Obama: Internetið er grunnþjónusta

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti vill herða reglu­verk utan um net­þjón­ustu­fyr­ir­tæki í því skyni að koma í veg fyrir að þau mis­muni eða skerði þjón­ustu til not­enda. Í stuttu mynd­bandi sem birt var á vef­síðu Hvíta húss­ins á mánu­dag sl. tal­aði Obama fyrir auk­inni neyt­enda­vernd á net­inu og sagði að koma þyrfti í veg fyrir að fyr­ir­tækin bæti eigin hag með því að skerða þjón­ustu til not­enda.

Hug­mynda­fræðin sem Obama talar fyrir kall­ast „net­hlut­leysi“ eða „net neutrality“. Hún er ekki ný af nál­inni og hefur verið miðja hags­muna­bar­áttu net­þjón­ustu­fé­laga og inter­net-aktí­vista í rúman ára­tug. Stuðn­ings­menn net­hlut­leysis, for­set­inn þar á meðal, telja inter­netið svo mik­il­vægan hluta dag­legs lífs fólks að ekki megi skerða rétt þeirra til að vafra frjálst um netið án afskipta þeirra fyr­ir­tækja sem veita aðgang­inn. Reglu­verkið verði að taka mið af þessu og tryggja jafnt aðgengi.

https://www.youtube.com/watch?v=uKcjQPVwfDk

„Frá upp­hafi inter­nets­ins hefur það grund­vall­ast um ein­faldar meg­in­reglur um að vera opið, sann­gjarnt og frjálst,“ sagði Obama í upp­hafi ávarps­ins. „Engir verðir ákveða hver hlýtur aðgang. Það eru engin toll­hlið á upp­lýs­inga-hrað­braut­inni. Þessar meg­in­reglur, það eru hug­myndir um net­hlut­leysi, hafa læst úr læð­ingi þá orku sem ein­kennir inter­netið og veitt frum­kvöðlum tæki­færi til þess að blómstra. Frávik frá þessum meg­in­reglum myndi þýða enda­lok inter­nets­ins eins og við þekkjum það.“

Í ræð­unni beinir Obama orðum sínum til Fjar­skipta­stofn­unar Banda­ríkj­anna, FCC, og biður hana um að vernda net­hlut­leysi. Stofn­unin er sjálf­stæð, og skýrir það m.a. hvers vegna Obama beitir sér með þessum hætti. „FCC ætti að gera það ótví­rætt að hvort sem þú notir tölvu, síma eða spjald­tölvu, þá beri fyr­ir­tækj­unum laga­leg skylda til þess að hvorki banna né skerða aðgang að heima­síðu,“ sagði for­set­inn. Hann vill að öll fyr­ir­tæki sem veita aðgang að net­inu séu skil­greind sem fjar­skipta­fyr­ir­tæki, en þannig er það ekki í dag sem gerir lagaum­hverfið grárra en ella.

Hvatar til mismununar


Sem betur fer eru fá dæmi um að fyr­ir­tækin hafi dregið úr þjón­ustu not­enda í eigin þágu. Hvatar til slíks þykja engu að síður aug­ljósir, og eru helsta ástæða fyrir því að Obama setur málið með svo afger­andi hætti á odd­inn.

Sem dæmi um hags­muna­á­rekstra ann­ars vegar fyr­ir­tækis sem lagði, á og rekur net­strengi í jörðu (t.d. Comcast, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tækis Banda­ríkj­anna) og hins vegar kaup­anda að þjón­ust­unni, þá getur það verið Comcast í hag að loka alfarið eða hægja á streymi til efn­isveita eins og Netflix og Hulu. Not­and­inn er þá lík­legri til þess að kaupa aðgang að efn­isveitu Comcast. Eins gæti Comcast kraf­ist þess að Netflix borgi sér­stakt gjald til þess að not­endur gætu sótt efnið frá þeim hraðar. Sú er raunin í dag, og hefur Netflix reitt fram háar fjár­hæðir til þess að tryggja að not­endur net­þjón­ustu­fé­lag­anna geti notað vef­síð­una.

Dýfa á mörkuðum


Hluta­bréfa­verð allra helstu net­veita Banda­ríkj­anna lækk­aði snarpt í kjöl­far birt­ingar ávarps­ins. Með­fylgj­andi mynd, fengin af mark­aðsvef Google, sýnir hvernig fyr­ir­tækin Time Warner Cable, Comcast, Verizon, Charter og Cablevision tóku dýfu á mánu­dag.

Áhyggjur fjár­festa eru ekki úr lausu lofti gripnar. Óvissan sem ríkir um hvernig reglu­verkið muni líta út hefur áhrif á áætl­anir fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna. Sem dæmi um það til­kynnti AT&T að fjár­fest­ingar í háhraða­net­köplum yrðu settar á ís í hund­rað banda­rískum borgum þar til reglur yrðu skýrðar.

 

Misheppnuð reglubreyting


Reglum FCC um net­þjón­ustu­fyr­ir­tækin var síð­ast breytt árið 2010. Þá var net­veit­unum gert óheim­ilt að úti­loka not­endur frá ein­stökum vef­síðum eða efn­isveitum, öll „ósann­gjörn mis­munum“ (unr­ea­sona­ble discrimination) var bönnuð og reglum var breytt í því skyni að auka gegn­sæi á mark­að­inum. Þetta sætti síma- og net­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Verizon sig ekki við, taldi FCC fara út fyrir vald­svið sitt án sam­þykkis frá lög­gjaf­ar­þing­inu, kærði ákvörðun FCC og vann málið í byrjun þessa árs.

Í dag er inn­leið­ing net­hlut­leysis í banda­rískt fjar­skipta­reglu­verk því aftur komið á byrj­un­ar­reit. Drög hafa verið birt að nýjum reglum Fjar­skipta­stofn­un­ar­innar og hefur hún óskað álits á þeim. Meðal breyt­inga er að í stað þess að banna „ósann­gjarna mis­munun“ er fyr­ir­tækj­unum heim­ilt að veita hrað­ari aðgang að net­efni ef það þykir „sann­gjarnt“ (commercially rea­sona­ble). Talsmenn net­hlut­leysis telja orða­lagið opna stóra smugu fyrir hverskyns mis­munun. Gera má ráð fyrir að útspil Banda­ríkja­for­seta í vik­unni sé til að leggja sitt á vog­ar­skál­arnir í bar­átt­unni fyrir net­hlut­leysi.

Internetaðgangur sem mannréttindi


Í anda hug­mynda­fræð­innar um net­hlut­leysi hafa þing­menn Pírata lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um jafnt aðgengi að inter­net­inu. „Aðgangur almenn­ings að inter­net­inu mun án efa telj­ast til mik­il­væg­ustu mann­rétt­inda fram­tíð­ar­innar. Inter­net­inu hefur verið lýst sem einu áhrifa­mesta verk­færi 21. aldar til að auka gagn­sæi, tryggja aðgang að upp­lýs­ingum og efla virka þátt­töku almenn­ings í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi. Því standa rík rök til þess að tryggja öllum lands­mönnum öruggan aðgang að inter­net­inu.“ segir í upp­hafi grein­ar­gerðar til­lög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár