Einungis fimm af 720 hlerunarbeiðnum hafnað á fimm ára tímabili

Á árunum 2009 til 2013 voru lagðar fram 720 beiðnir verið lagðar fram af lög­reglu um að fá að hlera sím­töl í málum sem hún hefur verið að rann­saka. Vegna þeirra voru gefnir út 715 úrskurðir þar sem heim­ild var veitt til hler­unar í alls 145 málum. Það þýðir að 99,3 pró­sent beiðna voru sam­þykktar af dóm­stólum. Þetta kemur fram í skrif­legu svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, sem var birt í dag.

Flestar beiðnir vegna rannsókna á fíkniefnabrotum


Lang­flestar heim­ildir til hler­unar á síma voru veittar vegna rann­sókna á fíkni­efna­málum, eða 463 tals­ins. 116 voru veittar vegna rann­sóknar á auðg­un­ar­brotum, 49 vegna rann­sóknar á efna­hags­brota­málum og 36 vegna rann­sóknar á kyn­ferð­is­brota­málum. Sím­hler­anir í öðrum brota­flokkum voru færri.

Lengst stóð hlerun yfir í 36 daga, og var hún vegna rann­sóknar á fíkni­efna­máli. Hleranir vegna rann­sóknar á efna­hags­brota­málum hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farin miss­eri vegna aðfinnsla lög­manna sak­born­inga í svoköll­uðum hrun­málum. Lengsta heim­ild til hler­unar í slíkum málum var í 28 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár