Áfengisneysla Íslendinga: Minna magn en drykkjan óhóflegri

Íslend­ingar drekka árlega minna magn af áfengi en flestar aðrar Evr­ópu­þjóðir. Óhófleg drykkja er engu að síður algeng­ari á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum. Þetta sýna gögn Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, um áfeng­is­neyslu og áfeng­is­hegðun þjóða heims­ins árið 2010.

Aðeins níu Evr­ópu­þjóðir drekka minna magn af áfengi en Íslend­ingar, af þeim 46 ríkjum sem hér eru borin saman. Lands­menn drekka um helm­ing­inn af því magni sem Hvít-Rússar inn­byrða, en þeir eru Evr­ópu­met­hafar sam­kvæmt gögnum WHO yfir heild­ar­neyslu áfengis.

[quote font="0" align="right"]Íslend­ingar eru á allt öðrum stað þegar borið er saman hlut­fall „óhóf­legrar áfeng­is­neyslu“ milli land­anna, mælt meðal þeirra sem drekka áfengi yfir höfuð. Þessi mæli­kvarði kall­ast á ensku „heavy episodic drink­ing“, einnig kallað „binge drink­ing“. Á Íslandi hefur fyr­ir­bærið stundum verið kallað „að fara út og skemmta sér“[/quote]

Íslend­ingar eru á allt öðrum stað þegar borið er saman hlut­fall „óhóf­legrar áfeng­is­neyslu“ milli land­anna, mælt meðal þeirra sem drekka áfengi yfir höfuð. Þessi mæli­kvarði kall­ast á ensku „heavy episodic drink­ing“, einnig kallað „binge drink­ing“. Á Íslandi hefur fyr­ir­bærið stundum verið kallað „að fara út og skemmta sér“. Íslend­ingar skipa 14. sæti, sé lönd­unum raðað eftir því hversu algengt það er að áfengis sé neytt óhóf­lega. Í efsta sæti sitja Litháar.

Drekkum við allt í einum rikk?


Myndin hér fyrir neðan sýnir ann­ars vegar með­al­tal áfeng­is­neyslu Evr­ópu­ríkj­anna, talið í lítrum af hreinu alkó­hóli, og hins vegar hversu algengt það er að áfeng­is­neyt­endur drekki óhóf­lega. Ísland er fyrir miðja mynd, hver íbúi yfir 15 ára aldri drakk að með­al­tali 6,3 lítra af hreinu alkó­hóli árið 2010 og um 35 pró­sent þeirra sem smakka áfengi yfir höfuð drukku óhóf­lega á síð­ustu 30 dögum.

[caption id="attachment_12601" align="alignnone" width="2210"] Áfeng­is­neysla og óhóf­leg áfeng­is­neysla Evr­ópu­þjóða 2010.[/caption]

Sam­an­burður á heild­ar­neyslu og óhóf­legri neyslu leiðir margt athygl­is­vert í ljós. Þannig sést hvernig íbúar Andorra (niðri, hægra megin á graf­inu) drekka næst mest allra. Fáar þjóðir eru þó eins hóf­samar í neyslu sinni. Hið sama er ekki hægt að segja um Litháa, Aust­ur­rík­is­búa, Íra og Tékka (uppi, hægra megin) sem drekka bæði mikið og oft úr hófi.

Níu þjóðir drekka minna magn af áfengi en Íslend­ingar og neytum við svipað mik­ils magns og íbúar Moldóvíu, Kasakstan, Noregs, Svart­fjalla­lands og Ítalíu. En sam­band magns og óhófs er síður en svo algilt. Eingöngu þrettán þjóðir drekka oftar úr hófi. Með öðrum orðum eru Íslend­ingar lík­legri en flestar aðrar þjóðir til þess að sturta ofan í sig áfeng­inu þegar þeir á annað borð fá sér.

Aldurstakmark hæst á Íslandi


Ísland er eina landið þar sem ekki er hægt að kaupa áfengi fyrr en eftir tví­tugt. Í flestum löndum Evrópu er ald­urs­tak­markið 18 ár og í tíu löndum er það ein­ungis 16 ár. Þess utan er Ísland í hópi fimm landa þar sem ein­ok­un­ar­mark­aður er um sölu áfengis. Hin löndin eru Moldóvía, Svíþjóð, Finnland og Noregur. Þau tvö síð­ast nefndu heim­ila þó frjálsa sölu bjórs, en ekki sterkara áfengis.

Það má velta fram spurn­ingum um hvort ald­urs­tak­mark eða frjáls sala á áfengi hafi áhrif á drykkju­venjur. Á súlu­rit­inu er búið að raða lönd­unum fyrst eftir ald­urs­tak­marki og síðan eftir neyslu.

[caption id="attachment_12602" align="alignnone" width="2200"] Áfeng­is­neysla og ald­urs­tak­mark til áfeng­is­kaupa 2010.[/caption]

Súlur land­anna fjög­urra sem heim­ila ekki frjálsa sölu eru dökk­bláar á lit­inn. Ísland er síðan lengst til hægri, gult. Að með­al­tali er neysla Evr­ópu­lands um níu lítrar alkó­hóls. Löndin sem heim­ila ekki frjálsa sölu áfengis, að Finn­landi und­an­skyldu, neyta áfengis undir með­al­tal­inu, eða á bil­inu 6 til 7,3 alkó­hóllítrum á ári.

[caption id="attachment_12603" align="alignnone" width="2147"] Óhófleg drykka og ald­urs­tak­mark til áfeng­is­kaupa 2010.[/caption]

Önnur mynd fæst þegar ald­urs­tak­mark­inu er stillt upp í sam­hengi við óhóf­lega neyslu. Óhófleg neysla er að með­al­tali um 27,4 pró­sent í Evrópu. Ólíkt því sem sást á mynd­inni á undan, þá eru fjögur af fimm ein­ok­unar-ríkj­unum yfir með­al­tal­inu, þar á meðal Ísland. Eingöngu Noregur eru undir með­al­tal­inu, þar sem óhóf­leg neysla mælist um 14 pró­sent. Á Íslandi, Finn­landi, Svíþjóð og Moldóvíu er hlut­fallið á bil­inu 34,5 til 53,7 pró­sent.

Önnur mesta bjórþjóðin


Síðasta myndin sýnir hvernig Evr­ópu­löndin skipta neyslu sinni eftir áfeng­is­teg­undum, þ.e. eftir bjór, létt­víni, sterku áfengi og „öðru áfengi“.

Súlurnar rað­ast í staf­rófs­röð og stendur bláa súla Íslands, bjór-súlan, einna hæst allra. Um 62pró­sent allrar áfeng­is­neyslu Íslend­inga er bjór­drykkja. Eina þjóðin sem neytir hlut­falls­lega meira af bjór eru Tyrkir. Aðrar bjór­þjóðir eru Pól­verjar (55,1 pró­sent), Þjóð­verjar (53,6 pró­sent) og Tékkar (53,5 pró­sent).

Það kemur ef til vill ekki á óvart að hlut­falls­lega drekka Ítalir mest af létt­víni, eða um 65,6 pró­sent af heild­ar­drykkju. Næst á eftir koma íbúar Kasakstan, síðan Frakkar, Portú­galir og Georg­íu­menn. Um eða yfir helm­ingur allrar áfeng­is­neyslu þess­ara þjóða er létt­vín. Íslend­ingar neyta langt því frá svo mik­ils létt­víns í hlut­falli af heild­ar­neyslu, en 21,2 pró­sent allrar áfeng­is­neyslu lands­manna er létt­vín.

Það er ekki ætl­unin að draga upp ster­íótýpíska mynd af áfeng­is­neyslu Evr­ópu­þjóða, en þau ríki sem neyta hlut­falls­lega mest af sterku áfengi eru Armenía, Bosnía og Herzegóvína, Moldóvía, Azerbaijan og Rússland. Af þessum löndum er neyslan lægst í Rúss­landi, ríf­lega 50 pró­sent, en hæst í Armeníu þar sem hlut­fallið er 84,9 pró­sent. Ísland er neð­ar­lega á lista, níu lönd drekka minna en við af sterku áfengi, og er hlut­fallið hér­lendis um 16,5 pró­sent.

Varlega ályktað


Rétt eins og með áfengið, þá er mik­il­vægt að nálg­ast gögnin og álykt­anir af þeim var­lega. Ýmislegt má lesa úr gögn­unum og sýnir fyrsta myndin til að mynda jákvætt sam­band milli áfeng­is­magns og óhóf­legrar neyslu. Engu að síður þá er slíkt sam­band langt því frá algilt. Ísland er ágætis dæmi um ríki þar sem þetta sam­band rofnar, inn­byrt magn er undir með­al­tali en óhóf­leg neysla er yfir með­al­tali.

[caption id="attachment_11746" align="alignnone" width="640"] Ísland er eina landið sem gagna­bank­inn nær til þar sem ekki er hægt að kaupa áfengi fyrr en eftir tví­tugt. Í flestum löndum Evrópu er ald­urs­tak­markið 18 ár og í tíu löndum er það ein­ungis 16 ár.[/caption]

Sömu sögu má segja um sam­an­burð á ald­urs­tak­marki ríkj­anna og neyslu íbú­anna, og einnig sam­an­burði á neyslu og frelsi áfeng­is­sölu. Af annarri mynd­inni má full­yrða að ríkin fimm sem stunda ein­okun (7,2 lítrar) drekki að með­al­tali minna en hin sem leyfa frjálsa sölu (9,3 lítrar). Það er þó ekki hægt að full­yrða að ein­ok­un­ar­sala leiði til eða valdi minni neyslu. Þriðja myndin sýnir síðan hvernig áfengis er oftar neytt óhóf­lega í þeim löndum sem ekki heim­ila frjálsa sölu. Aftur á móti er ekki hægt að full­yrða um að ein­ok­un­ar­salan leiði til eða valdi því að áfengis sé frekar neytt í óhófi. Fjöl­margir þættir aðrir en aldur og aðgengi ákvarða hvernig Evr­ópu­þjóðir fara með áfengi, bæði sögu­legir og félags­legir.

Gögnin sem stuðst var við voru fengin úr gagna­banka WHO. Þau eru fyrir árið 2010, nýj­ustu sam­an­burð­ar­hæfu gögnin sem eru opin­ber. Áfengi heyrir undir áhættu­flokk (risk factor) í starf­semi og gagna­öflun WHO. Aðrir áhættu­flokkar eru tóbak, lyf og fíkni­efni og geð­heilsa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár