Vilja að fólki sé treyst til að nefna börnin sín án blessunar ríkisins

Í dag verður dreift á Alþingi nýju frum­varpi þing­manna Bjartrar fram­tíðar um breyt­ingu á lögum um manna­nöfn. Verði frum­varpið að lögum verður manna­nafna­nefnd lög niður og öll ákvæði laga um hana felld á brott. Auk þess verða allar kvaðir sem lög um manna­nöfn fela í sér varð­andi ætt­ar­nöfn felld á brott. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að meg­in­mark­mið þess sé „að und­ir­strika þá meg­in­reglu varð­andi nöfn og nafn­giftir að almennt skuli gert ráð fyrir að nöfn séu leyfð, að for­eldrum sé treyst til að velja börnum sínum nafn og að jafn­ræð­is­regla stjórn­ar­skrár­innar sé virt“.

Frum­varpið var fyrst lagt fram haustið 2013 en er nú lagt fram aftur með tölu­verðum breyt­ingum sem miða allar að því að ein­falda lögin enn frekar en fyrra frum­varp hafði gert ráð fyrir. Í fyrra frum­varp­inu var til að mynda lagt bann við upp­töku ætt­ar­nafna en hægt var að vísa slíkum málum til ráð­herra til frek­ari skoð­unar. Það bann er ekki að finna í nýja frum­varp­inu.

Hagsmunir einstaklinga ríkari


Þau rök hafa oft heyrst fyrir til­urð manna­nafna­nefndar og tak­markanna á frelsi for­eldra til að nefna börn sín að frjálsar nafn­giftir, án eft­ir­lits rík­is­ins, geti orðið börn­unum til ama.

[quote font="0" align="right"] Hags­munir ein­stak­linga af því að fá að heita nafn­inu sínu eru rík­ari en hags­munir sam­fé­lags­ins af því að fólk fái ekki að heita nafn­inu sínu[/quote]

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir: „For­eldrum á almennt að treysta til að velja börnum sínum nöfn sem eru þeim ekki til ama. Komi upp til­felli þar sem vafi leikur á því hvort nafn barns geti orðið því til ama má leiða að því líkur að vandi við­kom­andi barns sé meiri en svo að ákvæði laga um manna­nöfn og þar af leið­andi manna­nafna­nefnd séu sá aðili sem eigi að leið­beina for­eldrum í for­eldra­hlut­verk­inu.[...] Hags­munir ein­stak­linga af því að fá að heita nafn­inu sínu eru rík­ari en hags­munir sam­fé­lags­ins af því að fólk fái ekki að heita nafn­inu sínu“.

Árnastofnun leysir ekki vanda Satans Stalínsonar


Heiða Kristín Helga­dóttir, stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir að frum­varpið sé mik­il­vægt skref í átt að því að eyða aft­ur­halds­semi og höftum í íslensku sam­fé­lagi. „Réttur fólks til að bera nafn er mjög nátengdur sjálfs­mynd hvers og eins. Lög­gjaf­inn þarf að hafa mjög ríka ástæðu til þess hlut­ast til um nokkuð sem er álíka mik­il­vægt per­sónu­frelsi borg­ar­anna og nafn­gift. Þær ástæður sem liggja að baki núver­andi lög­gjöf um verndun íslenskrar nafna­hefðar og að nafn megi ekki vera nafn­bera til ama er hægt að girða fyrir með öðrum leiðum.

[caption id="attachment_12183" align="aligncenter" width="640"] Heiða Kristín Helga­dóttir, stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar.[/caption]

Þannig má treysta fólki til að vilja skíra börn sín íslenskum nöfnum í stað þess að skylda þau til þess. Hafi ein­hver áhyggjur af því að Satönum Stalín­sonum muni fjölga veru­lega má leiða líkur að því að vandi for­eldra sem vilja skíra börn sín slíkum nöfnum sé meiri en svo að Árna­stofun eigi að koma þar að máli. Barnalög og barna­vernd­un­ar­yf­ir­völd eru mun betur til þess fallin og geta brugð­ist við.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár