Fulltrúi Eflingar rekinn af fundi starfsmanna sem ræsta Landsspítala

Harpa Ólafs­dóttir, hag­fræð­ingur Eflingar, var rekin af fundi sem pólskir ræst­ing­ar­starfs­menn héldu með yfir­mönnum ræst­ing­ar­fyr­ir­tækis sem sér um þrif á Lands­spít­al­anum. Pólsku starfs­menn­irnir höfðu óskað eftir nær­væru Hörpu á fund­inum auk þess sem túlkur var til staðar. Það voru full­trúar ræst­inga­fyr­ir­tæk­is­ins sem mein­uðu Hörpu að taka þátt í fund­inum.

Samkvæmt nýrri við­horfskönnun Eflingar eru 73 pró­sent þeirra sem starfa við ræst­ingar með dag­vinnu­laun sem eru undir 250 þús­und krónum fyrir fullt starf á mán­uði. Launa­sam­an­burður hefur leitt í ljós að þessi hópur hefur hækkað hvað minnst milli ára af ein­stökum starfa­hópum, eða um 2,4 pró­sent á milli áranna 2013 og 2014. Pólsku starfs­menn­irnir, sem eru tólf tals­ins, sjá um þrif á 26 þús­und fer­metra svæði á Lands­spít­al­anum. Mikil ólga hefur verið á meðal þeirra vegna álags og bágra kjara og þess vegna var boðað til fund­ar­ins.

Ótrúlegt atvik og mikið vanvirða


Í frá­sögn af atvik­inu á heima­síðu Eflingar segir:

„Margt bendir til að ræst­ing­ar­fólk sé að fá sig fullsatt af álagi og kröfum um stöðugt aukna vinnu fyrir lægra kaup og verri aðbúnað í erf­iðum ræst­ing­ar­störfum. Stór hópur fólks af erlendum upp­runa sinnir ræst­ing­ar­störfum í kjöl­far útboða hjá rík­is­fyr­ir­tækjum og er að kikna undan álagi fyrir laun sem eru í mörgum til­vikum undir því lág­marki sem kjara­samn­ingar kveða á um. Á Lands­spít­al­anum kom nýlega til árekst­urs þegar full­trúi Eflingar, Harpa Ólafs­dóttir, var rekin af fundi sem pólskir ræst­ing­ar­starfs­menn höfðu óskað eftir nær­veru Eflingar.

Á Land­spít­al­anum í Fossvogi háttar svo til að tólf pólskir starfs­menn sjá um þrif á um 26 þús­und fer­metra svæði. Mikil ólga hefur verið und­an­farið hjá þessum starfs­mönnum vegna álags og bágra kjara. Nú fyrr í nóv­em­ber­mán­uði ósk­uðu þeir eftir fundi með yfir­mönnum ræst­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins ásamt túlki og full­trúa Eflingar.

Við höfum fylgst með vax­andi óánægju á þessum verk­stöðvum ræst­ing­ar­fólks og brugð­umst því hratt við þegar óskað var eftir nær­veru Eflingar og stuðn­ings á fund­inum sem fyr­ir­tækið Hreint var með á staðnum, segir Harpa Ólafs­dóttir, hag­fræð­ingur Eflingar.

Þegar til kom var mér sem full­trúa stétt­ar­fé­lags­ins mein­aður aðgangur að fund­inum. Þetta var ekki lítið sér­kenni­leg upp­á­koma og ég hef aldrei sem starfs­maður Eflingar lent í því að vera meinuð aðganga að fundi til að aðstoða félags­menn. Ótrúlegt atvik og mikil van­virða við fólkið sem beðið hafði um aðstoð Eflingar á fund­inum. Sér í lagi þar sem eng­inn trún­að­ar­maður er á staðnum og starfs­menn þekkja síður rétt sinn vegna tungu­mála­örð­ug­leika. Þetta varð til þess að þeir ell­efu starfs­menn sem mættir voru gengu allir af fundi.

Að loknu stuttu sam­tali sem full­trúi Eflingar tók við starfs­menn­ina með aðstoð túlks var talin full ástæða til að skoða málið betur og er það nú til með­ferðar hjá lög­mönnum og for­ystu­mönnum Eflingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár