Hátt í tíu þúsund mótmæla komu dólgsins Julien Blanc til landsins

Banda­ríkja­mað­ur­inn Julien Blanc, sem á ættir sínar að rekja til Sviss, hefur boðað komu sína til lands­ins á næsta ári til að kenna íslenskum karl­mönnum hvernig þeir eiga að ná sér í konur. Blanc kveðst vera stefnu­móta­þjálf­ari, og hefur titlað sjálfan sig sem „pickup art­ist“ og sér­fræð­ing í tæl­ingu. Hann starfar hjá fyr­ir­tæk­inu Real Social Dynamics í Los Angeles, en í nýlegri grein TIME tíma­rits­ins titlar hann sig sem „alþjóð­legan leið­toga í stefnu­móta­ráð­gjöf.“ Áður­nefnd grein ber fyr­ir­sögn­ina: „Er þetta hatað­asti maður heims?“

Julien Blanc býður upp á nám­skeið og fyr­ir­lestra á vegum Real Social Dynamics, þar sem karl­mönnum er boðin ráð­gjöf um hvernig kom­ast eigi í kynni við kvenn­menn og tæla þá. Blanc hefur látið hafa eftir sér að til­gangur hans sé að ýta undir sjálfs­traust félags­fæl­inna karl­manna til að hafa sam­skipti við konur.

[caption id="attachment_12443" align="aligncenter" width="634"] Þetta skema birti Julien Blanc á Twitter, sem á að sýna hvernig menn geta tryggt yfir­ráð sín yfir konum.[/caption]

Sakaður um að kynda undir ofbeldi gagnvart konum


Framkoma Blanc við konur hefur verið harð­lega gagn­rýnd og for­dæmd, enda hefur hann birt ófáar færslur Twitter færslur þar sem hann fer við­ur­styggi­legum orðum um konur og hvetur til þess að þær séu beittar ofbeldi. Þá hefur hann birt myndir af sér þar sem hann tekur konur kverka­taki, undir hashtagg­inu #ChokingGirlsAroundtheWorld.

Blanc birti nýverið mynd­band af sér í Tokyo á Youtube þar sem hann beitir konur ofbeldi, áreitir þær og togar höfuð þeirra niður í klofið á sér. Í mynd­band­inu sést Blanc sömu­leiðis tala af fyr­ir­litn­ingu um jap­anskar konur fyrir fullum sal af karl­mönnum, sem hlæja dátt að sögum hans. Mynd­bandið var til­kynnt japönskum yfir­völdum enda þar full­yrt að: „Allar asískar konur séu ókeypis fyrir menn sem hagi sér eins og rán­dýr,“ sem þótti hvetja menn til að áreita jap­anskar konur. Mynd­bandið var fjar­lægt af Youtube, og var mynd­banda­síðu Blanc lokað í kjöl­farið. Mynd­bandið var hins vegar birt á ný inn á Youtube um helg­ina af óþekktum aðila, þar sem það var for­dæmt. Sjón er sögu rík­ari.

Ein­stak­lingur, sem kveðst vera stúlka á þrí­tugs­aldri, birti nýverið sam­skipti sín við Blanc í stefnu­móta­for­rit­inu Tinder. Eftir ógeð­felld sam­skipti þeirra á milli tók stúlkan saman ýmsar upp­lýs­ingar um Blanc og birti fleiri sam­skipti hans við konur í gegnum stefnu­móta­for­ritið. Þar sést hvernig Blanc meðal ann­ars lýgur til um and­lát föður síns og að systur sinni hafi verið nauðgað til að fá konur til að hafa sam­skipti við sig út á vor­kunn. Þá má sömu­leiðis sjá þar fjöl­margar Twitter-færslur frá Blanc þar sem hann talar við­bjóðs­lega um konur af mik­illi kvenn­fyr­ir­litn­ingu. Þá hefur Blanc ekki vílað fyrir sér að hvetja til þess að konum sé nauðgað.

Þúsundir mótmæla komu Blanc til landsins


Fyr­ir­huguð koma Blanc til lands­ins hefur vakið hörð við­brögð hér­lendis, og í dag hafa hátt í tíu þús­und manns ritað nafn sitt á sér­stakan und­ir­skrift­ar­lista þar sem komu hans til Íslands er harð­lega mót­mælt. Samkvæmt heima­síðu Real Social Dynamics hyggst Blanc standa fyrir nám­skeiði á Íslandi dag­ana 11. til 13. júní næst­kom­andi.

Boðuð koma Blanc til ann­arra landa hefur sömu­leiðis hrundið af stað mót­mælum þar, en á meðal landa þar sem barist hefur verið gegn komu hans má nefna Ástralíu, Bretland, Japan, Singapúr, Kanda og Brasilíu.

Mótmælin hafa orðið til þess að Blanc hefur neyðst til að aflýsa við­burðum meðal ann­ars í Melbourne, Brisbane, Austin og Seattle, auk þess sem miða­sölu­fyr­ir­tæki hafa tekið miða á við­burði hans úr sölu. Í dag greinir dag­blaðið The Guardian frá því að honum hafi verið meinað um vega­bréfs­á­ritun til Bret­lands.

Í nýlegu við­tali á CNN frétta­stöð­inni, baðst Julien Blanc afsök­unar á fram­ferði sínu. Hann hafi gerst sekur um vafa­sama kímni­gáfu.

Hvort Julien Blanc kemur eða kemur ekki til Íslands mun tím­inn einn leiða í ljós, en ljóst er að hann mun fá ansi kulda­legar mót­t­tökur á Íslandi ef af heim­sókn hans verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár