Framtíðarsýn skortir á norðurslóðum

Fréttir af vax­andi áhuga stærri ríkja og orku­fyr­ir­tækja á Norð­ur­skauts­svæð­inu hafa verið áber­andi í íslenskum fjöl­miðlum síð­ustu miss­eri og settar í sam­hengi við spenn­andi tæki­færi fyrir Íslend­inga á norð­ur­slóðum. Þar fel­ast vissu­lega ákveðnir mögu­leikar en áhug­anum fylgir einnig áhætta því fram­tíð­ar­þróun í þessum heims­hluta er óljós og þau tæki­færi sem við fáum verða ekki endi­lega þau sem við áttum von á. Orku­mark­að­ur­inn er ófyr­ir­sjá­an­legur og óvæntar breyt­ingar síð­ustu ára sýna fram á það hversu mik­il­vægt það er að aðlag­ast hratt að breyttum aðstæðum.

Það hefði þótt lygi­leg bjart­sýni fyrir ára­tug síðan að halda því fram að Banda­ríkin ættu eftir að geta skákað Rússum í útflutn­ing á gasi eða keppt við Katar á hrá­ol­íu­mark­aði. Það virð­ist þó vera raunin því ef yfir­stand­andi þróun heldur áfram verður það veru­leik­inn á næstu árum. Nýsköpun í jarð­gas- og olíu­vinnslu, sér­stak­lega í tengslum við vatns­þrýst­ings­brot (e. fracking) hefur gjör­bylt orku­mark­aðnum í Banda­ríkj­unum og hefur áhrif um allan heim. Í jún­í­tölu­blaði banda­ríska tíma­rits­ins Foreign Affairs (sjá hér og hér), og nýlegum tölu­blöðum The Economist (sjá 1. nóv­em­ber og 25. októ­ber) var fjallað um nýsköpun í orku­geir­anum og hvernig hún hefur þegar breytt for­sendum heims­mark­aðar með orku. Vatns­þrýst­ings­brot og gasvinnsla voru títt­nefnd í þessum umfjöll­unum en engin grein í blöð­unum fjall­aði um norð­ur­slóðir. Þegar áhrif „leir­steins­bylt­ing­ar­innar“ eru skoðuð er auð­velt að greina af hverju vatns­þrýst­ings­brot þykir fýsi­legra en olíu­leit á norð­ur­slóðum.

[caption id="" align="alignnone" width="1600"] Glen Crabtree, verka­maður á olíu­bor í Norður-Dakóta, smyr bor. Und­an­farin ár hefur verið mik­ill upp­gangur í olíu­vinnslu í Norður-Dakóta, meðal ann­ars vegna vatns­þrýs­ings­brots-aðferð­ar­innar.[/caption]

Betri er einn í hendi en tveir í skógi


Árið 2008 þurftu Banda­ríkin að flytja inn tæp­lega 2 milj­ónir tunna af olíu á dag til að mæta eft­ir­spurn þar í landi. Í fyrra voru þau farin að flytja út sam­bæri­legt magn. Fram­leiðsla þeirra á olíu hefur auk­ist um 60 pró­sent og fram­leiðsla á jarð­gasi um tæpan fjórð­ung. Olíu­æv­in­týri Banda­ríkja­manna á norð­ur­slóðum hefur á hinn bóg­inn ekki skilað jafn góðum árangri. Margar af þekktum og lík­legum olíu­lindum eru á miklu dýpi og erf­iðu umhverfi sem eykur áhættu og kostnað. Vatns­þrýst­ings­brot getur hins vegar átt sér stað á landi, þar sem olíu­fyr­ir­tækin þurfa ekki að hafa jafn miklar áhyggjur af veðr­áttu og búa þegar yfir mik­illi tækni­legri reynslu og þekkja allar aðstæður. Hugs­an­leg víð­tæk­ari olíu- og gasvinnsla á norð­ur­slóðum er af ýmsum ástæðum ekki lengur eft­ir­sókn­ar­verð og sum olíu­fyr­ir­tækj­anna virð­ast ætla að snúa sér annað.

[quote font="0" align="right"]Í Beaufort-hafi norðan Alaska hafa fyr­ir­tæki til dæmis minnkað leitar- og vinnslu­svæði um tæp­lega sex hund­ruð þús­und hekt­ara, sem er rúm­lega helm­ing­ur­inn af því svæði sem þau fengu upp­runa­lega leyfi til að nýta.[/quote]

Exxon-orkuris­inn banda­ríski hóf sam­starf við rúss­neska aðila við bor­anir í Kara­haf­inu í ágúst og fengin reynsla lofar góðu. Nú ríkir hins vegar óvissa um fram­hald bor­ana vegna refsi­að­gerða Banda­ríkj­anna gegn Rúss­landi í tengslum við afskipti Rússa af mál­efnum Úkraínu. Á banda­rískum norð­ur­slóðum hafa mörg fyr­ir­tæki ákveðið að end­ur­nýja ekki bor­leyfin sín. Í Beaufort-hafi norðan Alaska hafa fyr­ir­tæki til dæmis minnkað leitar- og vinnslu­svæði um tæp­lega sex hund­ruð þús­und hekt­ara, sem er rúm­lega helm­ing­ur­inn af því svæði sem þau fengu upp­runa­lega leyfi til að nýta. Áætlað er að svæðið inni­haldi tæp­lega 30 milj­arða tunna af olíu og nokkra tugi billjón rúmmetra af gasi, þannig að ástæðan er ekki skortur á auð­lindum heldur hversu erf­iðar aðstæð­unar þar nyrðra eru og kostn­aður við fram­kvæmdir mik­ill.

[caption id="" align="alignnone" width="1600"] Olíu­bor­p­allur Shell strand­aði við Alaska í lok árs 2012 og var mikil hætta á að olía meng­aði hafið og strend­urnar í kjöl­farið.[/caption]

Víða á norð­ur­slóðum hefur hafís reynst meiri og veður verri en spár gerðu ráð fyrir. Þannig missti orku­fyr­ir­tækið Shell stjórn á bor­p­alli sem strand­aði nán­ast við Kódíak-eyju árið 2012. Stuttu síðar stóðst við­bragð­skip fyr­ir­tæk­is­ins ekki örygg­is­kröfur banda­rískra stjórn­valda og annað skip Shell strand­aði við Alaska. Margir umhverf­is­sinnar og frum­byggjar hafa áhyggjur af hugs­an­legum afleið­ingum slysa og mis­taka á við­kvæmt líf­ríki og berj­ast gegn leit og vinnslu olíu­fyr­ir­tækja við hvert tæki­færi. Shell hefur enn ekki hafið bor­anir á ný og virð­ist ekki hafa áætl­anir um að hefja þær fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Stjórn­endur Shell hafa hik­laust selt svæði og starf­semi sem stand­ast ekki vænt­ingar til að lækka kostnað og bæta sjóð­streymi. Það má velta fyrir sér hversu lengi þeir vilja bíða þangað til fjár­fest­ing fyr­ir­tæk­is­ins á þessum hluta norð­ur­slóða fari að borga sig.

Sama og þegið


Þrátt fyrir núver­andi þróun er fram­tíð leir­steins­vinnslu jafn óvís og fram­tíð orku­vinnslu á norð­ur­slóðum. Margir eru mót­fallnir þessum aðferðum af mörgum ólíkum ástæðum. Umhverf­is­sinnar hafa áhyggjur af losun met­ans út í and­rúms­loftið og mengun grunn­vatns. Rúmlega 150 þús­und bor­stöðvar í leir­steins­vinnslu eru nú víða um Banda­ríkin og þeim hefur stundum fylgt mikil stað­bundin mengun. Þau fyr­ir­tæki sem eiga hlut að máli benda á að vinnslan sé umhverf­is­vænni en vinnsla kola og halda því fram að engar vís­inda­lega sann­anir séu til fyrir því að vatns­þrýst­ings­brot geti mengað grunn­vatn ef rétt er staðið að málum. Það virð­ist auð­veld­ara sagt en gert, þar sem fleiri hund­ruð kvart­anir hafa borist banda­rískum stjórn­völdum. Rann­sókn­ar­blaða­menn á vegum Associated Press-frétta­veit­unnar hafa auk þess fjallað um vatns­mengun á nokkrum stöðum í Banda­ríkj­unum.

[caption id="" align="alignnone" width="1600"] Nýjum olíu­vinnslu­að­ferðum hefur verið mót­mælt í Banda­ríkj­unum und­an­farið. Í októ­ber sýndu mót­mæl­endur dæmi um vatns­meng­un­ina sem hlýst við vatns­þrýs­ings­brot.[/caption]

Önnur ástæða fyrir því að umhverf­is­vernd­ar­sinnar eru mót­fallnir auk­inni jarð­ga­svinnslu eru áhyggjur af því að fjár­festar missi áhuga á kolefn­is­fr­íum orku­gjöfum, til dæmis sólar-, sjáv­ar­falla- og vind­orku. Þver­þjóð­leg nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) hefur lagt áherslu á að þótt jarð­ga­svinnsla losi ekki jafn mikið kolefni út í and­rúms­loftið og aðrir orku­gjafar, þá geti notkun þess í besta falli talist skamm­tíma­lausn. Einungis kolefn­is­fríir orku­gjafar geti tryggt sjálf­bæra og umhverf­is­væna fram­tíð í orku­málum. Í Þýska­landi og í nokkrum banda­rískum ríkjum hefur umhverf­is­vernd­ar­sinnum tek­ist að knýja á um tíma­bundna stöðvun bor­ana þar sem vatns­þrýst­ings­brots­að­ferðin er notuð. Frönsk yfir­völd bönn­uðu notkun þessa aðferðar árið 2011 og fleiri rík­is­stjórnir íhuga að fylgja for­dæmi þeirra.

[quote font="0" align="right"]Einungis kolefn­is­fríir orku­gjafar geti tryggt sjálf­bæra og umhverf­is­væna fram­tíð í orku­málum.[/quote]

Aðrir gagn­rýnendur „leir­steins­bylt­ing­ar­innar“ efast um hversu góð fjár­fest­ing vinnsla á gasi úr leir­steini mun reyn­ast til lengri tíma. Fjár­festar hafa lagt margar billjónir króna í leir­steins­vinnslu á frekar skömmum tíma, sem skýrir að hluta til þá gríð­ar­legu aukn­ingu sem hefur átt sér stað. Þrátt fyrir það benda rann­sóknir til þess að fram­leiðni slíkra bor­stöðva minnki tölu­vert hraðar en hefð­bund­inna bor­stöðva, eða um helm­ing á fyrsta árinu. Sam­an­borið við hefð­bundnar bor­stöðvar, þar sem fram­leiðni minnkar um 7-10 pró­sent á ári er ljóst að full­yrð­ingar IPCC um aukna gas­fram­leiðslu sem skamm­tíma­lausn eru ekki orðum auknar, hvað varðar umhverfið og efna­hag­inn.

Eggin í fleiri körfur


Nýsköpun og rann­sókn­ar­vinna er nauð­syn­leg til þess að kolefn­is­fríu orku­gjaf­irnar geti orðið mark­aðsvænni en það er lang­tíma mark­mið. Miðað við áfram­hald­andi þróun gætu ára­tugir liðið áður en nútíma­sam­fé­lög geti vænst þess að ein­ungis kolefn­is­fríir orku­gjafar verði not­aðir til orku­fram­leiðslu.

Það hefur reynst vara­samt fyrir marga sér­fræð­inga að spá nákvæm­lega fyrir um fram­tíð­ar­þróun í vinnslu og nýt­ingu orku­gjafa og þá um leið sveiflur í heims­mark­aðs­verði. Þeir sem hafa reynt það hafa oft þurft að éta ofan í sig spá­dóma, til dæmis þeir sem spáðu því að vinnsla Banda­ríkj­anna á jarð­gasi og olíu gæti ekki annað en haldið áfram að minnka. Eitt er víst að áreið­an­leg og kolefn­is­frí orku­vinnsla mun ekki verða að veru­leika nema með áfram­hald­andi veit­ingu fjár­magns og rann­sókna, hvort tveggja af hálfu hins opin­bera og einka­geirans. Ef gagn­rýnendur vatns­þrýst­ings­brots og orku­vinnslu á norð­ur­slóðum hafa rétt fyrir sér mun það á end­anum telj­ast fram­sýni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár