Leiðréttingardæmi: Fékk 50% af eftirstöðvum lánsins niðurfellt

Hjón sem keyptu sér ein­býl­is­hús fyrir 75 millj­ónir króna árið 2005, greiddu lánin af því að mestu upp árið 2008 og seldu húsið árið 2012 fyrir meira en upp­reiknað kaup­verð að við­bættum end­ur­bótum, fá 3,6 millj­ónir króna í leið­rétt­ingu. Eft­ir­stöðvar skulda þeirra í dag eru um sjö millj­ónir króna og því fá hjónin nið­ur­fellt um helm­ing eft­ir­stöðv­anna. Þetta kemur fram í bréfi sem annað hjón­anna sendi Kjarn­anum.

Kjarninn hvetur les­endur til að senda sér fleiri dæmi um nið­ur­stöðu skulda­nið­ur­fell­inga á ritstjórn@kjarninn.is.

Bréf lesandans:

„

Þú gætir ekki skáldað upp jafn frá­leitt dæmi um ráð­stöfun almanna­fjár­muna og þetta hér. Ég sótti um „leið­rétt­ing­una” gegn eigin sann­fær­ingu, með þeirri rök­semd að ef þeir sem væru and­snúnir upp­á­tæk­inu sæktu ekki um, þá myndu kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks einir útdeila sjálfum sér tugum millj­arða.

Við hjónin keyptum ein­býl­is­hús fyrir 75m árið 2005 og tókum lán fyrir tæp­lega helm­ingi kaup­verðs. Seint á árinu 2008 greiddum við lánin upp að mestu leyti - annað þeirra að fullu, - eft­ir­stöðvar hins láns­ins eru dag eru rétt rúmar 7m. Við seldum húsið árið 2012 - sölu­verðið var hærra en nam upp­reikn­uðu kaup­verði að við­bættum end­ur­bótum. Húsið hækk­aði sem­sagt umfram verð­lag. Við keyptum okkur íbúð í mið­bænum í stað­inn, fluttum eft­ir­stöðvar láns­ins með okkur. Íbúðin sem var keypt árið 2012 hefur haldið í við verð­lag und­an­farin tvö ár.

Við fáum nú 3,6 millj­ónir í “leið­rétt­ingu” - þar af 1,2 millj­ónir vegna láns sem var að fullu greitt árið 2008. Þessi “leið­rétt­ing" nemur 50% af eft­ir­stöðvum láns­ins. Við þurfum ekk­ert á þessu að halda - þetta breytir engu fyrir okkur. For­sendu­brest­ur­inn er eng­inn, við vitum hvernig verð­bólga hefur verið á Íslandi und­an­farna ára­tugi.

Svona dæmi gefa for­sætis- og fjár­mála­ráð­herra ekki í kynn­ingum."

[caption id="attachment_11789" align="alignnone" width="753"] Á mynd­inni sést nið­ur­staða leið­rétt­ing­ar­um­sóknar hjón­anna.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingardæmi

Fréttirleiðréttingardæmi

Leið­rétt­ing­ar­dæmi: Seldi með hagn­aði 2008 en fékk samt nið­ur­fell­ingu

Hjón sem seldu íbúð sína sum­arið 2008 á þriðj­ungi hærra verði en þau keyptu hana á fá rúm­lega 630 þús­und krónur í skulda­nið­ur­fell­ingu. Nið­ur­fell­ingin fer inn á nýtt hús­næð­is­lán þeirra sem þau tóku vegna kaupa á ein­býl­is­húsi árið 2011. Ein­býl­is­húsið hefði hækkað um þriðj­ung í verði síðan að hjónin keyptu það. Þetta kemur fram í bréfi sem annað hjón­anna sendi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár