Zuckerberg útskýrir af hverju Facebook neyddi fólk til að ná í Messenger

Mark Zuckerberg, stofn­andi og for­stjóri Facebook, hefur við­ur­kennt að það hafi verið „sárs­auka­fullt“ fyrir not­endur Facebook þegar þeir voru knúnir til að nið­ur­hala sér­stöku appi fyrir skila­boða­for­ritið Messen­ger í snjall­tæki sín. Áður var hægt að nota Messen­ger-for­ritið í gegnum Facebook appið en í haust tók fyr­ir­tækið fyrir þá leið.

Zuckerberg sagði í sam­tali við The Verge að þetta hafi verið stór bón og að hann kunni að meta að not­endur Facebook hafi látið sig hafa það að nið­ur­hala nýja Messen­ger-app­inu. Til­gang­ur­inn hafi verið sá að búa til betri not­enda­reynslu. Hvert app fyr­ir­tæk­is­ins á að fanga einn hlut vel í stað þess að blanda öllum notk­un­ar­mögu­leikum Facebook saman í einu appi.

Facebook-appið á þannig að snú­ast um frétta­gátt sam­skipta­mið­ils­ins (e. News Feed) og þar sem að yfir tíu millj­arðar skila­boð séu send á dag úr Messen­ger þá fannst fyr­ir­tæk­inu það vera of löng leið fyrir neyt­endur að fara í gegnum frétta­gátt­ina inn í skila­boða­for­ritið. „Þú ert lík­lega að senda skila­boð til fólks um 15 sinnum á dag. Að þurfa að fara inn í app og fara í gegnum nokkur skref til að kom­ast í skila­boðin skapar ákveð­inn nún­ing. Þetta er með því erf­ið­ara sem við gerum, að taka svona ákvarð­anir. Við gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að vinna upp mikið traust og sýna fram á að sér­stök skila­boða­þjón­usta sé af hinu góða. Við erum með okkar hæfi­leik­a­rík­asta fólk að vinna í þessu“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár