Leiðréttingardæmi: Seldi með hagnaði 2008 en fékk samt niðurfellingu

Hjón sem seldu íbúð sína sum­arið 2008 á þriðj­ungi hærra verði en þau keyptu hana á fá rúm­lega 630 þús­und krónur í skulda­nið­ur­fell­ingu. Nið­ur­fell­ingin fer inn á nýtt hús­næð­is­lán þeirra sem þau tóku vegna kaupa á ein­býl­is­húsi árið 2011. Ein­býl­is­húsið hefði hækkað um þriðj­ung í verði síðan að hjónin keyptu það. Þetta kemur fram í bréfi sem annað hjón­anna sendi Kjarn­anum.

Kjarninn hvetur les­endur til að senda sér fleiri dæmi um nið­ur­stöðu skulda­nið­ur­fell­inga á ritstjórn@kjarninn.is.

Bréf lesandans:


„Þetta rugl er eitt­hvað það ófor­skammað­asta sem ég veit til þess að gert hafi verið í póli­tík og það þarf ekk­ert meira til að sýna fram á það, en nýja fréttin um grein­ina hans Boga í MBL er enn einn naglinn í þetta ferli.


Ég skrifa ykkur til að sýna fram á að það liggja alvöru dæmi á bak við töl­urnar í grein­inni.

 

Þannig er að við hjónin keyptum okkar fyrstu íbúð í árs­byrjun 2005 á um tólf millj­ónir króna og seldum hana svo sum­arið 2008, áður en við fluttum tíma­bundið af landi brott, á meira en þriðj­ungi hærra verði en við keyptum á. Við vorum bara mjög sátt, sér­stak­lega þegar komið var fram á haustið, eins og gefur að skilja.

 

Nema hvað, að þegar leið­rétt­ingin er svo aug­lýst, þá sækjum við um, aðal­lega fyrir for­vitni sakir enda áttum við ekki von á neinu.

 

Svo kemur nið­ur­staðan. Við fáum útreikn­aða, af íbúð­ar­láni vegna kaupa sem við högn­uð­umst á, inn­borgun upp á 630 þús­und krónur úr rík­is­sjóði á nýja lánið sem við tókum vegna kaupa á ein­býl­is­húsi á suð­vest­ur­horn­inu árið 2011. Og - viti menn - það hús hefur hækkað um ca. þriðj­ung í verði síðan við keyptum það.

 

Og við, sem erum í ein­hverju með­al­tekju­bili sam­kvæmt skil­grein­ingu, föllum þarna í ein­hvern hóp sem þarf - og á - að "bjarga" og "leið­rétta" þótt við höfum fyr­ir­fram enga kröfu gert um slíkt, og höfum enga knýj­andi þörf fyrir það.

 

Afsakið rantið, en mér finnst þetta svo mikil vit­leysa að ég get ekki orða bund­ist."


[caption id="attachment_12238" align="alignnone" width="850"] Á mynd­inni sést nið­ur­staða leið­rétt­ing­ar­um­sóknar hjón­anna.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingardæmi

Fréttirleiðréttingardæmi

Leið­rétt­ing­ar­dæmi: Fékk 50% af eft­ir­stöðvum láns­ins nið­ur­fellt

Hjón sem keyptu sér ein­býl­is­hús fyrir 75 millj­ónir króna árið 2005, greiddu lánin af því að mestu upp árið 2008 og seldu húsið árið 2012 fyrir meira en upp­reiknað kaup­verð að við­bættum end­ur­bótum, fá 3,6 millj­ónir króna í leið­rétt­ingu. Eft­ir­stöðvar skulda þeirra í dag eru um sjö millj­ónir króna og því fá hjónin nið­ur­fellt um helm­ing eft­ir­stöðv­anna. Þetta kemur fram...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár