Ævafornar lausnir á umhverfisvandamálum nútímans

Það vakti athygli í vik­unni þegar til­kynnt var um fyrsta samn­ing Kína og Banda­ríkj­anna um að tak­marka losun gróð­ur­húsa­loft­leg­unda. Ljóst er að þessi stærstu iðn­veldi heims hafa ærið verk fyrir höndum ef þau hyggj­ast koma böndum á orku­notkun sína – svo ærið að for­setar land­anna tveggja köll­uðu bein­línis eftir “orku­bylt­ingu” við tæki­færið.

Þeir félagar eru ekki þeir einu sem hafa áttað sig á að breyt­inga er þörf og í því verk­efni getur nátt­úran sjálf verið helsti banda­mað­ur­inn. Það er alla­vega skoðun æ stækk­andi hóps vís­inda­manna, með banda­ríska líf­fræð­ing­inn Janine Benyus í broddi fylk­ingar.

[caption id="attachment_12440" align="alignnone" width="1024"] Banda­ríski líf­fræð­ing­ur­inn Janine Benyus er í far­ar­broddi fylk­ingar vís­inda­manna sem telja að nátt­úran sjálf geti verið helsti banda­mað­ur­inn í bar­átt­unni gegn losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.[/caption]

Vís­inda­menn­irnir benda á að með því að nota nátt­úru­legar lausnir sem aðrar líf­verur hafa þróað með sér frá því að líf kvikn­aði á jörð­inni fyrir 3.8 millj­örðum ára megi minnka kolefn­is­út­blástur, fram­leiða orku án jarð­efna­elds­neytis og binda koldí­oxíð með skil­virk­ari leiðum en hingað til, svo eitt­hvað sé nefnt. Hegðun ann­arra líf­vera getur nefni­lega verið fyr­ir­mynd fyrir umhverf­is­vænar lausnir á mörgum þeim vanda­málum sem menn­irnir standa frammi fyrir. Lausnir sem eru áhuga­verðar, hag­nýtar og sjálf­bærar.

Kost­ur­inn við að nýta sér þær aðferðir sem aðrar líf­verur hafa til­einkað sér er t.d. sá að nátt­úru­leg ferli leiða til hringrásar í stað óhemju­mik­ils úrgangs. Þá nota líf­verur vatns­lausnir í stað meng­andi leysi­efna og fram­leiðslan fer fram við til­tölu­lega lágt hita­stig í stað orku­krefj­andi fram­leiðslu­ferla eins og oft­ast eru not­aðir í iðn­að­ar­sam­fé­lagi okkar.

Þessi hug­mynda­fræði kall­ast líf­hermun, eða á ensku biomimicry, sem dregið er af grísku orð­unum bios = líf og mimesis = eft­ir­hermun. Líf­hermun gengur út frá þeirri hug­mynd að nátt­úran sé inn­blástur fyrir vís­inda­menn, hönn­uði og verk­fræð­inga. Hún byggir á því að sam­vinna líf­fræð­inga og tækni­sér­fræð­inga leiði til þess að sú þekk­ing og tækni­kunn­átta sem við menn­irnir höfum áunnið okkur á síð­ustu hund­rað árum verði notuð til að yfir­færa millj­arða ára langa þróun lífs á jörð­inni í lausnir okkur til hags­bóta. Með öðrum orðum að mað­ur­inn til­einki sér nátt­úru­leg form, ferli og sam­skipti líf­vera í vist­kerfum í meira mæli en hingað til og að nátt­úran sé allt í senn fyr­ir­mynd, leið­bein­andi og mæli­kvarði (“model, mentor and mea­sure”) fyrir sjálf­bæra umhverf­is­væna hönnun. Horn­steinn líf­hermunar er að nota nátt­úr­una sem fyr­ir­mynd í stað þess að nýta ein­göngu auð­lindir hennar.

Tæknin í liði með náttúrunni


Upphaf líf­hermunar sem umhverf­is­hreyf­ingar markast af útgáfu bók­ar­innar Biomimicry: Innovation Inspired by Nature eftir Janine Benyus, sem kom út árið 1997. Í bók­inni lýsir Benyus þeirri sýn sinni að besti kost­ur­inn fyrir sjálf­bæra nýsköpun og tækninýj­ungar megi finna í ævafornum aðferðum og efna­ferlum sem þró­ast hafa hjá millj­ónum mis­mun­andi teg­unda, allt frá því að fyrstu örver­urnar komu fram á sjón­ar­sviðið.

Benyus leggur áherslu á að nútíma­sam­fé­lagið sé í æ rík­ari mæli komið úr sam­bandi við nátt­úr­una, hvort sem litið er á iðn­að­ar­rek­inn land­búnað eða meng­andi stór­iðn­að­ar­fram­leiðslu. Hinn stór­aukni fólks­fjöldi á heims­vísu og nútíma­hegðun hafi dregið stór­lega úr fjöl­breyti­leika líf­vera og aukið álag á við­kvæmum lífs­svæðum og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Því sé þörf á hug­ar­fars­breyt­ingu í þá átt að virða nátt­úr­una og læra af henni í stað þess að ganga á auð­lindir hennar.

[quote font="0" align="right"]Þessi við­horf eiga aug­ljós­lega rætur að rekja til ýmissa gras­rót­ar­sam­taka umhverf­is­sinna frá síð­ari hluta 20. ald­ar­innar þegar margir fóru að benda á skugga­hliðar tækni- og iðn­að­ar­væð­ingu vest­ur­landa.[/quote]

Þessi við­horf eiga aug­ljós­lega rætur að rekja til ýmissa gras­rót­ar­sam­taka umhverf­is­sinna frá síð­ari hluta 20. ald­ar­innar þegar margir fóru að benda á skugga­hliðar tækni- og iðn­að­ar­væð­ingu vest­ur­landa. Það sem gerir líf­hermun hins vegar sér­staka í þessu sam­hengi er að Benyus og fylg­is­menn hennar eru alls ekki á móti tækninýj­ungum, heldur vilja nota þær til sjálf­bærrar vöru­hönn­unar.

Benyus er tals­maður þess að tæknin bjóði upp á tæki­færi til að hugsa hlut­ina upp á nýtt. Líf­hermun er að mörgu leyti bylt­ing­ar­kennd stefna en á sama tíma höfðar hún til almennrar skyn­semi með því að koma í veg fyrir sóun og ofnýt­ingu.

Fræ í hundshári og skipulögð óreiða frumskóga


Þó líf­hermun sem fræði­grein sé nýstár­leg, má finna dæmi þess að vís­inda­menn og hönn­uðir fyrri tíma hafi horft til nátt­úr­unnar í sinni vinnu. Þannig byggðu teikn­ingar Leonardo da Vinci af fljúg­andi vél á athug­unum hans á hreyf­ingum fugla. Úr heimi bygg­ing­ar­listar má nefna Eiffel turn­inn í París, en sterkasta bein lík­am­ans, lær­legg­ur­inn var fyr­ir­mynd upp­bygg­ingar hans. Eitt vin­sælasta dæmið um líf­hermun frá fyrri hluta 20. ald­ar­innar er franski rennilás­inn sem Sviss­lend­ing­ur­inn George de Mestral hann­aði eftir að hann upp­götv­aði í göngu­ferð í Ölpunum árið 1941 að ákveðin blóma­fræ af körfu­blóma­ætt fest­ust það vand­lega við feld hunds­ins hans að erfitt var að losa þau. Þegar hann skoð­aði þetta nánar í smá­sjá tók hann eftir því að svif­hár á fræj­unum hafa króka á end­anum sem bein­línis krækt­ust í hár hunds­ins. Þetta leiddi síðan til þess að 1952 fékk de Mestral einka­leyfi á franska rennilásnum sem allir kann­ast við og sam­anstendur af mjúkri hlið sem lík­ist feldi dýra og harð­ari hlið með krókum sem læsa rennilásnum saman.

[caption id="attachment_12437" align="alignnone" width="600"] Eitt vin­sælasta dæmið um líf­hermun frá fyrri hluta 20. ald­ar­innar er franski rennilás­inn sem Sviss­lend­ing­ur­inn George de Mestral hann­aði eftir að hann upp­götv­aði í göngu­ferð í Ölpunum árið 1941 að ákveðin blóma­fræ af körfu­blóma­ætt fest­ust það vand­lega við feld hunds­ins hans að erfitt var að losa þau. Þegar hann skoð­aði þetta nánar í smá­sjá tók hann eftir því að svif­hár á fræj­unum hafa króka á end­anum sem bein­línis krækt­ust í hár hunds­ins.[/caption]

Allt eru þetta dæmi um inn­blástur frá nátt­úr­unni við vöru­hönnun en tals­menn nútíma líf­hermunar leggja áherslu á að ekki sé full­nægj­andi að hanna vöru ein­göngu með nátt­úru­leg form sem fyr­ir­mynd. Einnig þurfi að huga að fram­leiðslu­ferli vör­unnar, til dæmis með því að nota ekki eit­ur­efni eða orku­frek fram­leiðslu­ferli og þar að auki að skoða allt lífs­ferli vör­unnar, þar með talda hönnun, flutn­ing, við­skipta­hætti og end­ur­vinnslu við lok lífs­tíma hennar. Með því eru heilu vist­kerfin og sam­skipti líf­vera innan þeirra notuð sem fyr­ir­mynd. Allt skal þetta vera hluti af kerfi sem í heild sinni miðar að því að koma í samt lag aftur og við­halda auð­lindum jarðar, líkt og nátt­úru­leg hringrás vist­kerfa gerir.

Gagn­rýnendur líf­hermunar benda stundum á að nátt­úru­leg ferli og form séu það flókin að erfitt geti verið fyrir verk­fræð­inga nútím­ans að hanna sam­kvæmt þeim. Til dæmis sé mun hag­stæð­ara við fjölda­fram­leiðslu að fram­leiða fer­kant­aða hluti en óreglu­lega. Þetta er að vísu ekki rétt í öllum til­vikum og frægt er dæmið um teppa­fram­leið­and­ann Interface sem hag­ræddi fram­leiðsl­unni umtals­vert með því að líkja eftir skipu­lagðri óreiðu frum­skóga. Interface hann­aði slembirað­aðar teppaflísar, mis­mun­andi að lögun og lit, sem gerði teppa­lagn­ingu fljót­legri og kom í veg fyrir sóun á afgöngum.

[caption id="attachment_12436" align="alignnone" width="640"] Sterkasta bein lík­am­ans, lær­legg­ur­inn, var fyr­ir­mynd upp­bygg­ingar Eiffel turns­ins í París.[/caption]

Hins vegar má taka undir að verk­fræði 20. ald­ar­innar ráði ekki við mjög flókna upp­bygg­ingu eins og oft er að finna í líf­rík­inu. Í því sam­bandi benda tals­menn líf­hermunar á síaukna mögu­leika í hönnun vegna þeirrar bylt­ingar í tölvu- og upp­lýs­ing­ar­tækni sem orðið hefur. Í nýlegu við­tali segir Janine Benyus að með til­komu þrí­vídd­ar­prent­ara sé í enn rík­ari mæli hægt að leita í smiðju nátt­úr­unnar. Stafræn fram­leiðslu­tækni geri minnk­andi efna­notkun við fram­leiðslu mögu­lega og bjóði upp á form sem ekki er hægt að búa til með hefð­bundnum fram­leiðslu­háttum. Mik­il­væg­asta áskor­unin nú sé að til­einka okkur nátt­úru­lega efna­fræði með efnum sem hægt er að taka í sundur og brjóta niður á ein­faldan hátt, líkt og í vist­kerfum nátt­úr­unnar. Þar vísar Benyus til þess að í vist­kerfum verði líf­ræn efna­sam­bönd til í vatns­lausnum og við til­tölu­lega lágt hita­stig og úrgangur einnar líf­veru sé um leið hrá­efni ann­arrar. Þetta séu mik­il­væg atriði sem hafa þarf í huga við alla hönnun.

Stórfyrirtæki uppgötva lífhermun


Óhætt er að full­yrða að hug­myndir Benyus og sam­starfs­manna hennar hafa fengið byr undir báða vængi á síð­ustu árum. Japönsk háhraðalest sem var end­ur­hönnuð til að ferð­ast hraðar, nota minni orku og fram­leiða minni hávaða með því að líkja eftir goggi fugla og orku­nýtnar vind­myllur gerðar með tennt blöð í lík­ingu við bægsli hnúfu­baks eru ein­ungis tvö af ótal­mörgum dæmum um líf­hermun sem unnið er að á ýmsum stöðum í heim­inum. Nýlegar greinar um líf­hermun í við­skipta­blöðum eins og Bloomberg í ágúst í fyrra og Forbes í apríl síð­ast­liðnum, sýna að hug­myndir líf­hermunar eru löngu komnar út fyrir litla og ein­angr­aða hópa umhverf­is­vernd­ar­sinna. Stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki á borð við Boeing og Nike sjá tæki­færi í líf­hermun til að auka hag­kvæmni í rekstri og hafa unnið með Benyus í gegnum stofn­un­ina Biomimicry 3.8 sem hún stofn­aði ásamt öðrum eftir að bók hennar kom út.

[quote font="0" align="right"] Einmitt þetta, að tengja saman fræði­manna­sam­fé­lagið og atvinnu­lífið, er eitt af lyk­il­at­riðum líf­hermunar[/quote]

Benyus hefur unnið til margra banda­rískra og alþjóð­legra verð­launa fyrir störf sín og er vin­sæll fyr­ir­les­ari. Þá setti Harvard háskóli fyrir nokkrum árum á fót nýja stofnun innan sinna veggja sem vinnur að rann­sóknum sem byggja ein­göngu á inn­blæstri frá nátt­úr­unni. Wyss stofn­unin svo­kall­aða vinnur mark­visst með aðilum einka­fyr­ir­tækja að því að nið­ur­stöður grunn­rann­sókna nýt­ist við­skipta­líf­inu sem best. Einmitt þetta, að tengja saman fræði­manna­sam­fé­lagið og atvinnu­lífið, er eitt af lyk­il­at­riðum líf­hermunar. Í dag leggur Benyus mesta áherslu á að koma upp svæð­is­bundnum mið­stöðvum um allan heim þar sem vís­inda­menn, fyr­ir­tæki og hönn­uðir geta starfað saman við líf­hermun til að þróa tækni­lausnir fyrir kom­andi fram­tíð.

Lífhermun næsta óþekkt á Íslandi


Á síð­asta ári skrif­aði grein­ar­höf­undur meist­ara­prófs­rit­gerð í umhverfis- og auð­linda­fræði við Háskóla Íslands um hug­takið líf­hermun og stöðu hennar á Íslandi. Við gerð rit­gerð­ar­innar var m.a. rætt við 22 íslenska fræði­menn og þátt­tak­endur í fyr­ir­tækja­rekstri. Þessi sam­töl leiddu til einnar af meg­in­nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar; að þrátt fyrir að líf­hermun sé í stöð­ugum vexti erlendis sé hún næsta óþekkt hér á landi.

Íslensk dæmi um líf­hermun eru til­tölu­lega sjald­gæf og bak­grunnur hennar er að mestu óþekktur. Eitt stórt fyr­ir­tæki, Össur, vinnur stöðugt að þróun stoð­kerfa sem líkja eftir nátt­úru­legum fyr­ir­myndum og því má segja að starfs­menn Össurar vinni alla daga að eins konar líf­hermun. Þar fyrir utan mátti greina ein­angruð verk­efni sem vissu­lega eru inn­blásin af nátt­úru­legum ferlum og formum. Án þess að fara út í ein­staka dæmi má þó full­yrða að hin skipu­lega aðferð­ar­fræði líf­hermunar, þar sem litið er til alls fer­ils­ins við að þróa sjálf­bærar og umhverf­is­vænar tækni­lausnir, var ekki til staðar.

[caption id="attachment_12438" align="alignnone" width="1024"] Stoð­tækni­fyr­ir­tækið Össur vinnur stöðugt að þróun stoð­kerfa sem líkja eftir nátt­úru­legum fyr­ir­myndum og því má segja að starfs­menn Össurar vinni alla daga að eins konar líf­hermun.[/caption]

Þegar við­mæl­endur voru spurðir hvers vegna þeir teldu að aðferða­fræði líf­hermunar væri svo lítið notuð hér­lendis nefndu margir hverjir skort á fjár­munum, vöntun á heild­ar­sýn og lang­tíma­mark­miði stjórn­valda og ekki síst litla sam­vinnu á milli mennta­stofn­ana, en líf­hermun byggir á því að fá líf­fræð­inga að hönn­un­ar­borð­inu með verk­fræð­ingum og tækni­fólki. Allt má þetta vissu­lega til sanns vegar færa og greini­legt er að ákveðin hug­ar­fars­breyt­ing er nauð­syn­leg til að koma líf­hermun meira á fram­færi hér­lendis.

Á hinn bóg­inn voru allir við­mæl­end­urnir jákvæðir á fram­tíð­ar­mögu­leika líf­hermunar fyrir íslenskt atvinnu­líf. Í því sam­bandi má m.a. benda á að tölu­verð áhersla virð­ist vera hjá stjórn­völdum og íslensku atvinnu­lífi á að útvíkka mögu­leika í umhverf­is­vænni og skil­virkri orku­nýt­ingu, í vist­vænni bygg­ing­ar­list og í klasa­myndun fyr­ir­tækja og fram­leiðslu­ferla til betri hrá­efna­nýt­ingar.

Með þá vit­neskju í huga að skil­virk ferli finn­ast víða í nátt­úr­unni og að úrgangur einnar líf­veru er orku­gjafi ann­arrar segir heil­brigð skyn­semi manni að lausnir fyrir umhverf­is­væna vöru­hönnun og fram­leiðslu megi finna í kringum okkur í rík­ari mæli en við nýtum okkur í dag. Víst er að líf­hermun er á hraðri leið með að verða almennt við­ur­kennd fræði­grein í nágranna­löndum okkar og því vert fyrir íslenskt atvinnu­líf að fylgj­ast grannt með þess­ari fram­þróun á kom­andi miss­erum og árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár