Settist í stjórn bankans sem verðmat P/F Magn

Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir sett­ist í stjórn Saga Capital nokkrum mán­uðum eftir að bank­inn hafði fram­kvæmt verð­mat á fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magn. Verð­matið var fram­kvæmt vegna ágrein­ings sem átt hafði sér stað í kjöl­far þess að P/F Magn var selt út úr eign­ar­halds­fé­lag­inu Fons, deg­inum áður en það var tekið til gjald­þrota­skipta.

Skipta­stjóri Fons var ósáttur með verðið sem nýr eig­andi P/F Magn greiddi og óskaði eftir nýju verð­mati. Nýr eig­andi P/F Magn var félag í eigu Guð­mundar Arnar Þórð­ar­sonar, eig­in­manns Svan­hildar Nönnu. Á grund­velli verð­mats­ins var gerður nýr kaup­samn­ingur milli Fons og félags Guð­mundar. Í reikn­ingum þess félags, sem heitir Hedda ehf., kemur fram að P/F Magn var metið á 233,5 millj­ónir króna eftir kaupin.

[caption id="attachment_11511" align="align­right" width="150"] Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir.[/caption]

Upplýst hefur verið í ýmsum fjöl­miðlum und­an­farna daga að Svan­hildur Nanna, Guð­mundur Örn og þre­menn­ingar sem fengu að kaupa hlut í P/F Magn á miklu und­ir­verði nokkrum mán­uðum áður en félagið var selt á fjóra millj­arða króna, hafi hagn­ast gríð­ar­lega á við­skiptum með P/F Magn. Við­skiptum sem byggðu meðal ann­ars á verð­mati Saga Capital.

Svan­hildur Nanna og Guð­mundur Þór eign­uð­ust einnig allt hlutafé í Skelj­ungi á árunum 2008 til 2009. Þau seldu það fyr­ir­tæki sam­hliða P/F Magn. Samtals var sölu­verð fyr­ir­tækj­anna tveggja um átta millj­arðar króna.

Eigandi Heddu var varamaður í stjórn


Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að P/F Magn hefði verið selt út úr Fons 29. apríl 2009, dag­inn áður en Fons var tekið til gjald­þrota­skipta. Óskar Sig­urðs­son, sem skip­aður var skipta­stjóri Fons, reyndi að rifta söl­unni í júní sama ár með vísun til laga um gjald­þrota­skipti. Kaup­and­inn, Hedda ehf., mót­mælti rift­un­inni. Í ljós þess ágrein­ings var Saga Capital fengið til að meta verð­mæti P/F Magn og að því fengnu var nýr kaup­samn­ingur gerður milli þrota­bús og Heddu ehf. Hann er dag­settur 1. ágúst 2009.

[quote font="0" align="right"] Í árs­reikn­ingi Heddu fyrir árið 2009 var hlut­ur­inn í P/F Magn hins vegar met­inn á 233,5 millj­ónir króna.[/quote]

Óskar vildi ekki stað­festa sölu­verðið á P/F Magn þegar Kjarninn leit­aði eftir því. Sagði hann að trún­að­ar­á­kvæði í samn­ingnum hindri það. Í árs­reikn­ingi Heddu fyrir árið 2009 var hlut­ur­inn í P/F Magn hins vegar met­inn á 233,5 millj­ónir króna.

Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir sett­ist í stjórn Saga Capital í des­em­ber 2009. Guð­mundur Örn Þórð­ar­son, eig­in­maður hennar og með­fjár­festir, var við sama til­efni kjörin sem vara­maður í stjórn. Svan­hildur Nanna sat í stjórn Saga Capital sem óháður stjórn­ar­maður. Hún átti enga hluti í bank­anum.

36földuðu fjárfestingu sína á nokkrum mánuðum


[caption id="attachment_10673" align="align­right" width="150"] Halla Sigrún Hjalta­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.[/caption]

P/F Magn var selt á um fjóra millj­arða króna í lok árs 2013. Guð­mundur og Svan­hildur Nanna höfðu þá selt 66 pró­sent hlut í P/F Magn til þriggja fjár­festa, Höllu Sigrúnar Hjalta­dóttur, Einars Arnar Ólafs­sonar og Kára Þórs Guð­jóns­sonar, sem öll unnu hjá fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis þegar hjónin keyptu Skeljung þaðan sum­arið 2008. Samkvæmt árs­reikn­ingum virð­ist kaup­verð hvers og eins þeirra sem greitt var fyrir 22 pró­sent hlut hafa verið um 24 millj­ónir króna. Halla Sigrún er stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Í árs­reikn­ingi Heddu fyrir árið 2013 kemur fram að hagn­aður af söl­unni var 3.718 millj­ónum króna. Fyrir 34 pró­sent hlut sinn í P/F Magn fengu Guð­mundur og Svan­hildur rúm­lega 1,3 millj­arða króna í sinn hlut. Hinir þrír eig­end­urnir, Halla Sigrún, Einar Örn og Kári Þór, höfðu keypt hluti sína í P/F Magn á árinu 2013. Þegar fyr­ir­tækið var selt þá hagn­að­ist hvert og eitt þeirra um 860 millj­ónir króna. Engar rök­rænar skýr­ingar hafa feng­ist á því hvað olli því að Svan­hildur Nanna og Guð­mundur ákváðu að gefa frá sér slík verð­mæti fyrir jafn lítið fé og raun ber vitni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár