Hægt er að láta skuldaniðurfellingu renna til ríkissjóðs

Þeir sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009, og sóttu um nið­ur­fell­ingu á hluta lána sinna í leið­rétt­ing­ar­að­gerð rík­is­stjórn­ar­innar, geta látið það fé sem þeim var úthlutað renna til rík­is­sjóðs. Það gera þeir með því að sam­þykkja ekki nið­ur­stöðu útreikn­ing­anna, en flestir þurfa að gera það í des­em­ber­mán­uði. Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri skulda­leið­rétt­ing­anna, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að ef fólk sem sótti um kýs að þiggja ekki nið­ur­fell­ing­una þá muni sú upp­hæð sem þeim var reiknuð sitja eftir í rík­is­sjóði.

Allir sem hafa fengið birta nið­ur­stöðu úr skulda­nið­ur­fell­inga­um­sókn sinni þurfa að stað­festa hana áður en byrjað verður að greiða inn á höf­uð­stól lán­anna. Kjósi umsækj­andi að sleppa því að stað­festa umsókn sína verða þeir fjár­munir sem áttu að renna til hans í formi höf­uð­stólslækk­unar eftir í rík­is­sjóði. Hefði við­kom­andi sleppt því að sækja um höf­uð­stólslækkun hefði upp­hæðin hins vegar dreifst á aðra sem sóttu um skulda­nið­ur­fell­ingu.

[caption id="attachment_12426" align="alignnone" width="624"] Tryggvi Þór Her­berts­son er verk­efna­stjóri Leið­rétt­ing­ar­innar.[/caption]

36 milljarðar í stað 40 milljarða


Samkvæmt fjár­lögum átti að greiða 20 millj­arða króna inn á nið­ur­færslu á verð­tryggðum lánum þeirra sem voru með slík lán á árunum 2008 og 2009 á þessu fjár­laga­ári. Þegar nið­ur­stöður skulda­nið­ur­fell­ing­anna voru kynntar fyrr í þessum mán­uði kom fram að fjár­mögn­un­ar­tími aðgerð­anna hafi verið styttur. Í kynn­ing­unni kom fram að 40 millj­arðar króna verði „greiddir inn á leið­rétt­inga­lánin á þessu ári“. Upphæðin átti því að hækka um 20 millj­arða króna.

Í breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp til fjár­auka­laga fyrir árið 2014 segir hins vegar að við­bót­ar­fram­lag vegna nið­ur­færslu á verð­tryggðum hús­næð­is­skuldum þeirra heim­ila sem voru með slík lán á árunum 2008 og 2009 verði 15,8 millj­arðar króna, ekki 20 millj­arðar króna.

Tryggvi Þór segir þetta vera vegna þess að ekki muni allir ná að sam­þykkja nið­ur­færslur sínar fyrir ára­mót og því flytj­ist hluti upp­hæð­ar­innar til milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár