Arion banki hefur hagnast um 23 milljarða króna það sem af er ári

Arion banki hagn­að­ist um 22,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í ár. Það er umtals­vert meiri hagn­aður en var á sama tíma­bili í fyrra þegar hagn­að­ur­inn var 10,1 millj­arður króna. Þessi aukn­ing á hagn­aði á sér stað þrátt fyrir að tekju- og banka­skattur hafi hækkað um 3,4 millj­arða króna á milli ára. Eigið fé bank­ans er nú 160 millj­arðar króna og eignir hans eru metnar á 942 millj­arða króna.

HB Grandi skýrir aukin hagnað að mestu


Aukn­ingin á hagn­aði skýrist á nokkrum mis­mun­andi þáttum. Sá stærsti er afkoma af aflagðri starf­semi, sem skilar 6,6 millj­örðum króna í tekjur á árinu 2014. Afkoma vegna hennar var ein­ungis þrjár millj­ónir króna árið áður. Þarna munar mest um sölu á 18,8 pró­sent hlut bank­ans í HB Granda.

Hreinar fjár­muna­tekjur eru líka mun meiri á fyrstu níu mán­uðum þessa árs en þær voru á sama tíma­bili í fyrra. Alls eru þær 5,9 millj­arðar króna nú en voru 954 millj­ónir króna í fyrra. Um er að ræða tekjur vegna hækk­unar á hluta­bréfum sem bank­inn á, aðal­lega í HB Granda og smá­söluris­anum Högum.

Saman útskýra því salan á hlut í HB Granda, og hækkun hluta­bréfa sem Arion banki á enn í því fyr­ir­tæki og Högum, þorra þeirrar hagn­að­ar­aukn­ingar sem orðið hefur hjá bank­anum á þessu ári.

Launagreiðslur aukast um sex prósent milli ára


Þókn­ana­tekjur vaxa um 22 pró­sent á milli ára og eru nú 10,1 millj­arður króna. Aukn­ingin er einkum til­komin vegna hærri þókn­ana­tekna á greiðslu­kortum og af starf­semi fjár­fest­inga­banka­sviðs. Þá skilar hrein virð­is­breyt­ing á lánum vegna end­ur­skipu­lagn­ingar bank­anum um 2,9 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Virð­is­breyt­ing eigna var nei­kvæð á sama tíma­bili í fyrra.

Laun og launa­tengd gjöld hækka á milli ára um 587 millj­ónir króna, eða sex pró­sent. Alls er bank­inn búinn að greiða út tíu millj­arða króna í laun og launa­tengd gjöld það sem af er ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár