2014 stefnir í að vera hlýjasta ár sögunnar

Árið 2014 verður að öllum lík­indum heitasta alm­an­aksár síðan mæl­ingar á með­al­hita Jarðar hófust árið 1880. Samkvæmt frum­gögnum NASA var með­al­loft­hiti Jarðar í októ­ber var jafn mik­ill og hann var 2005 og deilir því efsta sæti yfir hlýj­ustu októ­ber­mán­uði. Japanska veð­ur­stofan mældi októ­ber hins vegar hlýjasta októ­ber­mánuð þegar litið er til með­al­hita Jarðar.

Japönsku gögnin sýna að að með­al­hiti í októ­ber ár hvert hafi hækkað alveg síðan 1890, þegar fyrstu mæl­ingar Japana voru gerðar. Und­an­farin ald­ar­fjórð­ung hefur metið svo reglu­lega verið slegið. Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Mashable.

Sept­em­ber­mán­uður þessa árs var einnig heit­asti sept­em­ber­mán­uður síðan mæl­ingar hófust auk þess sem að tíma­bilið frá júní og út ágúst var það hlýjasta sem mælst hefur. Vís­inda­menn telja þetta marka ákveðin þátta­skil í hita­stigs­sögu Jarðar, en síð­ustu 15 ár hefur hægst nokkuð á hækkun hita­stigs, meðal ann­ars vegna kæl­ingar heims­haf­anna. Nú virð­ast höfin vera að hitna á ný.

[caption id="attachment_12096" align="alignnone" width="642"] Með­al­hita­stig á Jörðinni í októ­ber 2014 sam­kvæmt frum­gögnum yfir­borðs­hita­mæl­inga NASA.[/caption]

Mælingar á hita­stigi heims­haf­anna í sept­em­ber hafa jafn­framt aldrei skilað hærri nið­ur­stöðum en í ár. Þannig var með­al­hiti haf­anna 16,17°c í sept­em­ber. Ekki nóg með að það hafi verið lang­hæsta mæl­ing síðan 1880 heldur hefur það gildi lengstu spönn frá með­al­tali, þó litið sé til allra gagna­punkta.

Haf- og lofts­lags­rann­sókn­ar­stofnun Banda­ríkj­anna (NOAA) hefur þegar gefið út gögn sem sýna fram á að 2014 geti orðið hlýjasta ár í sög­unni. Til þess þurftu októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber aðeins að vera hlýrri en með­al­tal þess­ara mán­aða á 21. öld­inni. Verði þessir mán­uðir jafn­hlýir og með­al­tal 21. aldar verður 2014 jafnt árunum 1998 og 2010 í efsta sæti yfir heit­ustu árin síðan 1880. Nú er ljóst að með­al­hiti nóv­em­ber og des­em­ber þarf að vera nokkuð lágur til að 2014 verði ekki metár.

Loftslagsmál ekki á dagskrá G20


[caption id="attachment_12097" align="alignnone" width="1024"] Obama á fund­inum í Brisbane. Umræðu­efnin eru æði­flókin. Allt frá stað­bundnum átökum í Austur-Evrópu í hnatt­ræn vanda­mál.[/caption]

Þessa dag­ana fer fram ráð­stefna 20 stærstu iðn­ríkja heims í Brisbane í Ástralíu. Lofts­lags­mál eru ekki á form­legri dag­skrá funda leið­tog­anna sem varð meðal ann­ars til þess að gerð voru mót­mæli á götum Brisbane í lok vik­unnar.

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti flutti þó ræðu í háskóla í Queensland á laug­ar­dags­morgun þar sem hann full­yrti að hægt væri að gera sátt­mála um lofts­lags­málin milli stærstu iðn­ríkja heims­ins. Hann sagði það í raun skyldu hvers ríkis að gera sitt. „Engin þjóð er ónæm og allar þjóðir þurfa að leggja sitt af mörkum,“ sagði Obama í ræðu sinni.

[quote font="0" align="right"]„Ef Kína og Banda­ríkin geta kom­ist að sam­komu­lagi um þetta þá getur heim­ur­inn það líka, við getum klárað þetta og það er mik­il­vægt að við klárum þetta.“[/quote]

Í ræð­unni stað­festi Obama þær fregnir sem The Guardian hafði flutt í gær um að Banda­ríkin myndu veita þremur millj­örðum doll­ara í Græna lofts­lags­sjóð­inn. Sjóð­ur­inn er á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna og úr honum verður veitt til verk­efna sem eiga að vega á móti lofts­lags­breyt­ingum af völdum manna. Obama hvatti jafn­framt aðrar þjóðir til að veita sjóðnum fé, enda hefðu Banda­ríkin margt sam­eig­in­legt með öðrum stórum iðn­veldum, meðal ann­ars lofts­lags­vand­ann.

Skemmst er að minn­ast und­ir­rit­unar sam­komu­lags milli Kína og Banda­ríkj­anna um að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið á mið­viku­dag. „Ástæðan fyrir því að þetta [und­ir­ritun sam­komu­lags­ins] er svo mik­il­vægt er að ef Kína þró­ast í þá átt að hafa sama magn útblást­urs á hvern íbúa og þróuð ríki eins og Banda­ríkin og Ástralía, þá mun plánetan okkar ekki eiga séns því í Kína búa mun fleiri,“ sagði Obama í ræðu sinni.

„Að setja þeim mark­mið sendir kröftug skila­boð til heims­ins um að öll ríki, þróuð eða van­þróuð, verða að kom­ast yfir gamlan ágrein­ing, horfa blákalt á vís­indin og kom­ast að góðu sam­komu­lagi um lofts­lags­mál á næsta ári. Ef Kína og Banda­ríkin geta kom­ist að sam­komu­lagi um þetta þá getur heim­ur­inn það líka, við getum klárað þetta og það er mik­il­vægt að við klárum þetta,“ sagði Obama enn­fremur.

Ræða Obama í háskólanum í Brisbane


https://www.youtube.com/watch?v=52ZPlDSmEj4

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár