæstu frá 2008


Um breyt­ingar á skatt­kerf­inu til­kynnti Sig­mundur að nauð­syn­leg lyf muni lækka í verði: “Þegar allt er talið á mat­væla­verð ekki að hækka vegna breyt­ing­anna um nema í mesta lagi um 1,4% og helst ekki neitt. Flestar vörur munu lækka í verði og nauð­syn­leg lyf alveg sér­stak­lega. Heild­ar­á­hrif breyt­ing­anna þýða að neyslu­skattar lækka veru­lega og, það sem er mik­il­væg­ast, áhrifin verða mest hjá þeim tekju­lægstu.”

Að end­ingu vék hann að stöðu heil­brigð­is­kerf­is­ins og að sagði að nú sér gert ráð fyrir að á næsta ári verði fram­lög til Lands­spít­al­ans verði þau mestu sem þau hafa verið frá hru­nár­inu 2008, bæði í krónu­tölu og að raun­virði.

Allt að 35 prósent útgönguskattur


Kjarninn greindi nýverið frá því að vænt­ingar eru til þess að áætlun um afnám fjár­magns­hafta verði kynnt á allra næstu vikum. For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­innar hafa gefið það sterkt í skyn að und­an­förnu og á meðal kröfu­hafa fall­ina íslenskra banka er búist við því að skil­yrði fyrir sam­þykkt á nauða­samn­ingum þeirra verði kynnt mjög fljót­lega, mögu­lega í síð­ustu viku nóv­em­ber­mán­aðar.

Heim­ildir Kjarnans herma að búist sé við að um verði að ræða svo­kall­aðan flatan útgöngu­skatt á eignir þrota­bú­anna. Ef kröfu­hafar vilji út þurfi þeir að greiða flatan skatt af öllu fjár­magni sem þeir fái að fara með út úr íslensku efna­hags­kerfi. Samhliða verði kynntar hug­myndir um hvernig leyst verði úr eign­ar­haldi Íslands­banka og Arion banka, sem í dag eru báðir í eigu erlendra kröfu­hafa.

Morg­un­blaðið greindi skömmu síðar frá því að hug­myndir væru uppi um að láta skatt­inn vera 35 pró­sent. Það myndi þýða að rík­is­sjóður gæti átt von á 300 til 500 millj­örðum króna ef áætl­unin gengur upp. Ljóst er þó að kröfu­hafar slita­bú­anna muni reyna að berj­ast gegn slíkum útgöngu­skatti og að und­ir­bún­ingur fyrir þann slag er þegar hafin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár