Ekki eining innan peningastefnunefndar um lækkun stýrivaxta

Einn nefnd­ar­maður í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands greiddi atkvæði gegn því að lækka stýri­vexti bank­ans í byrjun nóv­em­ber og vildi halda þeim óbreyttum. Fjórir nefnd­ar­menn greiddu atkvæði með til­lögu Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra um að lækka stýri­veti um 0,25 pró­sent en einn þeirra hafði „Þó heldur kosið að halda vöxtum óbreyttum að þessu sinni“. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar sem birt var í gær.

Stýri­vextir voru lækk­aðir í fyrsta sinn í um tvö ár þann 5. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þá voru vext­irnir lækk­aðir niður í 5,75 pró­sent. Þeir eru samt sem áður með þeim hæstu í hinum vest­ræna heimi.

Ekki tilgreint hver var á móti


Í fund­ar­gerð­inni kemur fram að sá nefnd­ar­maður sem greiddi atkvæði gegn lækk­un­inni hafi latið að „þrátt fyrir mik­inn árangur að und­an­förnu sner­ist vaxta­á­kvörðun hverju sinni um að hafa áhrif á þró­un­ina fram á við en ætti ekki að end­ur­spegla nýliðna þróun. Þótt gert væri ráð fyrir því að verð­bólga hjaðn­aði enn frekar á næst­unni væri, litið lengra fram á veg­inn, búist við að hún þok­að­ist aftur upp vegna verð­bólgu­þrýst­ings frá vinnu­mark­aði og minnk­andi slaka í þjóð­ar­bú­skapnum. Þótt lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar hefðu nú færst nær verð­bólgu­mark­miði bank­ans væri rétt að stíga var­lega til jarðar í ljósi sög­unnar og horfa á vinnu­mark­aði. Óvissan um verð­bólgu­horfur væri einnig heldur meiri upp á við“.

Nefnd­ar­menn í pen­inga­stefnu­nefnd eru Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, sem er for­maður nefnd­ar­innar, Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, Þórarinn G. Pét­urs­son aðal­hag­fræð­ingur, Gylfi Zoëga og Katrín Odds­dóttir. Ekki kemur fram í fund­ar­gerð­inni hver þeirra var á móti lækk­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár